Fréttablaðið - 01.06.2007, Qupperneq 82
Árleg skýrsla Deloitte
um fjármál knattspyrnuheims-
ins vekur ávallt mikla athygli og
á því er engin undantekning í ár.
Þar kemur fram að enska deildin
er enn sú tekjuhæsta og leikmenn
liðanna munu brjóta eins milljarðs
punda múrinn í launakostnaði sem
er aukning um tæpar 150 milljón-
ir punda frá leiktíðinni 2005-06 en
skýrsla ársins er frá þeirri leiktíð.
Ein aðalástæðan er nýr sjónvarps-
samningur.
Chelsea er með mestu launa-
byrðina eða 114 milljónir punda
fyrir leiktíðina en fjórir aðrir
klúbbar fóru yfir 50 milljón punda
múrinn. Man. Utd greiddi 85 millj-
ónir punda, Arsenal 83, Liverpool
69 og Newcastle 52.
Man. Utd hafði mestar tekjur
ensku liðanna eins og venjulega
eða 167,7 milljónir punda. Chelsea
kom næst með 152,8, Arsenal með
133 og Liverpool 121,6 milljón-
ir punda. Tekjur Arsenal munu
hækka mest í næstu skýrslu
enda fyrsta starfsárið á nýjum og
stærri velli. Aðeins 9 félög í ensku
úrvalsdeildinni skiluðu hagnaði
fyrir skatta en félögin voru 14 árið
á undan.
Launin í enska boltanum eru
langhæst en næst kemur ítalska
deildin, þar sem launakostnaður
þar er 35 prósent lægri en í enska
boltanum. Spænski boltinn kemur
svo í þriðja sæti með 502 milljón-
ir punda í launakostnað á móti 548
hjá Ítalíu.
Annars er Evrópuboltinn enn
í mikilli sókn og velta Evrópu-
boltans jókst um 9 prósent milli
ára. Fjárhagsstaða félaganna í 5
stærstu deildum Evrópu hefur
styrkst verulega enda er tekju-
aukning í þeim öllum.
Launin í enska boltanum halda áfram að hækka og næsta vetur fer sameiginlegur launakostnaður liðanna
yfir 1 milljarð punda eða um 122 milljarða íslenskra króna. Þessar upplýsingar eru á meðal þeirra sem má
finna í árlegri skýrslu Deloitte um fjármál knattspyrnuheimsins. Enska deildin er sú tekjuhæsta.
Kobe Bryant hefur gefið það
út að hann sé hættur við að fara
frá Los Angeles Lakers. „Ég vil
að mér verði skipt frá félaginu
- já. Eins erfitt og það er að við-
urkenna það - er enginn annar
möguleiki í stöðunni,” sagði Bry-
ant í vikunni en eftir að Phil Jack-
son, þjálfari liðsins, hringdi í
hann snerist Bryant hugur.
„Ég vil vera hér áfram. Þetta
er liðið mitt, ég elska að vera
hérna,“ sagði Bryant. Jackson
sagði að hann álásaði Bryant ekki
fyrir að láta hin ófögru orð falla
en nú yrði grettistaki lyft hjá fé-
laginu, sem stefndi á betri hluti í
framtíðinni.
Hættur við að
fara frá Lakers
Sir Alex Ferguson beið
ekki boðanna og hefur þegar
tryggt sér þrjá nýja leikmenn í
lið Manchester United. Farsanum
um Owen Hargreaves er loksins
lokið en hann skrifar undir hjá
United hinn 1. júlí eftir vanga-
veltur í heilt ár um komu hans.
Kaupverðið á honum er um 17
milljónir punda.
United hefur einnig staðfest
komu hins 19 ára gamla Ander-
son frá Porto og Nani frá Sport-
ing Lissabon en saman kosta þeir
rúmar 30 milljónir punda.
Þrír leikmenn á
50 milljónir
San Antonio Spurs tryggði
sér þriðja meistaratitil sinn á
Vesturströnd Bandaríkjanna á
síðustu fimm árum í fyrrinótt
eftir 109-84 sigur á Utah Jazz.
Tim Duncan og Tony Parker skor-
uðu báðir 21 stig fyrir Spurs sem
vann einvígið 4-1 og hafði nokkra
yfirburði yfir Utah.
Eftir að hafa komist í 14-0 var
björninn nánast unninn hjá Spurs
og leikmenn Utah náðu sér ekki á
strik. Hið spræka lið Spurs mætir
annaðhvort Detroit Pistons eða
Cleveland Cavaliers í úrslitum
NBA en staðan í viðureign þeirra
er 2-2.
Kláraði Utah og
varð meistari
TILBOÐSDAGAR
%
%
1. - 9. júní
20 - 25
afsláttur af
öndunarfatnaði
% %
STÆR
RI VE
RSLU
MEIR
A VÖR
UÚRV
AL!I
I
!
ALPARNIR
Íslensku
Faxafeni 8 • 108 Reykjavík • Sími 534 2727 • e-mail: alparnir@alparnir.is • www.alparnir.is
Jakkar frá kr. 9.995 til 19.995