Fréttablaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 88
Allir vita að reykingafólk er frekasti minnihlutahópur í
heimi. Í eigin huga er reykinga-
maðurinn þó fyrst og fremst kúgað
fórnarlamb, eins og umræðan um
reykingabannið sem tekur gildi í
dag sýnir. Svo innilega trúir reyk-
ingamaðurinn tjörunni að hann
hefur fengið til liðs við sig ófáa nyt-
sama sak/reykleysingja, sem oft
eru uppnefndir „frjálslyndir húman-
istar“ og eru vinsælir álitsgjafar og
pistlahöfundar.
um píslarvættið sem
þessi „félagslega útskúfaði hópur“
telur sig þurfa aða þola af völdum
bannsins eru dramatískar upphróp-
anir um forræðishyggju og Hitlers-
lög. Líklega hefði Orwell heimtað
að drifskafti yrði stungið í líkkistu
sína hefði hann grunað að í framtíð-
inni myndi grátkór reykingamanna
vísa í 1984 til að mótmæla hófsöm-
um skorðum á því hvar fámennur
hópur geti fengið útrás fyrir áunna
fíkn sína; þennan viðbjóðslega ósið
sem veldur öllum í grenndinni
ómældum ama. Puh segi ég, já puh.
sem reykingapakkið
notar ömurlegum málstað sínum
til stuðnings eru mörg hver kostu-
leg. Sessunautur minn, að jafnaði
kýrskýr ung kona hvers æskublómi
og rökhugsun hafa þó sölnað eftir
ellefu ára tóbaksfíkn, hefur kastað
fram sumum af mínum uppáhalds...
öh, „röksemdum“. Ein sú frumleg-
asta er á þá leið að um leið og tób-
aksreyksins njóti ekki við muni
allir skemmtistaðir landsins fyll-
ast af mannaþef. Nú er vissulega
ósanngjarnt að ætla reykingafólki
svo stórt að baða sig reglulega. En
sá sem er slíkur skunkur að ekkert
nema eitraður, illþefjandi tóbaks-
reykur dugir til að kæfa dauninn af
honum á við annað og stærra vanda-
mál að etja en reykingabann. Ég
reyki ekki og ég ilma vel.
ekki síður dillað yfir
innantómum hótunum reykinga-
manna um að barirnir muni tæm-
ast eftir að reykbannið tekur gildi.
Þeir hafa einfaldlega ekki stað-
festu til að fylgja þeirri hótununni.
Hefðu þeir hana væru þeir löngu
hættir að reykja. Einhver mótmælti
reykingabanninu í mín eyru á þeim
makalausu forsendum að um leið og
hyskið fengi ekki að svæla sínar síg-
arettur á veitingahúsum færi það
beinustu leið heim og spúði óvær-
unni yfir börnin sín. Þarna er reyk-
ingasubbunum rétt lýst. Víla ekki
fyrir sér að spilla heilsu eigin barna
til að fá skammtinn sinn. Stór hluti
af fróun reykingamanna virðist
reyndar fólginn í því að eitra and-
rúmsloft annarra.
það er óþarfi að kenna í brjósti
um reykingamenn. Það mun síst
skorta á reykinn þar sem þeir enda.
Reyklaus
barlómur
Nú getur þú hringt í 1441 og fyllt á Frelsið
með símanum þínum – þú þarft bara að skrá
debet- eða kreditkortið þitt einu sinni á Mínu
Frelsi á siminn.is eða í verslunum Símans
Fylltu á Frelsið með GSM símanum og þú færð:*
– 0 kr. í 2 GSM vini
– 0 kr. mínútan eftir fyrstu 3 mínútur
hvers símtals
800 7000 – siminn.is
Fullur sími
* Nánari upplýsingar um tilboð og skilmála er að finna á siminn.is/Frelsi.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
7
8
10
BEINN SÍMI Í HTH: 530-2906 / 530-2907
BAÐINNRÉTTINGR
KAUPHLAUPSVERÐ
10% AFSLÁTTUR
LISTAVERÐ: 159.900 kr.
KAUPHLAUPSVERÐ 129.900 kr.
Sharp 32" LCD LC-32GA8E
FYRSTUR MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is