Fréttablaðið - 05.01.2013, Blaðsíða 49
| ATVINNA |
Eldhús – Eldhús
Matsölustaðurinn Hjá Dóra í Mjódd óskar eftir að ráða
starfskraft vanan eldhússtörfum og afgreiðslu á heitum
mat. Snyrtimennska og íslenskukunnátta skilyrði.
Upplýsingar í s. 557 3910 eða á staðnum mán- föst.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Ert þú sölumaður af guðs náð?
Ef svo er – þá ættir þú að lesa áfram. Við leitum nefnilega að framúrskarandi
sölumanni með einstaka þjónustulund til að slást í samstilltan starfsmannahóp
PFAFF. Starfið felst aðallega í sölu á ljósum, heyrnartólum, smáraftækjum og
saumavélum – allt vörumerki á heimsmælikvarða.
• Við leitum að einstaklingi sem er jákvæður, reglusamur, stundvís, duglegur, skemmtilegur, fær í mannlegum samskiptum,
hugmyndaríkur og skapandi, metnaðarfullur og hefur ríka þjónustulund og söluhæfni. Það skaðar ekki að hafa reynslu af
sölu í verslun, en er ekki skilyrði.
• Vinnutími er 9-18 alla virka daga og u.þ.b. annan hvern laugardag. Lokað er á laugardögum á sumrin.
Upplýsingar veitir:
Rannveig J. Haraldsdóttir
rannveig@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til
og með 13. janúar nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is
Pfaff er rótgróið fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið starfrækt í yfir 80 ár, og það á
sömu kennitölunni. Starfsfólkið er stolt af fyrirtækinu sem er í senn rótgróið og
íhaldssamt en þó síungt í anda.
Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969
www.ils.is
Sviðsstjóri upplýsinga-
og tæknisviðs
Menntunar- og hæfniskröfurStarfssvið
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Nánari upplýsingar um forsendur ráðningar er að finna á heimasíðu Landspítala.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Vinna á legu- og göngudeildum innkirtla- og efnaskiptalækninga
» Vinna við ráðgjöf innkirtla- og efnaskiptalækninga
» Þátttaka í vaktþjónustu innkirtla- og efnaskiptalækninga
» Þátttaka í viðfangsefnum almennra lyflækninga í samráði við yfirlækni
innkirtla- og efnaskiptalækninga
» Þátttaka í kennslu og rannsóknarstarfi
Hæfnikröfur
» Sérfræðiviðurkenning á Íslandi í almennum lyflækningum með innkirtla-
og efnaskiptalækningar sem undirsérgrein
» Breið þekking og reynsla í almennum lyflækningum
» Breið þekking og reynsla í innkirtla- og efnaskiptasjúkdómum
» Góðir samskiptahæfileikar
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2013
» Upplýsingar veitir Rafn Benediktsson yfirlæknir, rafnbe@landspitali.is,
sími: 824 5929.
» Umsókninni skal fylgja ferilskrá, útfyllt eyðublað Velferðarráðuneytisins
um læknisstöðu, vottfestar upplýsingar um nám, fyrri störf, reynslu af
kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum. Einnig sérprentun (ljósrit eða
rafræn skjöl) af greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað.
» Auk rafrænna umsóknargagna skulu ferilskrá og vottfestar upplýsingar
sbr. að ofan berast á pappír í tvíriti til Rafns Benediktssonar, yfirlæknis
innkirtla- og efnaskiptalækninga, Landspítala í Fossvogi.
» Mat Stöðunefndar læknaráðs Landspítala byggist á innsendum
umsóknargögnum. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist
ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.
» Ef samið verður um fullt starf (100%) þá er það bundið við sjúkrahúsið
eingöngu sbr. yfirlýsingu LSH vegna kjarasamnings sjúkrahúslækna dags.
2. maí 2002, sbr. breytingu 5. mars 2006.
Sérfræðilæknir í innkirtla-
og efnaskiptalækningum
Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í innkirtla - og efnaskipta-
lækningum. Starfið veitist frá 1. maí 2013 eða eftir samkomulagi. Stefnt
er að því að um fullt starf (100%) verði að ræða en starfshlutfall getur þó
verið samkvæmt nánara samkomulagi.
Matvælafyrirtæki á höfuðborgar-
svæðinu óskar eftir bílstjóra
– meirapróf kostur
Sendið ferilskrá á starf123@gmail.com
sími: 511 1144
LAUGARDAGUR 5. janúar 2013 9