Fréttablaðið - 05.01.2013, Blaðsíða 51
| ATVINNA |
Móttökuritari
Samtök áhugafólks um áfengis- og
vímuefnavandann auglýsa móttökuritara
læknaritara til starfa sem fyrst.
Upplýsingar gefur Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir
á Sjúkrahúsinu Vogi, sími 824 7600, eða netfang:
thorarinn@saa.is
Umsóknir sendist til SÁÁ, Stórhöfða 45,
110 Reykjavík.
Við þurfum á eldmóði þínum að halda!
UNICEF á Íslandi (Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna) leitar
að ábyrgu, kraftmiklu og jákvæðu starfsfólki, 18 ára og eldra,
sem vill leggja málstað samtakanna lið fram í maí.
Starfið felst í því að ganga í hús á höfuðborgarsvæðinu og
kynna starf UNICEF. Vinnutíminn er á eftirmiðdögum og á
kvöldin.
Við bjóðum þér starf með tilgang. Á móti vonumst við til að
þú sért gædd/ur réttlætiskennd og sannfæringarkrafti, eigir
auðvelt með að tengjast fólki og miðla málstað UNICEF til
annarra.
Umsóknarfrestur er til og með 18.janúar nk.
Áhugasamir sendi ferilskrá á hrafnhildur@unicef.is
Nánari upplýsingar í síma 552 6300.
Framreiðslunemar,
matreiðslunemar
og hjálp í sal
Veitingahús Perlunnar leitar að fram-
reiðslunemum og matreiðslunemum
ásamt hjálp í sal.
Atvinna í boði
Vantar framreiðslunema
Afgreiðslustarf í kaffiteríu
Fullt og ½ starf í boði
Vaktavinna
www.perlan.is
Megin starf hans snýr að umsýslu með
landvörðum, verkstjórn, almennum
viðhaldsverkefnum, daglegri umsjón með
gestastofu og sýningu, fræðslumálum og fleiru
sem lýtur að móttöku ferðamanna.
Ítarlegri upplýsingar um starfið, hæfniskröfur
og umsóknarfrest er að finna á starfatorg.is og
http://www.umhverfisstofnun.is/storf-i-bodi/
Akureyri - Egilsstaðir - Ísafjörður - Mývatn - Patreksfjörður
Reykjavík - Snæfellsnes - Vestmannaeyjar
STARFSMAÐUR Í ÞJÓÐGARÐINUM
SNÆFELLSJÖKLI
Umhverfisstofnun leitar að starfsmanni sem hefur áhuga á verndun náttúru
með þjónustu við ferðamenn að leiðarljósi.
Njótum umhverfisins og stöndum vörð um það saman
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Upplýsingar veita:
Rannveig J. Haraldsdóttir,
rannveig@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 20. janúar nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is.
Skrifstofustarf
Starfssvið:
• Móttaka, símsvörun og upplýsingagjöf
• Umsjón með almennu rými skrifstofunnar
• Skráning, flokkun og öflun gagna
• Uppfærsla á heimasíðu
• Ýmis önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Stúdentspróf eða sambærileg menntun
• Reynsla af skrifstofustörfum
• Góð tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni
• Færni í samræðum og ritun á íslensku og ensku
• Lipurð í samskiptum og samstarfi
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Nákvæmni og skipulag
Lögum samkvæmt ber Kvikmyndamiðstöð Íslands m.a. að stuðla að framleiðslu,
dreifingu og kynningu á íslenskum kvikmyndum. Kvikmyndamiðstöð vinnur einnig
að eflingu kvikmyndamenningar á Íslandi og því að treysta tengsl á milli íslenskra
og erlendra kvikmyndagerðaraðila. www.kvikmyndamidstod.is
Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið
störf sem fyrst. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum
ríkisstarfsmanna. Kvikmyndamiðstöð Íslands hefur aðsetur að
Hverfisgötu 54 í Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað
sérstaklega þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Forseti Menntavísindasviðs HÍ
PIPA
R
\TBW
A
SÍA
123722
Háskóli Íslands leitar að öflugum stjórnanda og leiðtoga fyrir Menntavísindasvið sem er
eitt af fimm fræðasviðum skólans. Á Menntavísindasviði eru stundaðar fjölbreyttar
rannsóknir á sviði menntunar, uppeldis og þjálfunar í þeim tilgangi að skapa nýja
þekkingu, íslensku samfélagi til hagsbóta. Á Menntavísindasviði starfar hópur starfsmanna
á breiðu sviði fræða, listsköpunar og starfsgreina.
Forseti Menntavísindasviðs starfar í umboði rektors. Hann er æðsti yfirmaður og
akademískur leiðtogi fræðasviðsins og stjórnar daglegri starfsemi þess. Með forseta
fræðasviðs starfar öflugt teymi stjórnenda og sérfræðinga.
Umsækjendur skulu hafa:
akademískt hæfi sem og þekkingu og reynslu á háskóla- og/eða rannsóknaumhverfi,
leiðtogahæfileika,
metnaðarfulla og skýra framtíðarsýn,
ríka samskiptahæfni,
víðtæka reynslu af stjórnun og stefnumótun.
Umsóknarfrestur er til 4. mars 2013. Nánari upplýsingar
um umsóknargögn, starfið og ráðningarferlið er að
finna á slóðinni: hi.is/skolinn/forseti_mvs
Forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands
LAUGARDAGUR 5. janúar 2013 11