Fréttablaðið - 05.01.2013, Blaðsíða 79

Fréttablaðið - 05.01.2013, Blaðsíða 79
LAUGARDAGUR 5. janúar 2013 | MENNING | 51 RunKeeper Á nýju ári strengja margir áramóta- heit. Erfitt getur verið að halda þessi áramótaheit og drífa sig út að hlaupa ef engin hvatning er fyrir hendi nema aukakíló og slen. Þá er ráð að kynnast fjölmörgum æfinga- og hlaupaöppum fyrir snjallsíma. Endalaust úrval er af þessum öppum en hér er aðeins tekið fyrir eitt og er það RunKeeper, sem skráir upplýsingar um æfinguna þína um leið og þú ferð út að hlaupa, hjóla eða ganga. Appið virkir GPS-staðsetn- ingarkerfi símans og merkir hlaupa- leiðina inn á kort, skráir hversu hratt þú hljópst hvern kílómetra og mælir jafnvel brenndar kaloríur. Hlustir þú á tónlist á meðan þú hleypur lætur hvetjandi rödd þig reglulega vita hversu langt þú hefur hlaupið og á hversu löngum tíma. Appið er einfalt í notkun og krefst ekki neinna upplýsinga um þig nema tölvupóstfangs svo þú getir skráð þig inn sem notandi. Þú getur síðan stillt hverju þú deilir með öðrum not- endum forritsins, sem telja meira en tólf milljónir manns um heim allan. Appið heldur síðan utan um allar æfingarnar þínar svo að hægt er að nálgast gömul hlaup og hlaupatíma aftur í tímann. Ef maður skráir sig síðan inn á vefsíðu RunKeeper má nálgast allar upplýsingar um hlaupin sín á vefnum. Einnig má skoða upp- lýsingar annarra notenda þar. Nýlega kynnti framleiðandi for- ritsins nýjung í uppfærslu þar sem hægt er að setja sér markmið. Appið lætur þig svo vita hversu vel þér gengur að ná settum markmiðum. Einnig má nálgast í nýrri uppfærslu appsins nokkrar æfingaáætlanir sem settar hafa verið saman af reyndum þjálfurum. Þar er appið búið að gera æfingadagskrá fyrir þig, fyrir næstu vikur og mánuði. Það er tilvalið fyrir þá sem til dæmis dreymir um að hlaupa 10 kílómetra, hálfmaraþon eða maraþon í Reykjavíkurmaraþon- inu í ágúst. Fleiri álíka forrit má finna í versl- unum snjallsímanna. Má þar nefna Endomondo, sem er einnig vinsælt meðal Íslendinga. Þar má til dæmis hlaupa eftir fyrir fram ákveðnum hlaupaleiðum sem notendur hafa skráð. APP VIKUNNAR Skýringar: App fyrir Apple-tæki App fyrir Android-tæki App fyrir Windows            TÓNLIST ★★★★ ★ Samúel Jón Samúelsson Big band Flottur kokkteill af afróbíti, fönki og djassi frá Stórsveit Samma. - tj DANS ★★★ ★★ Já, elskan Steinunn Ketilsdóttir Skýrt og flott verk en það hefði mátt reyna meira á flytjendurna til að ná aukinni dýpt og styrk. - sgm LEIKHÚS ★★★★ ★ Macbeth Þjóðleikhúsið Ágeng sýning og skiljanleg sem áhuga- fólk um stríð, frið og leikhús ætti ekki að láta fram hjá sér fara. - eb ★★★★ ★ Mýs og menn Borgarleikhúsið Alvörustórsýning á klassísku verki. Svona á jólagóðgæti atvinnuleikhúss að vera. - aþ TÓNLEIKAR ★★★ ★★ Síðasti sjens Retro Stefson í Vodafonehöllinni Frábærir tónleikar hjá skemmtileg- ustu sveit landsins. Ný lög í bland við þau gömlu virkaði vel á áhorfendur sem dönsuðu og sungu hástöfum með. Sveitin var í miklu stuði sem og áhorf- endur. - hh ★★★ ★★ Jólaóratóría Bachs, fyrri hluti Alþjóðl. barokksveitin í Haag ásamt Mótettukór Hallgrímsk. og einsöng. Margt gott en líka margt síðra, og heild- arhljómurinn var einkennilegur. - js BÍÓ ★★★ ★★ Hobbitinn Skemmtilegri sögu gerð nokkuð góð skil. - hva BÆKUR ★★★★ ★ Ísland í aldanna rás 2001-2010 Björn Þór Sigbjörnsson og Bergsteinn Sigurðsson Frábær vettvangsrannsókn um öld öfg- anna. Reyfarakennd lesning sem slær Arnaldi við. - ss ★★★★ ★ Nútíminn er trunta Jennifer Egan Magnað verk sem endurspeglar samtím- ann með áhrifaríkum hætti. - fsb DÓMAR 29.12.2012 ➜ 4.1.2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.