Fréttablaðið - 05.01.2013, Blaðsíða 70
5. janúar 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 42TÍMAMÓT
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓHANN HEIÐAR GUÐJÓNSSON
Skarðshlíð 36d, Akureyri,
lést laugardaginn 29. desember. Útför hans
fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn
8. janúar kl. 13.30. Blóm og kransar eru
vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Heimahlynningu Akureyri og
Krabbameinsfélag Akureyrar.
Elsa Hlín Axelsdóttir
Guðjón Páll Jóhannsson Valborg Inga Guðjónsdóttir
Björk Jóhannsdóttir Steinþór Guðmundsson
barnabörn og systkini hins látna.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og bróðir,
ÁSGEIR GUÐBJARTSSON
er látinn. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Sigurlaug Ásgeirsdóttir Kristinn G. Bjarnason
Guðbjörn Ásgeirsson
Ásmundur Ásgeirsson Hanna Lóa Kristinsdóttir
Bára Ásgeirsdóttir Árni Gústafsson
Hafdís Ásgeirsdóttir Marinó Albertsson
Guðbjartur Gade Ásgeirsson
Sólveig Guðbjartsdóttir
Sveinn Guðbjartsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR ÞÓRIR GUÐMUNDSSON
hljóðfæraleikari,
Hamravík 30,
lést á Krabbameinsdeild Landspítalans við
Hringbraut þann 26. desember. Jarðsett
verður frá Lágafellskirkju þann 9. janúar
kl. 13.00.
Þóra Svanþórsdóttir
Þórir Sigurðsson Aðalheiður E. Gunnarsdóttir
Örn Sigurðsson Lyn Sigurðsson
Heimir Sigurðsson
Hildur Sigurðardóttir Jón Rafn Valdimarsson
barnabörn og langafabörn.
Ástkær mágkona mín,
SIGRÍÐUR ÁSTA GUÐMUNDSDÓTTIR
Hábergi 3,
lést á heimili sínu 30. desember.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þóra Vilbergsdóttir
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir fyrir samúð og sýnda
vináttu við andlát og útför
GUNNARS REYNIS MAGNÚSSONAR
sem lést á Landakoti miðvikudaginn
5. desember sl.
Sigurlaug Zophoníasdóttir
Anna Soffía Gunnarsdóttir Ólafur Kvaran
Guðný Gunnarsdóttir Friðþjófur K. Eyjólfsson
Guðrún Gunnarsdóttir Valþór Hlöðversson
Emilía María Gunnarsdóttir Eyjólfur Guðmundsson
Hákon Gunnarsson
Björn Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
HRÓÐMARS MARGEIRSSONAR
Ögmundarstöðum, Skagafirði.
Sigríður Hróðmarsdóttir Guðmundur Kr. Eydal
Jón Margeir Hróðmarsson María Jónsdóttir
Hróðmar G. Eydal Ríkey G. Eydal
Urður Jónsdóttir Hörn Jónsdóttir
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýju við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
SVANHVÍTAR STELLU
ÓLAFSDÓTTUR
húsmóður,
Grundargerði 6, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks 11G og 13E á Landspítala við
Hringbraut fyrir góða umönnun og hlýlegt viðmót.
Fyrir hönd aðstandenda,
Helena Á. Brynjólfsdóttir Valur Waage
Ólafur Brynjólfsson Hrefna Björnsdóttir
Eyjólfur Brynjólfsson Steinunn Þórisdóttir
Kristín Brynjólfsdóttir Kristján Jónasson
Sverrir Brynjólfsson Guðríður Ólafsdóttir
Dagný Brynjólfsdóttir Gunnar Óskarsson
Fornleifavernd ríkisins og Húsafrið-
unarnefnd ríkisins voru sameinaðar
um áramótin í Minjastofnun Íslands.
Þar ræður Kristín Huld Sigurðardótt-
ir húsum en hún var áður forstöðu-
maður Fornleifaverndar og kveðst
þekkja þann hluta ágætlega. Kristín
Huld segir margt hafa breyst með til-
komu nýrra laga frá Alþingi sem tóku
gildi um áramót og eiga að tryggja að
íslenskum menningararfi verði skil-
að óspilltum til komandi kynslóða. Til
dæmis hafi öll hús sem eru 100 ára og
eldri verið friðuð sjálfkrafa. „Friðlýst-
um húsum hefur fjölgað feikilega. Nú
eru þau orðin milli þrjú og fjögur þús-
und en voru tæplega 500 áður,“ upp-
lýsir hún og bætir við: „Þeir sem eiga
hús sem eru byggð 1925 eða fyrr og
forráðamenn kirkna sem eru byggðar
fyrir 1940 mega ekkert breyta þeim án
þess að leita til Minjastofnunar.“
Húsafriðunarsjóður var efldur,
einkum með auknum framlögum frá
ríki og sveitarfélögum, að sögn Krist-
ínar Huldar. Hún segir fólk geta leitað
í hann þegar aðeins líði fram á árið, ef
það vill laga sín gömlu hús.
Undir Minjastofnun falla gamlir
skrúðgarðar og minningamörk í
kirkjugörðum, svo sem legsteinar, og
flutningur menningarminja úr landi er
líka eitt af því sem hin nýja stofnun á
að fjalla um. „Fólk má ekki flytja hvað
sem er frá Íslandi,“ segir hún. „Þetta
snertir málverk, myndir, mósaíkverk,
höggmyndir, ljósmyndir, kvikmyndir,
bækur, húsgögn, innréttingar og hljóð-
færi. Það má heldur ekki fara með
dýrafræðigögn, grasafræðigögn og
jarðfræðisýni öðruvísi en að um það
sé fjallað fyrst hjá okkur. Fólk þarf
að kynna sér þessi nýju lög á www.al-
thingi.is. Þau eru númer 80/2012. Við
munum líka opna heimasíðu áður en
langt um líður,“ lofar Kristín Huld.
Mismunandi er hversu bannið um
útflutning nær til gamalla hluta. Það
gildir um bækur sem eru 100 ára og
eldri, kort sem eru 200 ára og eldri
og húsgögn sem eru frá aldamótunum
1900 eða eldri. Listmunir mega sumir
ekki vera eldri en 50 ára, það er eldri
en frá 1963. „Í sambandi við útflutning
vil ég geta þess að ef fólk er að flytja
úr landi með minjar þá eiga málin að
fara í ferli hjá okkur en í lögunum eru
undantekningarákvæði vegna útflutn-
ings minja í einkaeigu,“ segir forstöðu-
konan.
Tólf starfsmenn eru hjá hinni nýju
stofnun en Kristín Huld segir að þeim
muni fjölga. „Svo erum við með ráð-
gjafanefndir, fornleifanefnd og húsa-
friðunarnefnd. Einnig erum við í
samstarfi við Þjóðminjasafnið, Nátt-
úruminjasafnið, Þjóðskjalasafnið,
Listasafnið, Stofnun Árna Magnús-
sonar og fleiri ríkisstofnanir og við
störfum á landsvísu því minjaverð-
irnir okkar eru úti um allt land.“ Hún
kveðst vera að setja sig inn í nýja
starfið og horfa bjartsýn fram á veg-
inn. „Það eru spennandi tímar fram
undan. Við munum fara vel með vald-
ið og vanda okkur.“ gun@frettabladid.is
Munum fara vel með
valdið og vanda okkur
Doktor Kristín Huld Sigurðardóttir veitir forstöðu Minjastofnun Íslands sem varð til um
áramótin. Hún hefur mörg mál á sinni könnu því ný lög númer 80/2012 kveða á um
aukna vernd minja, meðal annars takmörkun á fl utningi þeirra úr landi.
KRISTÍN HULD „Ef fólk er að flytja úr landi með minjar þá eiga málin að fara í ferli hjá
okkur,“ segir hinn nýi forstöðumaður Minjastofnunar Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
1848 Franskir skipbrotsmenn koma að landi í Breiðdal eftir
mikla hrakninga í hafi. Þeir höfðu farið frá Noregi í október og
ætlað til Frakklands.
1874 Fyrsta stjórnarskrá Íslands er staðfest af konungi.
1931 Fyrsta barnið fæðist á Landspítalanum tveimur vikum
eftir að hann er tekinn í notkun.
1941 Fjölrituðu bréfi er dreift til breskra hermanna í Reykjavík
og þeir hvattir til að ganga ekki í störf Íslendinga í verkfalli.
1946 Frumsýnd er fyrsta kvikmyndin sem tekin er á Íslandi með
tónum og tali. Hún er um lýðveldishátíðina 17. júní 1944.
1957 Leikfélag Kópavogs er stofnað.
1968 Vorið í Prag hefst.
2010 Forseti Íslands,
Ólafur Ragnar Grímsson,
synjar lögum um ríkis-
ábyrgð vegna Icesave-
skuldbindinga staðfest-
ingar.
MERKISATBURÐIR