Fréttablaðið - 05.01.2013, Blaðsíða 94
5. janúar 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 66
„Gegn minni
betri vitund
hef ég loks
skráð mig á
Twitter.“
LEIKKONAN
MEGAN FOX
GERÐIST
TWITTER-
NOTANDI Í
VIKUNNI EFTIR
AÐ FRÉTTIR AF
ANDLÁTI HENNAR
FÓRU Á FLAKK
UM NETIÐ.
„Þetta er í senn frekar undarlegt,
stórmerkilegt og ákveðinn heið-
ur líka,“ segir áhugaljósmyndar-
inn Katrín Þóra Bragadóttir sem
nýverið uppgötvaði að ljósmynd úr
hennar smiðju er prentuð á stutt-
ermaboli frá merkinu Pyrex Vision.
Merkið er í eigu stílista rapparans
Kanye West, Virgil Abloh.
Um er að ræða tveggja ára gamla
ljósmynd sem Katrín tók af Bryn-
dísi vinkonu sinni. Myndina er að
finna á Flickr-síðu Katrínar þar
sem hún deilir gjarna myndum
sínum. „Það hefur einhver tekið
myndina mína af Flickr-síðunni
og sett í umferð á Tumblr þar sem
Abloh hefur fundið hana og heillast.
Mér er alveg sama þótt einhver
deili myndunum mínum en það er
annað þegar hún er prentuð á fatn-
að og söluvöru án þess að láta vita
eða biðja um leyfi. Hver bolur kost-
ar um 85 dollara stykkið svo þeir
ekki ódýrir.“
Abloh er frægur stílisti í Holly-
wood sem meðal annars sér um
að klæða Kanye West og rappar-
ann ASAP Rocky. Báðir hafa þeir
sést klæðast bolum og peysum frá
merki stílistans með mynd Katrín-
ar við hin ýmsu tilefni.
„Mér var sagt frá þessu í október
og hef haft samband við lögfræð-
ing til að skoða hvernig ég get snúið
mér í þessu máli. Mér skilst að rétt-
urinn sé allur mín megin og það er
í raun merkilegt að myndinni sé
bara stolið án þess að hafa sam-
band við höfundinn,“ segir Katrín,
en það var fyrirsætan sjálf, Bryn-
dís, sem rakst á myndina af sér á
netinu og lét Katrínu vita. „Henni
finnst þetta bara frekar gaman og
auðvitað fyndið líka. Þetta er mjög
fyndið allt saman.“
Katrín hefur ekkert svar feng-
ið að utan en hyggst hafa sam-
band við Myndstef á næstu dögum
til að ganga frekar á eftir þessum
málum. Hún viðurkennir þó að það
sé óneitanlega ákveðinn heiður að
jafn frægur rappari og Kanye West
klæðist bol með mynd eftir hana.
„Það er auðvitað heiður. Ég er
reyndar ekki neinn sérstakur aðdá-
andi West og þykir merkilegra að
ASAP Rocky klæðist myndinni
minni. Þetta er samt stuldur á
mynd sem ég á fullan höfundarrétt
á. Við sjáum hvað setur.“
alfrun@frettabladid.is
Ákveðinn heiður en
frekar undarlegt
Rapparinn Kanye West klæðist bol með ljósmynd úr smiðju áhugaljósmyndar-
ans Katrínar Þóru Bragadóttur en myndin var líklega tekin með ólögmætum
hætti af Flickr-síðu hennar. Katrín hyggst leita réttar síns yfi r hafi ð.
MYND NOTUÐ Í LEYFISLEYSI Tveggja
ára gömul mynd Katrínar Bragadóttur
prýðir stuttermaboli frá merkinu Pyrex
Vision. Myndin var tekin af Flickr-síðu
Katrínar og hyggst hún leita réttar sín.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Í KOKTEILBOÐI Kanye West klæddist bol með mynd Katrínar í kokteilboði ásamt tilvonandi barnsmóður sinni, Kim Kardashian,
og körfuboltahetjunni LeBron James á dögunum.
„Mál á borð við þetta eru að verða algengari og
algengari núna,“ segir Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,
lögfræðingur hagsmunasamtakanna Myndstefs sem
sjá meðal annars um að standa vörð um höfundarrétt.
Harpa segir þau daglega standa í málum á borð
við þetta innanlands en sjaldgæfara sé hins vegar að
málin séu alþjóðleg. „Við erum í bandalagi með höf-
undarréttarsamtökum í hinum Norðurlöndunum en
lengra nær það ekki því miður. Það er miklu flóknara
að leita réttar síns út fyrir landsteinana,“ segir Harpa
og nefnir þá sérstaklega Bandaríkin eins og í tilfelli
máls Katrínar. „Það sem við gerum er að aðstoða við
að hafa samband við höfundarréttarsamtök í við-
komandi landi. Í Bandaríkjunum er annað réttarkerfi
og það getur því verið bæði langt og flókið ferli. Það
gæti jafnvel þurft að ráða sér bandarískan lögfræðing
sem getur verið ansi kostnaðarsamt.“
Harpa segist þó ekki vilja draga úr því að fólk leiti
réttar síns þrátt fyrir að það reynist stundum flókið
mál. „Það verður að koma í veg fyrir ólögmæta
notkun á efni með því að bregðast við. Í þeim til-
vikum þegar um er að ræða augljósan fjárhagslegan
tilgang á því að hagnast á verkum myndhöfunda er
það alvarlegt brot.“
Flókið að leita réttar síns út fyrir landsteinana
SLITU TRÚLOFUNINNI
Dansparið Hanna Rún Óladóttir og
Sigurður Þór Sigurðsson vakti verð-
skuldaða athygli í þáttunum Dans,
dans, dans á RÚV í lok síðasta árs.
Parið hefur dansað saman um ára-
raðir auk þess sem þau voru ástfangin
upp fyrir haus og búin að trúlofa
sig. Eitthvað virðist ástarbloss-
inn þó hafa kulnað því
samkvæmt öruggum
heimildum hafa þau
nú farið hvort sína
leið. Hvort sam-
bandsslitin merki
einnig endalok
þeirra saman á
dansgólfinu
er óvitað.
ELVIS VINSÆLL
Fréttablaðið sagði frá því í nóvember
að Björn Þór Björnsson hefði stofn-
aði hóp á Facebook þar sem aðdá-
endur katta geta deilt myndum og
myndböndum. Tæplega sex hundruð
manns eru nú meðlimir í hópnum og
þar á meðal er söngvarinn Björgvin
Halldórsson og börn hans, Svala og
Krummi. Björgvin smellti inn
mynd af fjölskyldukettinum
Elvis á síðuna og er sá lík-
lega vinsælasti kötturinn þar
inni því 76 manns hefur
líkað við myndina og 36
ummæli hafa fallið um
hana. Þess má geta að
Elvis er af tegundinni
golden persian. - sm
LOKUN TANNLÆKNINGASTOFU
Ég hef hætt störfum sem tannlæknir á Íslandi frá og með áramótum.
Hef ég ráðið mig til framtíðarstarfa í Noregi. Freydís Þóroddsdóttir
tannlæknir, Réttarholtsvegi 3, Reykjavík, S:5885533 hefur tekið yfir allan
rekstur stofu minnar og er með allar upplýsingar er varða mína viðskipta-
vini. Hún býður sjúklinga mína velkomna og ég mæli með henni sem
tannlækni.
Ég þakka fyrir ánægjuleg samskipti á liðnum árum.
Þórkatla Halldórsdóttir, Óðinsgötu 4.
Upplýsingar og skráning á tonheimar.is og í síma 846 8888
Tónheimar - Síðumúla 8 - tonheimar@tonheimar.is
Tónheimar bjóða upp á tónlistarnám fyrir alla
aldurshópa sniðið að þörfum og áhugasviði hvers
og eins.
Láttu drauminn rætast og lærðu að spila þín
uppáhaldslög eftir eyranu.
Vorönn hefst 14. janúar
Ný kennslubók í rytmískum píanóleik
eftir Ástvald Traustason. Sjálfstætt
framhald fyrri bókarinnar sem notið
hefur mikilla vinsælda.
Bók sem margir hafa beðið eftir!
Hljómar í bókstaflegum skilningi 2
PÍANÓNÁM FYRIR ÞIG
Nýtt
Frístundakort
ÞRIÐJA Á LEIÐINNI
Högni Egilsson og félagar í Hjaltalín
eru um þessar mundir að vinna
að þriðja myndbandinu við lög af
plötunni Enter 4. Nýjasta myndbandið
verður við lagið Crack in a Stone og
upptökurnar standa yfir þessa dagana
í hljóðverinu Sundlauginni í Mos-
fellsbæ. Bandaríkjamaðurinn
Yoonha Park leikstýrir því,
en hann gerði líka fyrsta
myndbandið við lag af
plötunni; Lucifer / He
Feels Like a Woman.
Myndbandið verður
frumsýnt í febrúar,
þegar lagið Crack in
a Stone kemur út
á sjö tommu vínyl-
plötu. - sh