Fréttablaðið - 07.06.2017, Page 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 3 3 . T Ö L U B L A Ð 1 8 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 7 . J Ú N Í 2 0 1 8
BJ
Ö
RN
B
ER
G
M
AN
N
9
DAGAR
í HM
Safnaðu öllum leikmönnunum
STJÓRNMÁL Grasrót Vinstri grænna
er afar óánægð með forystu flokksins
fyrir að hafa staðið að framlagningu
frumvarps um breytingu á veiðigjöld-
um sem áttu að færa stórútgerðinni
skattaafslátt. Síðustu sjö mánuðir
hafa verið ansi erfiðir fyrir flokkinn
og skilja margir flokksmenn hvorki
upp né niður í vegferð hans undir for-
ystu Katrínar Jakobsdóttur.
Veiðigjaldafrumvarpið hefur sett
þingstörf á hliðina en rúm vika er
síðan atvinnuveganefnd lagði til
lækkun á veiðigjöldum. Lilja Rafney
Magnúsdóttir, formaður nefndar-
innar, taldi þetta þá vera mikilvægt
mál sem þyrfti að samþykkja.
„Ég skynja reiði meðal flokks-
manna og töluvert öðruvísi og þyngri
tón en áður. Flokkurinn hefur fengið
yfir sig margar gusurnar
síðan ríkisstjórn var
mynduð síðastliðið
haust. Sú reiði sem
kom við stjórnar-
myndun er skiljan-
leg.
Hins vegar
e r þy n g r i
tónn í reið-
inni núna
og þetta
mál ristir
dýpra í
hugum flokksmanna,“ segir Edward
Hákon Huijbens, varaformaður
Vinstri grænna. „Mitt persónulega
mat er að veiðigjaldamálið
þurfi meiri yfirlegu.“
Edward segir VG hafa
fengið á sig nokkuð ómak-
lega gagnrýni á síðustu
mánuðum. Samstarfið hafi
tekið á. Ekki er langt
síðan þingmenn og ráðherrar flokks-
ins skiptu um skoðun á embættis-
færslum dómsmálaráðherra til að
viðhalda stjórnarsamstarfinu.
„Gagnrýni á flokkinn hefur verið
mikil og hún skiptist að mínu mati í
tvennt. Annars vegar strangt og gott
aðhald í félagsmönnum þar sem
virkir félagsmenn veita uppbyggilega
og vandaða gagnrýni,“ segir Edward.
„Hins vegar er svo gagnrýni sem
er að einhverju leyti ómakleg. Við
verðum að muna að flokkurinn fékk
17 prósenta fylgi og er ekki einráður í
ríkisstjórn. Svo virðist sem skuldinni
sé skellt á Vinstri græn fyrir allt sem
aflaga kunni að fara.“ – sa / sjá síðu 4
Mikil ólga innan grasrótar VG
Varaformaður Vinstri grænna segir mun þyngri tón í grasrót flokksins nú en þegar vantraust á dómsmála-
ráðherra var í umræðunni. Grasrótin sé afar ósátt við veiðigjaldahugmyndir atvinnuveganefndar þingsins.
Katrín Jakobsdóttir
og Lilja Rafney
Magnúsdóttir
Fótboltakapparnir Gylfi Sigurðsson og Rúrik Gíslason hittu aðdáendur og stuðningsmenn íslenska karlalandsliðsins í fótbolta í Kringlunni í gær og árituðu treyjur, fótbolta og plaköt í gríð
og erg þegar ljósmyndara bar að garði. Þeir halda brátt út til Rússlands ásamt liðsfélögum sínum en fyrst mæta þeir Gana í vináttulandsleik á Laugardalsvelli í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR