Fréttablaðið - 07.06.2017, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 07.06.2017, Qupperneq 2
Veður Hæglætisveður í dag og líkur á að sjáist til sólar í flestum landshlutum. Hiti 10 til 18 stig, svalast norðvestan til. SJÁ SÍÐU 34 Breiðfylking veipara við Alþingi Veiparar hugðust fjölmenna á þingpalla Alþingis í gær þegar umræða um rafrettufrumvarpið átti að fara fram. Þingfundi var hins vegar frestað óvænt þannig að baráttufólk fyrir aðgengi að rafrettum tók sér stöðu fyrir utan þinghúsið og blés þar á boðaðar breytingar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HEILBRIGÐISMÁL Stjórnarmenn stuðningsmannasveitarinnar Tólf- unnar vildu hafa vaðið fyrir neðan sig og drifu sig í bólusetningu fyrir heimsmeistaramótið í Rússlandi. Sveinn Ásgeirsson, varaformaður Tólfunnar, viðurkennir að hafa ekki pælt í þessu fyrr en hann sá umfjöll- un um ráðleggingar sóttvarnalæknis vegna ferða til Rússlands. „Ég fór nú bara í bólusetningu í gærmorgun. Flestir okkar hafa verið að fara síðustu daga.“ Sveinn verður hluti af hópi Tólfumanna á leiknum gegn Argentínu í Moskvu 16. júní. Samkvæmt upplýsingum frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hefur töluvert verið hringt og spurst fyrir um bólusetningar vegna ferða til Rússlands. Undanfarið hafi orðið einhver fjölgun á bólusetningum en ekki sé hægt að fullyrða hvort það sé eingöngu vegna HM. Til að mynda hafi stórir hópar nýstúdenta farið í útskrifarferðir til Mexíkó síðustu daga sem gæti skýrt hluta af aukn- ingunni. „Almennt hvetjum við fólk til að huga að bólusetningum. Það þarf hver og einn að bera ábyrgð á sjálfum sér,“ segir Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir hjá Embætti landlæknis. Sérstaklega er minnst á mislinga í ráðleggingum sóttvarnalæknis. Þórólfur segir að skipulegar bólu- setningar gegn mislingum hafi haf- ist hér á landi 1976 og nánast alla Íslendinga fædda fyrir 1970 hafa fengið mislinga. Þeir hafi því lítið að óttast. Hins vegar séu alltaf ein- hverjir sem missi af bólusetningum. Líkurnar á því séu meiri hjá þeim sem fæddir séu um það leyti sem breytingar hafa verið gerðar á fyrir- komulagi bólusetninga. Þórólfur segir mislingatilfelli reglulega koma upp í Evrópu. Á síðasta ári greindust rúmlega 20 þús- und tilfelli í álfunni sem var mikil fjölgun frá árinu áður. Rúmlega þrír fjórðu hlutar þessara tilfella komu upp í Rúmeníu, á Ítalíu og í Úkraínu. Í Rússlandi var tilkynnt um 408 til- felli en til samanburðar voru þau 927 í Þýskalandi og 520 í Frakklandi. sighvatur@frettabladid.is Tólfumenn drifu sig í bólusetningu fyrir HM Töluvert hefur verið hringt í Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins undanfarið til að spyrjast fyrir um bólusetningar vegna ferða á HM í Rússlandi. Sótt- varnalæknir hvetur fólk almennt til að huga að bólusetningum. BILL MURRAY Meðlimir Tólfunnar undirbúa sig nú fyrir HM og hafa stjórnarmenn meðal annars drifið sig í bólusetningu áður en þeir halda utan. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Ráðleggingar sóttvarnalæknis Samkvæmt ráðleggingum sótt- varnalæknis eru það einkum þrír hópar sem þurfa að huga að bólusetningu áður en farið er til Rússlands. Í fyrsta lagi börn og unglingar sem ekki hafa verið fullbólusett. Í öðru lagi þeir sem eru eldri en 23 ára og hafa ekki fengið stíf- krampa- og barnaveikibólusetn- ingu síðan í grunnskóla. Í þriðja lagi allir fæddir eftir 1970 sem hafa hvorki veikst af misling- um né verið bólusettir gegn þeim. DÓMSMÁL Íbúar í Mjóstræti 2b í Reykjavík þurfa að fjarlægja þvottavél sína úr rými sem þau eiga í sameign með konu sem býr að Bókhlöðustíg 8. Deila um staðsetningu þvottavélar- innar hefur staðið yfir í tvo tæpa tvo áratugi eða síðan árið 1998. Málið fór fyrir kærunefnd fjöl- eignarhúsamála árið 2000 sem taldi óheimilt að hafa þvottavélina þar. Hálfu ári síðar freistaði konan þess að fá þvottavélina fjarlægða með aðfarar- gerð en þeirri kröfu var hafnað í hér- aði og Hæstarétti. Héraðsdómur féllst síðan á eignaskiptahlutfallakröfu konunnar með dómi árið 2003. Núverandi eigendur eignuðust Mjóstrætið árið 2016 og komu skömmu síðar fyrir þvottavél í rým- inu. Síðan þá hefur verið deilt um staðsetningu hennar. „Hvort sem umrædd þvottavél hefur verið staðsett í sameignarrým- inu, og þá á hvaða grundvelli, liggur fyrir að enginn samningur var á milli þáverandi eigenda fasteignarinnar um slíka hagnýtingu og engar þing- lýstar heimildir styðja þau sjónarmið stefndu að þar sé gert ráð fyrir þvotta- húsi,“ segir í nýjum dómi í héraði. Þar var fallist á kröfu konunnar um að óheimilt væri að hafa þvottavélina í sameigninni. Eigendur Mjó- strætisins þurfa að auki að greiða ko n u n n i 7 5 0 þúsund krónur í málskostnað. – jóe Áralangt karp um þvottavél Frá Mjóstræti FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR KOSNINGAR Meirihlutaviðræður í Reykjavík ganga vel að sögn Dóru Bjartar Guðjónsdóttur, oddvita Pírata. „Við héldum áfram þessari vegferð í gegnum málaflokkana, við förum síðan aftur yfir einhver mál til að leysa ágreiningsefni.“ Píratar, Samfylking, VG og Við- reisn funda klukkan eitt í dag í FB. Um framhaldið segir Dóra: „[Það] gæti gengið að klára þetta á næstu dögum. Skýrist sennilega betur í dag.“ Verka- skipting hefur ekki verið rædd form- lega. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, odd- viti Viðreisnar, hefur sagt að einhver oddvitanna verði borgarstjóri. – tg Viðræður halda áfram í FB í dag Dóra Björt Guðjónsdóttir 7 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.