Fréttablaðið - 07.06.2017, Side 24

Fréttablaðið - 07.06.2017, Side 24
Þjónustumiðstöð tó li t fólkn s ar s N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Amadeus borðstofuhúsgögn Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-15 Komið og skoðið úrvalið Ferðaþjónustan er komin til að vera og er orðin margfalt stærri atvinnuvegur en sjávarútveg- urinn. Það má reikna út tekjurnar á ýmsan hátt, en óumdeilanlegt er að þær eru umtalsverðar. Stefna stjórnvalda í málefnum ferðaþjónustu til framtíðar á Íslandi má ekki einskorðast við spurning- una um hvort við ætlum að koma á komugjöldum eða gistináttagjaldi. Málefnið er mun flóknara en svo. Yfir 90% ferðamanna sem koma til Íslands segja, að aðdráttaraflið sé óspillt og ósnert náttúra og má það til sanns vegar færa – hér er að finna stærstu flæmi óspilltrar nátt- úru í Evrópu og náttúran og landið er einstakt í ljósi þess að Ísland er eldvirkasta svæði veraldar eins og er og auk þess eitt yngsta og við- kvæmasta land í heimi. Jafnframt býr hér fámenn þjóð, sem er bara að gera það býsna gott þegar kemur að hugviti, þekkingu og listum og getur á næstu árum stigið mörg stór skref fram á við á þeim sviðum. En spurningin sem þarf að svara er: Hver á aðkoma ferðamannsins að vera að landi og náttúru? Hver á aðkoma hans að vera að þjóðinni sjálfri, sögu hennar og menningu? Hvernig viljum við að gestir okkar komi að fjörðum landsins, fjöllum og fossum? Eiga þeir að sjá stórar virkjanir og háspennulínur? Eiga þeir að sjá þorp þar sem helmingur húsa stendur auður, eingöngu notuð sem sumarhús fyrir brott- fluttar fjölskyldur? Eiga þeir að sjá þorp þar sem býr nær eingöngu erlent vinnuafl að bjarga auðæfum hafsins? Eiga þeir að aka um firði fulla af fiskeldiskerjum? Eiga þeir að aka fram á risavaxin álver, þar sem engir Íslendingar vinna lengur, aðeins erlent verkafólk? Taka þarf afstöðu til langs tíma Hvernig viljum við byggja upp „leik- sviðið“, sem mætir þessum erlendu ferðamönnum sem færa okkur gjaldeyrinn í staðinn? Þeirri spurningu þarf að svara. Og það þarf að taka afstöðu til langs tíma – það þýðir ekki að hugsa til skemmri tíma en 70-80 ára hið minnsta. Af hverju? Tökum dæmi út frá spurningunni hvort æskilegt sé að ferðamenn hitti heimamenn á ferðum sínum um landið: Hér búa tæplega 350 þúsund manns og fólksfjölgunin hefur verið mikil í rúmlega hundrað ár – um 30 þúsund Íslendingar búa erlendis og að sama skapi býr hér álíka margt erlent fólk, margt til frambúðar, annað til skemmri tíma. Það heldur uppi fiskvinnslunni, þjónustu við aldraða, sér um að þrífa skólana okkar og sjúkrahúsin. Og það held- ur uppi ferðaþjónustunni. Í ferða- þjónustu starfa rúmlega 20 þúsund manns og af þeim fjölda er senni- lega helmingur að minnsta kosti erlent vinnuafl. Ef við ætluðum okkur að fram- leiða Íslendinga, sem tækju við af hinu erlenda vinnuafli, myndi það taka okkur um 70-80 ár að búa þá til, fæða þá, mennta og þjálfa, áður en öll störf í ferðaþjónustu væru skipuð Íslendingum eingöngu. Og þá hefði störfum í ferðaþjónustu jafnframt fjölgað og væru eflaust orðin um 40 þúsund, ef ekki meir – og fjöldi ferðamanna þá vaxið úr þeim 2,5 milljónum sem nú er spáð upp í jafnvel 5-6 miljónir. Nú er það varla mögulegt, jafn- vel ekki æskilegt að „Íslendings- væða“ ferðaþjónustuna. Dæmið er fyrst og fremst sett fram til að örva hugaraflið og sýna fram á, að þörfin fyrir stefnumótun í ferðaþjónustu er orðin æpandi! Ríki og sveitarfélög, fyrirtæki í ferðaþjónustu og aðrir hagsmunaaðilar verða að segja til um hvernig sinnt skuli óskum hinna erlendu ferðamanna: að þeir fái að njóta þeirrar vöru sem þeir komu hingað til að kaupa: ósnortna, óspillta náttúru. Er ekki kominn tími til að setjast niður og koma skipulagi á mála- flokkinn – og eigum við ekki að gera það á þann hátt sem vænlegastur er til árangurs – í góðri samvinnu, í lausnamiðuðu verkferli og af ítrustu virðingu fyrir landi, náttúru, þjóð, sögu og menningu? Auðlindin Ísland Íslendingar eru heimsþekktir fyrir að vera ansi stoltir af landinu sínu, vatninu, loftinu, fótboltanum eða í stuttu máli öllu sem kemur frá Íslandi. Þeir samein- ast um að standa saman til að styðja og hvetja hver annan. En hvað um íslenskt tungumál? Er hægt að segja sömu sögu um það? Ég flutti til Íslands árið 2001. Eins og margir aðrir ætlaði ég að vera aðeins í sex mánuði og fara svo aftur heim til Litháens. Þó að ég ætlaði að stoppa stutt fór ég strax á íslensku- námskeið. Mér fannst það mjög merkilegt að læra tungumál sem aðeins 300.000 manns geta talað í heiminum öllum, einnig fannst mér sjálfsagt að byrja strax að læra, jafnvel þó að ég ætlaði ekki að búa hér á landi. Ég vildi bera virðingu fyrir íslenskri þjóð og íslensku tungu- máli. Það er ansi góð tilfinning að geta boðið góðan dag á íslensku og geta átt smá spjall á þeirra tungu- máli. Með því að læra íslenskt tungumál og sækja íslenskunám- skeið er hægt að læra um venjur, hátíðir, óskrifaðar reglur, menn- ingu, bókmenntir og margt annað í leiðinni. Þar opnast nýr heimur sem hvetur mann til að kynnast íslenskri menningu enn betur og taka þátt í samfélaginu. Að tilheyra hópnum og vera einn af þeim. Eins og margir aðrir sem voru í sömu sporum og ég, erum við hér ennþá 17 árum seinna á Íslandi. En ég kann tungumálið og ég tek virkan þátt í samfélaginu. Ég get valið mér starf, ég get gert allt sem ég vil og verið stolt af því sem ég geri. Ég byggi brýr milli Litháens og Íslands og er bæði Lithái og Íslendingur. Við eigum 3 börn sem tala bæði góða íslensku og litháísku. Það eru allt of margir sem hugsa að það sé nóg að kunna aðeins ensku af því að þeir ætli ekki að búa hér lengi. Kannski eitt, tvö ár eða kannski þangað til þau hafa safnað nógu miklu af peningum til að geta flutt aftur heim. Því miður er raunin oft þannig að fólk ílengist hér á Íslandi, tekur ekki þátt í íslensku samfélagi og sorglegast af öllu að börnin finna mest fyrir því. Það er mjög óþægileg tilfinning að bíða og bíða og bíða aðeins meira því fólk er ekki að lifa lífinu heldur er í einhvers konar biðstöðu. Það er alltaf á leiðinni heim en svo líða kannski eitt, tvö … fimm eða fleiri ár og það er enn að bíða, enn að safna, enn að hugsa. Börnum reynist það afar erfitt að meðhöndla svona aðstæður og oft vilja þau ekki læra íslensku því þau sjá engan tilgang því þau eru alveg að fara heim aftur. Ég vinn sem grunnskólakenn- ari í Háaleitisskóla uppi á Ásbrú og vann svo í 9 ár í leikskólanum Hjallatúni og sú þróun sem ég sé á hverjum einasta degi veldur mér áhyggjum hvað verður um íslenskt tungumál í náinni framtíð. Það sem er að gerast nú þegar er að börnin sem fæðast hér á Íslandi standa oft á tíðum frekar illa í íslensku. Það eru eflaust margar ástæður fyrir því en ein af þeim er að Íslendingar gera ekki nógu miklar kröfur til þess að foreldrar þeirra læri íslensku og beri virðingu fyrir samfélaginu sem þeir búa í. Og ekki nóg með það finnst mér enn meira sláandi að Íslendingum finnst það svo krúttlegt þegar börnin þeirra tala ensku og það er að aukast að foreldrar svara þeim á ensku á móti. Margir skólar eru í vandræðum því nemendur tala ensku sín á milli þrátt fyrir það að oft á tíðum eru þau öll íslensk. Öllum finnst enska svo skemmtileg sem eflaust er líka rétt en hvað um íslensku? Af hverju er það svona krúttlegt að tala ensku en alls ekki krúttlegt að tala góða íslensku? Af hverju erum við ekki stolt af tungu- málinu sem aðeins 300.000 manns geta talað? Og hvað um ferðamenn? Margir þeirra eru að koma til Íslands ekki aðeins í þeim tilgangi að skoða landið heldur finnst þeim einnig mjög áhugavert að heyra íslenskt tal. Þeir verða sennilega líka fyrir vonbrigðum ef það verður aðeins töluð krúttleg enska hér á landi. Ég hef mjög mikinn áhuga á tungumálum og mér finnst íslenska persónulega mjög merkilegt tungu- mál. Vonandi verður eitthvað gert svo það finnist öllum á Íslandi mikilvægt að tala íslensku og að það verði allir mjög stoltir af íslensku tungumáli. Hvers virði er íslenska? Hvernig viljum við að gestir okkar komi að fjörðum landsins, fjöllum og fossum? Eiga þeir að sjá stórar virkj- anir og háspennulínur? Eiga þeir að sjá þorp þar sem helmingur húsa stendur auður, eingöngu notuð sem sumarhús fyrir brottfluttar fjölskyldur? Eiga þeir að sjá þorp þar sem býr nær eingöngu erlent vinnuafl að bjarga auðæfum hafsins? Þórey Anna Matthíasdóttir Jakob S. Jónsson leiðsögumenn Jurgita Millerienė grunnskóla- kennari Af hverju er það svona krútt- legt að tala ensku en alls ekki krúttlegt að tala góða íslensku? Af hverju erum við ekki stolt af tungumálinu sem aðeins 300.000 manns geta talað? Við erum að upplifa einstaka tíma, fjórða iðnbyltingin er skollin á. Tæknifram- farir hafa tekið stór skref síðustu ár og ekki munu skrefin minnka á næstu misserum. Þetta mun leiða til ýmissa breytinga fyrir tilveru okkar og margir spretta fram á sjónar- sviðið til að kynna sína framtíðar- sýn. Það sem við hins vegar verðum að hafa í huga er að eins og oft áður í tengslum við tæknina þá snúast þessar breytingar um svo miklu meira en tækni. Mannlegi þátturinn spilar nefnilega stórt hlutverk og líklega stærsta hlutverkið. Við þurfum að leiða þessar breytingar og stýra með þeim hætti að þær þjóni okkur sem best en það þýðir að fjórða iðnbyltingin er ekki einkamál tækniheima. Bæði atvinnulíf og samfélag þurfa að sýna frumkvæði og skilgreina hvaða ógnir og tækifæri felast í þessari byltingu. Meðal annars, eins og margoft hefur komið fram munu störf breytast enn meir en við höfum áður séð, sum munu hverfa og önnur ný birtast. Eitt er þó ljóst og það er að mannleg samskipti munu skipta meira máli en áður og því verður færni á því sviði sífellt verðmætari. Á sviði viðskipta er gjarnan talað um viðskiptagreind þar sem við vinnum með hvernig gervigreind getur í viðskiptalegum tilgangi hjálpað okkur að ná betri árangri og hvernig við getum nýtt hana til að ná viðskiptalegum mark- miðum. Við sjáum nú þegar dæmi um þetta þar sem fyrirtæki eins og Facebook notar gervigreind til að kortleggja hegðun notenda sinna sem það nýtir sér síðan í viðskipta- legum tilgangi. Þetta leiðir auðvitað hugann að mörgum atriðum eins og til dæmis siðfræði sem er auðvitað samofin mannlega þættinum. Það munu koma upp, og hafa komið upp, mörg siðferðileg álitamál sem þarf að taka afstöðu til í tengslum við fyrrnefnda byltingu og þá er eins gott að mannvitið fái að koma þar nærri. Við getum ekki látið tæknina um að tækla þau mál. Það er sama á hvaða sviði við störfum, við þurfum að taka þátt í framþróuninni og megum ekki bara láta tæknina ráða för. Það eru gríðar- lega spennandi tímar fram undan svo framarlega sem „vélarnar“, svo maður vísi í kvikmyndina um Tor- tímandann, fái ekki að taka völdin. Fjórða iðnbyltingin er ekki einkamál tækniheima ... mannvitið verður að fá að vera með Sigurður Ragnarsson forseti viðskipta- deildar Háskól- ans á Bifröst 7 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R24 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.