Fréttablaðið - 07.06.2017, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 07.06.2017, Qupperneq 42
HANDBOLTI „Æfingarnar hafa gengið vel og ég hef verið mjög ánægður með leikmennina. Það vantar ekk- ert upp á það. Tempóið á æfing- unum hefur verið hátt og leikmenn ósérhlífnir. Það var mjög erfitt að velja þennan 16 manna hóp. Mark- miðið var að búa til breiðan hóp leikmanna sem gætu staðið lands- liðinu til boða og ég tel að það hafi tekist. Ég er búinn að kynnast mörg- um leikmönnum,“ sagði Guðmund- ur Guðmundsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, sem tilkynnti í gær 16 manna hóp sem fer til Litháens og mætir þar heima- mönnum í fyrri leik í umspili um sæti á HM 2019. Eitt og annað vekur athygli í vali Guðmundar. Ólafur Gústafsson er t.a.m. í hópnum en hann hefur ekki spilað með landsliðinu í nokkur ár vegna þrálátra meiðsla. Stefán Rafn Sigurmannsson var valinn í stað Bjarka Más Elíssonar sem hefur farið á síðustu tvö stórmót og Ágúst Elí Björgvinsson verður Björgvini Páli Gústavssyni til halds og trausts. Aron Rafn Eðvarðsson er meiddur sem og Gísli Þorgeir Kristjánsson. Guðmundur talar af mikilli virð- ingu um litháíska liðið og segir það sterkara en flestir halda. Búnir að kortleggja þá „Ég held að það séu margir sem van- meti það en við gerum það ekki. Þeir spila sérstaklega vel á heima- velli. Sóknarleikurinn er mjög vel skipulagður og þeir spila bara sinn bolta. Við teljum okkur vera búna að kortleggja þá eins vel og við getum. Í okkar huga er ekkert van- mat,“ sagði Guðmundur. Rétthenta skyttan Jonas Truchan- ovicius, nýkrýndur Evrópumeistari með Montpellier, er þekktasti leik- maður Litháens. Guðmundur segir að leikstjórnandinn Aidenas Malas- inkas sé einnig mjög öflugur. „Hann er heilinn í liðinu. Þeir eru líka með góða línumenn og eru árásargjarnir í vörninni. Þetta er mjög gott lið og við þurfum að hafa verulega fyrir því að vinna þá,“ sagði Guðmundur. Litháar spiluðu tvo vináttulands- leiki við Hvít-Rússa á dögunum, unnu fyrri leikinn 32-28 en töpuðu þeim seinni 38-36. Engar áhyggjur af leikforminu Fjórir leikmenn í íslenska hópn- um léku í Olís-deildinni á síðasta tímabili. Nokkrar vikur eru síðan tímabilið kláraðist en þrátt fyrir það hefur Guðmundur ekki áhyggjur af leikformi þessara leik- manna. „Við höfum spilað mjög mikið á æfingum og reynt að gefa þeim eins mikinn spiltíma og kostur er. Ég held að þetta verði ekki vandamál,“ sagði Guðmundur. Selfyssingurinn Elvar Örn Jónsson lék sem skytta í Gulldeildinni í Nor- egi í fyrstu leikjunum eftir að Guð- mundur tók við landsliðinu. Hann er hins vegar hugsaður sem miðju- maður í leikjunum og mun stýra leik íslenska liðsins ásamt sveitunga sínum, Janusi Daða Smárasyni. Þá sé alltaf möguleiki að nota Aron Pálm- arsson sem miðjumann. Traust lagt á Daníel og Ólaf Guðmundur ætlar áðurnefndum Ólafi Gústafssyni hlutverk í varnar- leik Íslands. Sömu sögu er að segja af Haukamanninum Daníel Þór Ingasyni. „Ég er með pör í miðri vörninni; Daníel eða Ólafur með Vigni [Svav- arssyni] eða Arnari Frey [Arnars- syni],“ sagði Guðmundur sem vill sem oftast nota einungis eina skipt- ingu milli varnar og sóknar. „Við erum búnir að fara mjög gaumgæfilega yfir varnarleikinn. Þeir munu keyra mjög grimma hraða miðju á okkur og við þurfum að vera klárir fyrir það. Við höfum eytt miklum tíma í varnarleikinn en auðvitað höfum við líka æft sóknar- leikinn. ingvithor@frettabladid.is Í okkar huga er ekkert vanmat Landsliðsþjálfarinn Guðmundur Guðmundsson tilkynnti í gær hvaða 16 leikmenn mæta Litháen í fyrri leik liðanna í umspili um sæti á HM 2019. Hann er ánægður með hvernig æfingar hafa gengið. Guðmundur segir Litháa vera með sterkt lið sem beri að varast. Guðmundur Guðmundsson á blaðamannafundinum í gær ásamt Guðmundi B. Ólafssyni, formanni HSÍ, og Guðjóni Val Sigurðssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Hópurinn sem mætir Litháen Markverðir: Ágúst Elí Björgvinsson Björgvin Páll Gústavsson Vinstra horn: Guðjón Valur Sigurðsson Stefán Rafn Sigurmannsson Vinstri skyttur: Aron Pálmarsson Daníel Þór Ingason Ólafur Guðmundsson Ólafur Gústafsson Miðjumenn: Elvar Örn Jónsson Janus Daði Smárason Hægri skyttur: Ómar Ingi Magnússon Ragnar Jóhannsson Rúnar Kárason Hægra horn: Arnór Þór Gunnarsson Línumenn: Arnar Freyr Arnarsson Vignir Svavarsson Það var mjög erfitt að velja þennan 16 manna hóp. Markmiðið var að búa til breiðan hóp leikmanna sem gætu staðið landsliðinu til boða og ég tel að það hafi tekist. Guðmundur Guðmundsson Ég fór út síðasta haust til að prófa eitthvað nýtt, ég vildi komast út úr þægindarammanum á Kópavogsvelli ... Þetta leit hrikalega vel út á blaði og það var frábært að búa þarna þó að fótboltinn hefði mátt ganga betur. Fanndís Friðriksdóttir, leikmaður íslenska kvennalandsliðsins FÓTBOLTI „Þetta er hreint út sagt dásamlegt, ég kann mjög vel við mig hérna á Blikavellinum og í bláa búningnum svo ég get ekki kvartað,“ sagði Fanndís Friðriksdóttir, leik- maður íslenska kvennalandsliðsins, fyrir æfingu í gær en fram undan er leikur gegn Slóveníu á mánudaginn í undankeppni HM 2019. Ísland er í lykilstöðu og getur náð toppsæti riðilsins á ný þegar tvær umferðir eru eftir með sigri. „Við vitum hvað við erum að fara út í þó að þær séu svolítið óút- reiknanlegar. Þú veist ekki hvaða lið kemur út á völlinn því þær geta gert stórfurðulega hluti og frábæra hluti. Þegar leikið er gegn lakari andstæðingum er það oft þolin- mæðisvinna að brjóta ísinn en um leið og fyrsta markið kemur færist ró yfir hlutina.“ Heimsmeistaramótið 2019 fer fram í Frakklandi en Fanndís hefur verið í atvinnumennsku hjá Mar- seille undanfarið ár. Lítið gekk innan vallar og féll Marseille úr efstu deild á dögunum. Hún ætlar að skoða sín mál eftir landsleikjahléið. „Ég tók þá ákvörðun að koma heim og klára þennan landsleik og skoða þetta bara eftir hann. Ég kláraði síð- asta leikinn minn úti í síðustu viku og þá tók við að pakka og koma mér heim en ég ákvað að ég myndi ekki taka ákvörðun strax,“ sagði Fanndís sem hefur fengið tilboð. „Það eru nokkur félög búin að hafa samband en ég er þegar búin að neita nokkrum félögum. Ég sest almennilega yfir þetta í næstu viku.“ Hún viðurkenndi að dvölin í Frakklandi hefði reynst töluvert erfiðari en hún bjóst við. „Þetta var erfiðara en ég bjóst við og öðruvísi en væntingar mínar voru en það voru hlutir sem ekki var hægt að sjá fyrir. Ég nennti ekki að setja mig að fullu inn í þetta en það var eitthvað sérkennilegt and- rúmsloft í liðinu og liðsheildin stór- furðuleg. Það gekk á ýmsu og það er eiginlega gott að þetta er búið.“ Þrátt fyrir það er hún ánægð með reynsluna. „Ég fór út síðasta haust til að prófa eitthvað nýtt, ég vildi komast út úr þægindarammanum á Kópavogs- velli og þetta var það sem var mest spennandi á borði. Þetta leit hrika- lega vel út á blaði og það var frábært að búa þarna þó að fótboltinn hefði mátt ganga betur.“ – kpt Er þegar búin að segja nei við nokkur félög Það var létt yfir Fanndísi á landsliðsæfingu í gær enda komin á kunnuglegar slóðir á Kópavogsvelli í æfingatreyju íslenska landsliðsins.FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR 7 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R30 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.