Fréttablaðið - 07.06.2017, Síða 64

Fréttablaðið - 07.06.2017, Síða 64
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800 Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Benedikts Bóasar Hinrikssonar BAKÞANKAR Nýtt Nýtt GRILL- MATURINN ELSKAR Nú tvær nýjar tegundir! Salöt frá 649 kr. Opið allan sólarhringinn í öllum verslunum Rúmlega 2.000 miðar voru óseldir á síðasta leik Íslands áður en drengirnir okkar fara á Heimsmeistaramótið þegar þessi grein er skrifuð. Það er ekki nógu gott. Það er fátt skemmti- legra en að fara á völlinn, hvað þá á landsleiki. Miðaverð er auðvitað mjög hátt. Það er verið að verðleggja marga út af þessari skemmtun. Góð sæti kosta 7.500 krónur en þau lélegustu 3.500. Í ljósi umræðunnar um nýjan þjóðarleikvang er auðvitað hálf bagalegt fyrir alla sem standa að því verkefni að það sé ekki mikill áhugi á að koma á völlinn. Það á jú að byggja 20 þúsund manna völl og er gert er ráð fyrir að það sé alltaf uppselt. Það skrýtnasta í þeirri umræðu er að nefndir eftir nefndir, og bara nefndu það, komust að þeirri niður- stöðu að tvær niðurstöður væru bestar. Ekki fleiri og ekki færri. Það finnst mér skrýtið. Enda hefði ég haldið að það væri hægt að koma með svona 10 hugmyndir að nýjum velli, stórum og smáum. Ísland þarf samt nýjan völl og nýjan leikvang. En hann þarf ekki að taka 20 þúsund manns. Hann þarf bara að rúma 10-12.000 manns. Það er ljóst að KSÍ, ríkið og Reykjavíkurborg hafa ekki átt mörg samtöl við aðra en ráðgjafarfyrir- tækið Lagardère Sports og ætla að treysta því í einu og öllu. Skýrsla KPMG um nýjan völl bendir þó á að Lagardère Sports gæti haft mikilla hagsmuna að gæta verði verkefnið að veruleika sem kalli á skynsamlega rýni helstu hagsmunaaðila í ráðleggingar fyrir- tækisins. Það eitt segir mér að það var ekki staðið nógu vel að þessu. Það vantar meiri fagmennsku enda á þessi nýi völlur að kosta marga milljarða. Það má ekki bara leika sér og ég kalla eftir meiri fagmennsku. Áfram, Ísland

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.