Fréttablaðið - 07.06.2017, Síða 64
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800
Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Benedikts Bóasar
Hinrikssonar
BAKÞANKAR
Nýtt
Nýtt
GRILL-
MATURINN
ELSKAR
Nú tvær nýjar tegundir!
Salöt frá
649 kr.
Opið allan
sólarhringinn
í öllum verslunum
Rúmlega 2.000 miðar voru óseldir á síðasta leik Íslands áður en drengirnir
okkar fara á Heimsmeistaramótið
þegar þessi grein er skrifuð. Það er
ekki nógu gott. Það er fátt skemmti-
legra en að fara á völlinn, hvað þá á
landsleiki.
Miðaverð er auðvitað mjög hátt.
Það er verið að verðleggja marga
út af þessari skemmtun. Góð sæti
kosta 7.500 krónur en þau lélegustu
3.500.
Í ljósi umræðunnar um nýjan
þjóðarleikvang er auðvitað hálf
bagalegt fyrir alla sem standa að
því verkefni að það sé ekki mikill
áhugi á að koma á völlinn. Það á jú
að byggja 20 þúsund manna völl og
er gert er ráð fyrir að það sé alltaf
uppselt.
Það skrýtnasta í þeirri umræðu
er að nefndir eftir nefndir, og bara
nefndu það, komust að þeirri niður-
stöðu að tvær niðurstöður væru
bestar. Ekki fleiri og ekki færri. Það
finnst mér skrýtið. Enda hefði ég
haldið að það væri hægt að koma
með svona 10 hugmyndir að nýjum
velli, stórum og smáum.
Ísland þarf samt nýjan völl og
nýjan leikvang. En hann þarf ekki
að taka 20 þúsund manns. Hann
þarf bara að rúma 10-12.000 manns.
Það er ljóst að KSÍ, ríkið og
Reykjavíkurborg hafa ekki átt mörg
samtöl við aðra en ráðgjafarfyrir-
tækið Lagardère Sports og ætla að
treysta því í einu og öllu.
Skýrsla KPMG um nýjan völl
bendir þó á að Lagardère Sports
gæti haft mikilla hagsmuna að gæta
verði verkefnið að veruleika sem
kalli á skynsamlega rýni helstu
hagsmunaaðila í ráðleggingar fyrir-
tækisins.
Það eitt segir mér að það var ekki
staðið nógu vel að þessu. Það vantar
meiri fagmennsku enda á þessi nýi
völlur að kosta marga milljarða. Það
má ekki bara leika sér og ég kalla
eftir meiri fagmennsku.
Áfram, Ísland