Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2019, Blaðsíða 6
6 13. desember 2019FRÉTTIR
Rekstrarumsjón ehf. • Dalshrauni 11, 220 Hafnarfirði • S: 571 6770 • www.rekstrarumsjon.com • umsjon@rekstrarumsjon.com
LÁTIÐ OKKUR UM REKSTUR
HÚSFÉLAGSINS
Við sérhæfum okkur í umsjón með rekstri húsfélaga
og bjóðum trausta og faglega þjónustu á góðu verði
Hafðu samband og fáðu tilboð strax í dag!
BARNABÖRNIN BJÖRGUÐU LÍFI SISSU
n Örlagaríkur dagur í lífi Sissu n Ljóst að lífið yrði aldrei samt
H
inn 19. september árið
2006 var örlagaríkur
dagur í lífi Sólveigar
Sigurðardóttur. Hún
fékk skyndilega heilablæðingu
og lamaðist í kjölfarið á vinstri
hlið líkamans. Lífið umturnaðist
en Sólveig og fjölskylda vonast
nú til að hún geti gengist undir
læknismeðferð í Bandaríkjunum.
Kippt út úr lífinu
Sissa hafði mánuðina á undan
gengið á milli lækna vegna þráláts
höfuðverkjar en ávallt fengið þá
greiningu að um væri að ræða
vöðvabólgu eða mígreni. „Ég
var heima að þrífa heita pottinn
hjá mér þegar ég hneig niður og
missti meðvitund,“ segir Sissa
en það reyndist henni til happs
að barnabörn hennar tvö voru
hjá henni þegar þetta gerðist og
hringdu í föður sinn. Segist Sissa
eiga þeim lífið að þakka.
Sissu var kippt út úr lífinu í
september 2006.
Sissa var flutt á Landspítalann
þar sem henni var haldið sofandi
í nokkra daga. Hún hafði fengið
stórt heilablóðfall. Þegar hún
vaknaði var ljóst að líf hennar yrði
aldrei eins og áður.
Á þessari örlagaríku stund var
henni kippt út úr öllum daglegum
venjum lífsins. Sissa lamaðist
á vinstri hlið og hefur síðan þá
þurft að læra lifa upp á nýtt. Við
tók löng og ströng endurhæfing
inni á Grensás og seinna
meir Reykjalundi og margar
heimsóknir til sjúkraþjálfara enn
þann dag í dag.
Hún var algjörlega lömuð á
vinstri hlið líkamans og hafði auk
þess misst sjónina á vinstra auga.
„Þarna var mér algjörlega kippt
út úr öllu, öllu daglegu lífi. Ég
gat ekki gengið eða notað vinstri
hendina og ég gat ekki keyrt, því
það blæddi yfir sjónsviðið.“
Fyrir heilablóðfallið var Sissa
í fullu starfi, sótti nám og sinnti
fjölskyldunni. Það var því mikil
breyting, og töluvert áfall, að
verða skyndilega háð öðrum með
dagleg störf.
„Ég man að ég lá á
Grensásdeildinni og sá hjólastól
við hliðina á rúminu mínu. Ég
horfði upp í loftið og hugsaði
bara: Hvernig á ég eiginlega að
lifa svona?“
Sissa getur í dag ekki gengið
nema með stuðningi, enda er
jafnvægið algjörlega farið. Þá
er hún, sem fyrr segir blind, á
vinstra auga. Hún nýtur liðveislu
við heimilisstörf. „Það versta er
að geta ekki gengið, að geta ekki
verið sjálfstæð. Að geta ekki farið
neitt ein, eða gert neitt ein.“
Sissa er rík af börnum og
barnabörnum
Ný von
Í október síðastliðnum ræddi
DV við parið Eydísi Hlíðar og
Herbert Heiðarsson en Herbert
er lamaður eftir heilablæðingu
og er nú á leið í meðferð hjá
INR (Institute of Neurological
Recovery) í Flórída.
Meðferðin gengur út á að lyfi
er sprautað inn í mænugöngin og
látið renna með blóðrásinni upp
í heila. Það mun draga verulega
eða alveg úr bólgum í heilanum
og taugavefjum.
Meðferðin hefur gefið afar
góða raun erlendis og var meðal
annars fjallað ítarlega um árangur
meðferðarinnar í bandaríska
fréttaskýringaþættinum 60
minutes.
Afkomendur Sissu hafa nú
hrundið af stað söfnun fyrir hana
og eru ákveðnir í að koma henni
út í meðferðina. Fjölskyldan
hefur fengið að vita að kostnaður
við meðferðina er í kringum 2,5
milljónir, og er þá innifalið flug,
gisting og uppihald fyrir Sissu og
eina fylgdarmanneskju.
„Við höfum verið í sambandi
við INR til þess að Sissa fái að
komast út í meðferðina. Þessi
meðferð er kostnaðarsöm en
hefur sýnt góðar batahorfur
og bindum við miklar vonir
við hana,“ segir Katla Rún
Baldursdóttir, tengdadóttir Sissu.
„Núna krossum við bara fingur.“
Sissa bindur allar vonir við
að meðferðin vestanhafs skili
árangri
„Ég er hreinlega að deyja, ég
er svo spennt,“ segir Sissa, en
fáir möguleikar eru í boði hér
á landi fyrir þá sem hafa fengið
heilablæðingu. Sissa bindur
því gríðarlega miklar vonir við
meðferðina í Bandaríkjunum.
„Ég veit, að ef það er einhvers
staðar lækning. Þá er það þarna.
Maður reiknar ekki endilega með
100 prósent árangri. En bara ef
höndin kæmi aftur, það væri það
stórkostlegt. Ef ég gæti bara farið að
ganga aftur. Upplifa tilfinninguna
við að taka barnabörnin mín í
fangið. Það er allt sem ég bið um.
Þá yrði ég alsæl.“ n
Þeir sem sjá sér fært að leggja
Sissu lið er bent á eftirfarandi
styrktarreikning.
kt. 020761-4239
0146-26-20207
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is