Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2019, Blaðsíða 36
36 FÓKUS 13. desember 2019
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
Ef jólasveinarnir þrettán væru frægir einstaklingar
Íslensku jólasveinarnir sem
við þekkjum í dag eru þrettán
talsins. Þeir eru af kyni trölla og
voru upphaflega barnafælur.
Þeir eru synir þeirra allra verstu
illvætta sem til eru á Íslandi,
Grýlu og Leppalúða. Hug-
myndir um útlit jólasveinanna
hefur verið breytilegt í gegnum
aldirnar. Í fyrstu eru þeir tald-
ir tröllum líkir, en bræðurnir
þrettán eru öldungis óskyldir
hinum alþjóðlega rauðklædda
Santa Claus sem er kominn af
dýrlingnum Nikulási biskupi,
verndara barna og sæfarenda í
kaþólskum sið.
Útlit þessara sveinabræðra
hefur þó í gegnum aldirnar
fengið á sig ýmsar myndir og
vaknar grunur um að raunveru-
legir jólasveinar séu á meðal
okkar í hinu daglega lífi. Jóla-
sveinar eru ekki að störfum
allan ársins hring og er þá undir
Fókus komið að afhjúpa fræg
gervi þeirra einstaklinga sem
hér má sjá, sem eru allir frægir
fyrir.
Giljagaur er þekktur fyrir að hafa falið sig reglulega í bás-
um og stolið froðunni af fjósakonum, sem áttu síðar von
á fundi með fjósamönnum. Hæfileiki þessi er vissulega
ætlaður þeim mönnum sem eru kenndir við sjarma og
kvennafans, en fyrst hann Fjölnir hefur Kryddpíu á fer-
ilsskránni er hann líklegur til alls. Fyrirmyndar Giljagaur,
með öðrum orðum.
Eins og nafnið gefur til kynna er Stúfur minnstur jólasveinanna.
Hann stalst í matarleifarnar sem eftir urðu á pönnunum. Gísli
Marteinn Baldursson er fíngerður, lágvaxinn og með viðkunnan-
legt andlit sem aldrei eldist. Þá er aðeins að sjá hvort hann hafi
stolist í einhverjar pönnur á dögunum.
Þvörusleiki þykir afskaplega gott að sleikja þvörur og stelst hann
inn í hvert eldhús á hraða eldingar. Það sem einkennir þennan
karakter er annars vegar hvað hann er fjarskalega mjór og hins
vegar sleipu hendurnar. Upp í hugann kemur leikarinn Jörundur
Ragnarsson, sem þykir bæði grannur og sleipur í ýmsu. Þó skulum
við gefa honum tækifæri til að sanna kænsku sína undir jólasveina-
húfunni, því í augnablikinu er hann einungis starfsmaður á plani.
Þegar börnin fengu skófir barði Pottaskefill dyrnar á. Við innkomu
rauk hann inn og stefndi beint að pottinum. Annaðhvort hefur
hann verið svona hungraður eða hann langaði einfaldlega bara að
greina einhver DNA úr matnum. Það væri nú Kára Stefánssyni líkt.
Sigurjón Kjartansson gegnir því hlutverki að koma fyrstur
til byggða. Þótt segjast verði að staurfæturna vanti er
ýmislegt sem annar Tvíhöfðanna á sameiginlegt með
Stekkjastaur; hann er langur í vaxtarlagi, stinnur eins og
tré, og hrekkjalómur með meiru. Það er hann Sigurjón.
Stekkjastaur
Giljagaur
Stúfur
Þvörusleikir
Pottaskefill