Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2019, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2019, Blaðsíða 32
32 FÓKUS 13. desember 2019 √ Bókhald og fjármál √ Húsfélagafundir √ MÍNAR SÍÐUR √ Þjónustusaga húss √ Önnur þjónusta Húsfélagaþjónusta Leiðandi í hagkvæmni og rekstri húsfélaga √ Bókhald og fjármál √ Húsfélagafundir √ MÍNAR SÍÐUR √ Þjónustusaga húss √ Önnur þjónusta Húsfélagaþjónusta Leiðandi í hagkvæmni og rekstri húsfélaga √ Bókhald og fjármál √ Húsfélagafundir √ MÍNAR SÍÐUR √ Þjónustusaga húss √ Önnur þjón t Húsfélagaþjónusta Leiðandi í hagkvæmni og rekstri húsfélaga √ Bókhald og fjármál √ Húsfélagafundir √ MÍNAR SÍÐUR √ Þjónustusaga húss √ Önnur þjónusta Húsfélagaþjónusta Leiðandi í hagkvæmni og rekstri húsfélaga www.eignaumsjon.is Suðurlandsbraut 30 • Sími 585 4800 „Auðvitað var þetta galið og gat ekki gengið“ Erfitt að aftengjast eignum - Skrifa óskalista, ekki þarfalista - Á aðfangadag fóru tæplega 200 hlutir af heimilinu - Ferðuðust til 16 landa á 16 vikum Á gústa Margrét Arnardóttir, hönnuð- ur og fyrrverandi sjómaður, hefur búið á Djúpavogi síðastliðna tvo ára- tugi þar sem hún rekur heimili með eiginmanni sínum, Guðlaugi Birgissyni, en saman eiga þau fimm börn. Ágústa sótti fyrst sjóinn fjórtán ára, þá á humartrolli en færði sig svo yfir á frystitogara fimmtán ára gömul. Eftir tólf ára farsælan feril sagði hún starfi sínu lausu og setti á stofn fyrirtækið Arfleið sem sérhæfði sig í hönnun og fram- leiðslu á töskum, fylgihlutum og fatnaði úr fiskroði og lamba- og hreindýraskinni. Börnin fimm fæddust með stuttu milli- bili, fyrstu þrjú á þremur árum og síðari tvö bættust í hópinn fimm og sex árum síð- ar. Hún segir lífið hafa einkennst af mik- illi þreytu og streitu en sjö ár eru nú liðin síðan fjölskyldan gerði allsherjar breytingu á lifnaðarháttum sínum. „Ég hélt alltaf að foreldrahlutverkið og heimilishaldið kæmi af sjálfu sér. Mitt plan var að vera skemmti- leg, gera sniðuga hluti með börnunum, vera sanngjörn og þolinmóð mamma og þá yrðu börnin stillt og allt yrði frábært. En það bara gerðist ekki. Börnin fóru að sýna alls konar „óæskilega“ hegðun og þá fór ég að sýna sams konar hegðun á móti. Heim- ilislífið einkenndist oft – alls ekki alltaf – af streitu, þreytu og pirringi. Og skyldi engan undra. Samhliða því að hrúga niður börn- um og reka eigið fyrirtæki, þar sem ég sá um allt sem viðkom rekstrinum, sá ég oft- ast ein um heimilið og börnin. Á þessum tíma starfaði maðurinn minn sem sjómað- ur og í frítíma sínum kafaði hann undir bil- aða báta við allt Austurland ásamt því að vera í slökkviliðinu. Ég sá það ekki þá en auðvitað var þetta galið og gat ekki gengið. Mér fannst við bara vera að lifa venjulegu lífi við að reyna að koma yfir okkur heim- ili, föstum tekjum og öryggi. Líf okkar ein- kenndist af ójafnvægi, togstreitu, þreytu og streitu sem oft birtist sem biturleik, pirr- ingur og reiði sem dregur alvarlegan dilk á eftir sér. Streita hefur áhrif á alla í kring- um okkur og sérstaklega börnin. Samfélag- ið er á hættulegum stað hvað varðar hraða, kröfur og áreiti. Ég krassaði fyrir sjö árum sem varð til þess að ég VARÐ að hlúa betur að sjálfri mér.“ Desember erfiður mánuður Þrjú ár eru nú síðan önnur stór þáttaskil urðu í lífi fjölskyldunnar og áttaði Ágústa sig þá endanlega á mikilvægi þess að hlúa betur að fólkinu sínu og nærumhverfi. „Ég ákvað að endurhugsa lífið. Fyrsta skrefið var að taka mér tíma og finna mín raun- verulegu lífsgildi. Ég vildi finna skemmti- legu, sanngjörnu og þolinmóðu mömm- una og manneskjuna sem ég vil vera. Manneskjuna sem heldur kúlinu í storm- um lífsins. En það er mér ofsalega erfitt því ég á það til að frjósa af áhyggjum ef ég er ekki í „varðturninum“ mínum, með fulla meðvitund. Þetta gerist sérstaklega þegar of mörg verk hanga yfir mér og þess vegna er desember erfiður mánuður.“ Ein af þeim fjölmörgu breytingum sem Ágústa einsetti sér að gera, í von um að fyrirbyggja þetta hugarástand, var að ein- falda líf hennar sem og fjölskyldunnar allr- ar. „Ég þurfti að hafa mikið fyrir því að „af- tengjast“ eignum mínum og losa okkur við föt, leikföng, húsbúnað og alls konar. Þetta auðveldaði allt utanumhald og veitti mér frelsi. Ég skipulagði heimilið svo það hentaði okkur betur. Við erum ekki með „smartasta“ heimilið en það er bæði þægi- legt og gott, sem skiptir meira máli. Ég ein- Íris Hauksdóttir iris@dv.is Birgir í 2.000 metra hæð í Tatra-fjöllunum. Þjóðgarðar og villt náttúran stendur upp úr hjá fjölskyldunni á ferðalögum. Allt í einu voru börnin orðin hindrun í því að ferðast og upplifa. Ágústa taldi þau of lítil og of mörg, en nú eru börnin hvatningin til að upplifa sem allra mest. Bræðurnir Örn Þór og Birgir í fjöl- skyldusportinu sem þau byrjuðu að stunda fyrir tveimur árum. Börnin við hringleikahúsið í Pula í Króatíu sumarið 2019. Fjölskyldan safnar upplifun frekar en eignum. Fjölskyldan í hellunum í Nerja á Spáni en þar dvaldi hún í 5 vikur í byrjun árs 2018.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.