Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2019, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2019, Blaðsíða 2
2 13. desember 2019FRÉTTIR D esember og jólin eru erfiður tími fyrir marga sem finna fyrir einmanaleika, söknuði og fjárhagserfiðleikum. Þá er gott að geta hringt og talað við ein­ hvern í nafnleysi og trúnaði og tökum við vel á móti öllum,“ segir Sandra Björk Birgisdóttir, verkefnastjóri Hjálparsíma Rauða krossins, í samtali við DV. Jólin eru fjölskylduhátíð og finna því margir sterkar fyrir einsemd. Í samtali við RÚV á sein­ asta ári sagði Hilmar Kjartansson bráðalæknir að töluvert væri um að einmana fólk leitaði á bráðamóttökuna yfir hátíðarnar. „Þetta er eitthvað sem við sjáum oft, þá kemur fólk inn og talar við okkur og tjáir okk­ ur sína vanlíðan. Þetta er fólk þá með kvíða eða jafnvel með sjálfsvígshugsanir eða hefur íhugað að taka ofskammt lyfja og þá er betra að það komi til okkar til að vinda af hlutunum heldur en að það fari í óefni.“ Þá sagði Kristín Hjálmtýsdóttir, fram­ kvæmdastjóri Rauða krossins: „Fólk er dapurt, það er eitt heima hjá sér, hefur ekki tengsl við neina í fjölskyldunni eða getur ekki talað um sína líðan. Fjölskyldur standa nokk­ uð þétt saman. En það eru margir sem standa fyrir utan þétt fjölskyldunet og vini. Viðhorfið hefur kannski verið að þeir sem eru einmana hafi bara ekki drifið sig út og haft samband við einhvern, en það er ekki svo einfalt.“ Standa vaktina allan ársins hring Hjálparsími og netspjall Rauða krossins tekur á móti fleiri en 14 þúsund símtölum á ári en undanfarin ár hefur desember verið mikill álagstími. Sandra Björk segist sjá fram á að álagið verði með svipuðu móti og síðastliðin ár á Hjálparsímanum. „Við finnum fyrir því að margir séu einmana, ekki bara um jólin heldur allan ársins hring. Jólin eru þó kannski sérstaklega erfiður tími því flest hugsum við um jólin sem samveru­ stund með fjölskyldu og vinum. Um jól og ára­ mót standa sjálfboðaliðar vaktina á Hjálpar­ síma Rauða krossins og spjalla við þá sem eru einmana eða líður illa og þurfa að tala við ein­ hvern í trúnaði. Þessi desember mánuður hefur í raun ekki verið neitt frábrugðinn öðrum des­ embermánuðum árin á undan. Við fundum þó fyrir auknu álagi þann tíma sem óveðrið gekk yfir landið í vikunni. Mörgum leið illa og voru hræddir og kvíðnir yfir þessu.“ Hjálparsími Rauða krossins, 1717, er opinn allan sólarhringinn, alla daga ársins. Um 100 þjálfaðir og reynslumiklir sjálfboðaliðar svara þeim símtölum og netspjalli sem Hjálparsím­ anum berst. „Hlutverk okkar er að vera til staðar fyrir alla þá sem þurfa að ræða sín mál í trúnaði og einlægni við hlutlausan aðila. Við tökum á öll­ um vandamálum fólks og okkar mottó er að ekkert vandamál sé of stórt eða of lítið fyrir Hjálparsímann. Algengast er að fólk hafi sam­ band vegna þunglyndis, kvíða, einmanaleika og sjálfsvígshugsana,“ segir Sandra Björk jafn­ framt. „Við höfum orðið vör við mikla fjölgun á sjálfsvígssímtölum á þessu ári og nemur fjölg­ unin um 30 prósentum frá síðasta ári. Það þarf þó ekki að þýða að fleiri séu í sjálfsvígshug­ leiðingum en áður, heldur að það séu fleiri að leita sér aðstoðar og þora að tala um það þegar þeim líður illa.“ n Íslendingar sem hafa verið ofsóttir af eltihrellum Orðið „eltihrellir“ er yfirleitt skilgreint sem manneskja sem eltir og fylgist með annarri manneskju á ákveðnu tímabili. Þetta er því tegund af áreitni sem oftast hefur þann tilgang að valda ótta. Margir Íslendingar, og ekki síst þeir þekktu, hafa upplifað svona ofbeldi í einu formi eða öðru. Hér eru fimm dæmi. Björk Maður að nafni Ricardo Lopez varð hugfanginn af tónlistarkonunni Björk og lét hana ekki í friði árið 1996. Lopez reyndi að senda Björk bréfasprengju en breska lögreglan náði að stöðva hann í tæka tíð. Tilfelli Bjarkar þótti með því versta sem þekktist, en eltihrellirinn framdi sjálfsvíg skömmu eftir að hann náðist. Malín Brand Fjölmiðlakonan Malín Brand tjáði sig um eltihrella í Fréttatímanum árið 2011. Malín var stödd með hópi íslenskra og tyrkneskra blaðamanna í tengslum við umsóknir landanna að ESB. Einn þeirra sem var í forsvari fyrir tyrkneska hópinn tilkynnti henni að Guð vildi að hún yrði konan hans. Í kjölfarið réðst maðurinn á hana og var Malín marin á kjálka, handleggjum og fótleggjum. Hún var flutt á annað hotel í kjölfarið. Halldór Laxness Nóbelskáldið Halldór Laxness upplifði sinn skerf af áreitni aðdáenda sinna. Á ákveðnum tímapunkti þurfti að hafa samband við allar leigubílastöðvar í Reykjavík og segja leigubíl- stjórum að aka vinsamleg- ast ekki ölvuðum mönnum upp að Gljúfrasteini, heimili skáldsins, ef þeir óskuðu eftir því. Eivør Söngkonan Eivør Páls- dóttir sótti um nálgunar- bann á íslenskan mann sem átti að hafa elt hana í um þrjú ár. Málið gekk meira að segja svo langt að maðurinn flutti til Færeyja og tjaldaði í garðinum hjá henni í dágóðan tíma. Hermt er að maðurinn hafi sagt að umboðskona Eivarar væri eina fyrirstaðan í sambandi þeirra. Áslaug Arna Þingkonan Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir var áreitt á netinu af bandarískum manni oft á dag í margar vikur. Maðurinn bjó til Youtube-myndband þar sem hann spurði margra persónulegra spurninga. Hann hringdi og sendi henni talskilaboð mörg- um sinnum á dag. Þegar Áslaug reiddist skipti maðurinn skapi og fór að kalla hana ýmsum illum nöfnum. Á þessum degi, 13. desember 1294 – Selestínus 5. sagði af sér páfaembættinu. 1929 – Stórleikarinn Christopher Plummer fæddist. 1937 – Japanski herinn hertók Nanjing. 1996 – Kofi Annan var kjörinn aðalrit- ari Sameinuðu þjóðanna. 2003 – Saddam Hussein fannst í felum í byrgi nálægt Tikrit í Írak. Fleyg orð „Segðu mér og ég gleymi, kenndu mér og kannski man ég, leyfðu mér að taka þátt og ég læri.“ – Benjamin Franklin „Algengast er að fólk hafi samband vegna þunglyndis, kvíða, einmanaleika og sjálfsvígshugsana. Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is „Við finnum fyrir því að margir séu einmana“ n Aukið álag í óveðrinu n 30 prósenta fjölgun á símtölum frá fólki með sjálfsvígshugsanir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.