Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2019, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2019, Blaðsíða 38
38 13. desember 2019STJÖRNUSPÁ stjörnurnar Spáð í Naut - 20. apríl–20. maí Fiskur - 19. febrúar–20. mars Vatnsberi - 20. janúar–18. febrúar Steingeit - 22. desember–19. janúar Bogmaður - 22. nóvember–21. desember Sporðdreki - 23. október–21. nóvember Vog - 23. sept.–22. október Meyja - 23. ágúst–22 .sept. Ljón - 23. júlí–22. ágúst Krabbi - 22. júní–22. júlí Tvíburi - 21. maí–21. júní Stjörnuspá vikunnar Gildir 15.–21. desember Það er búin að vera smá lægð yfir þér síðustu daga, sem er mjög ólíkt þér. Nú verður hins vegar mikil breyting á. Þú ert mikið jólabarn og ferð í undirbúning af fullum krafti. Gjafir skipta þig ekki öllu máli, frekar samvera, stuðlög, matur og skemmtilegheit. Þú veist nefnilega að það er betra að gefa en þiggja. Alveg sama hve mikið er að gera í að- draganda jóla þá finnur þú ríka þörf fyrir að taka frá tíma fyrir ástarlífið. Lofuð naut þurfa mikinn tíma með maka sínum, undir sæng að gera eitthvað sem kemur engum öðrum við. Rómantíkin er í há- marki en einnig dýrseðlið. Einhleyp naut kæra sig lítið um stefnumót og einbeita sér að því að líða vel með sér sjálfum. Sjálfstraust umlykur þig og þú hefur sjaldan verið sáttari í eigin skinni. Þú hefur litið yfir farinn veg og endurmetið líf þitt, ákvörðun sem þú átt ekki eftir að iðr- ast. Þú sérð loks ljósið við enda ganganna eftir mjög erfiðan tíma, tilfinningalega. Þetta ljós færir með sér óvæntan ágóða í vinnu og fallegar stundir með ástvinum. Það gæti verið sniðugt fyrir þig að finna leiðir til að hvetja þig áfram, því þú virðist ekki vera fær um það þessa dagana. Til eru mörg smáforrit sem minna mann á allan fjandann, hvort sem það er að drekka meira vatn, sofa betur eða hreyfa sig. Kynntu þér það og settu heilsuna í fyrsta, annað og þriðja sæti. Jólabarnið þú er á yfirsnúningi síðustu dagana fyrir jól. Þig langar að skreyta allan heiminn og jólaskap þitt er smit- andi. Hjá mörgum hangir dökkur skuggi yfir jólunum og þó að þessi skuggi tengist ekki þinni fjölskyldu þá finnur þú fyrir honum á heimilinu. Ekki láta þennan skugga skyggja á þín gleðilegu jól. Líf þitt einkennist af miklum hraða og álagi og þú ert farin/n að missa sífellt fleiri bolta. Þú þarft tíma fyrir þig og aðeins þig. Þú þarft tíma til að sinna þér almennilega og gera það sem þér finnst skemmtilegast að gera. Kíktu líka á dagatalið þitt og athugaðu hvort það sé einhver viðburður væntanlegur sem myndi henta afar vel fyrir vinahópinn þinn. Þú hefur unnið marga sigra í gegnum tíðina og ert komin/n á stað sem þér líður vel á. Þú ert hrókur alls fagnaðar og langar að halda hvert jólaboðið á fætur öðru til að hafa gaman með fólkinu sem þú elskar. Þú færð gest sem færir þér dásamlegar fréttir sem gera jólin enn gleðilegri. Þú þarft aðeins að líta á heildarmyndina og sjá hvað er mikilvægast. Þú ert komin/n með það svo á heilann hvernig annað fólk sér þig að það er farið að hafa slæm áhrif á þig. Þú ert líka með þráhyggju yfir að vita hvað lífið ber næst í skauti sér. Slappaðu af! Njóttu! Finndu leiðir til að byggja upp sjálfsöryggið og hættu að spá í hvað öðrum finnst! Það eru miklar umbreytingar í þínu lífi og þú kannt illa við það. Þú vilt hafa stjórn og þú vilt hafa mikla reglu í kringum þig. Nú er spilaborgin að falla og þú þarft að taka ákvörðun – ætlar þú að falla með henni niður í eymd og volæði eða ætlar þú að taka ábyrgð á eigin lífi og gera eitthvað uppbyggilegt með það? Ekki bæla niður tilfinningar þínar. Þú ert meyr um þessar mundir og þú mátt alveg vera það. Jólin kalla fram það besta í þér en rifja einnig upp sárar minningar og ýfa upp gömul sár. Það er allt í lagi, svo lengi sem þú lokar ekki á þessar minningar. Það er hollt að finna til, en það er líka mikið þroskamerki að kunna að takast á við sársaukann. Höfuð þitt er fullt af hugmyndum. Sumar eru ansi flippaðar og þú hefur algjörlega talið þær eiga heima í höfðinu, en ekki í raunheimi. Í þessari viku kemur hins vegar manneskja inn í líf þitt sem telur allar þínar villtustu hugmyndir framkvæman- legar. En spennandi! Vinna, vinna, vinna. Líf þitt snýst um vinnuna. Þú verður að fara að skilja að það er svo margt annað þarna úti sem er vert að dýfa sér í. Þér gengur vel í vinnunni og þú ert búin/n að klífa met- orðastigann. Það virðist samt ekki vera nóg fyrir þig. Finnst þér það ekkert bogið? Ef ekki, þá ertu á virkilega vondum stað og þarft að skoða þín mál. Hrútur - 21. mars–19. apríl Afmælisbörn vikunnar n 15. desember Gísli Örn Garðarsson leikari, 46 ára n 16. desember Margrét R. Jónasar, förðunarstjóri RÚV, 50 ára n 17. desember Jón Kalman Stefánsson rithöfundur, 56 ára n 18. desember Vilhjálmur Egilsson stjórnmálamaður, 67 ára n 19. desember Sigrún Lilja Guðjónsdóttir athafnakona, 38 ára n 20. desember Sunna Borg leikkona, 73 ára n 21. desember Hödd Vilhjálmsdóttir almannatengill, 38 ára Lesið í tarot Svanhildar Geisla á sviðinu – Svona eiga þau saman D ansarinn Jón Eyþór Gottskálksson og athafnakonan Manu- ela Ósk Harðardótt- ir hafa náð góðum árangri í þættinum Allir geta dansað. Sögusagnir hafa farið á kreik um að þau væru í ástarsam- bandi, sem þau hafa staðfast- lega neitað, en DV ákvað engu að síður að kanna hvernig þau eiga saman, svona ef þau rugla saman reytum. Jón er hrútur en Manuela er meyja, afar ólík merki. Svo ólík að við fyrstu kynni finnst þeim þau ekki eiga nokkurn skapaðan hlut sameiginlegan. Jafnframt finnst þeim þau ekki geta lært neitt af hvort öðru. Stál í stál, með öðrum orðum. Þetta samband þarf tíma til að þróast, enda um algjörar andstæður að ræða. Hrútur- inn er aggresívur og djarfur, hoppar í ný verkefni stans- laust og er óþolinmóður með eindæmum. Meyjan er hins vegar með auga fyrir smáatrið- um og hæglát, jafnvel feimin. Meyjan vinnur að langtíma- markmiðum á meðan hrútur- inn vill skammtímagigg. Þessi mikli munur á merkjunum getur hins vegar kennt báðum merkjum að líta betur undir yfirborðið, meira en þau hafa áður gert í ástarsamböndum. Um leið og hrúturinn og meyjan hætta að einblína á galla í fari hvort annars verð- ur sambandið sterkara. Þau geta kennt hvort öðru æði margt, ef þau taka upplýsta ákvörðun um að vilja læra. Ef þau eru ekki tilbúin til þess að ganga inn í sambandið á þeim forsendum munu þau ávallt einblína á gallana og það sem betur mætti fara í staðinn fyr- ir að opna hjartað fyrir nýjum áskorunum – nýjum heimi. n Manuela Fædd: 29. ágúst 1983 Meyja n trygg n ljúf n vinnusöm n hagsýn n feimin n ofgagnrýnin Jón Fæddur: 6. apríl 1989 Hrútur n hugrakkur n ákveðinn n öruggur n áhugasamur n óþolinmóður n skapstór Stormsveipurinn á RÚV S amsæriskenningasmiðir halda því statt og stöðugt fram að Svanhildur Hólm verði næsti útvarpsstjóri, að það sé í raun löngu ákveðið. Svanhildur hefur verið hægri hönd Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra síðustu ár og því fannst DV tilvalið að lesa í tarotspil Svanhildar. Lesendum DV er bent á að þeir geti sjálfir dregið tarotspil á vef DV. Kenningarnar sannar Fyrsta spilið sem birtist hjá Svan- hildi er Sólin. Úr því má lesa að samsæriskenningarnar eru rétt- ar – hún verður útvarpsstjóri og hún mun öðlast það vald sem hún sækist eftir. Gleði einkennir líf hennar og hún nýtur mik- illar blessunar. Hún hefur lagt hart að sér síðustu ár, enda með eindæmum metn- aðargjörn, og þótt hana hafi oft lang- að til að gefast upp þá hefur hún nú loks erindi sem erf- iði. Sólin segir ekki aðeins til um vel- gengni Svanhildar í starfi heldur lætur hún einnig aðra drauma verða að veruleika inn- an tíðar. Hamingja, spenna og velferð ein- kenna Svanhildi og verkefni hennar, sem virðast gefa henni mikið. Hraði og álag Næst er það 4 sverð. Svanhildur er undir miklu álagi í núverandi vinnu og nær að halda mörg- um boltum á lofti með skipulagi, krafti og óbilandi dugnaði. Hins vegar er henni nú ráðlagt að hvíla sig áður en hún tekur við einni valdamestu stöðu landsins. Hún þarf að hlusta betur á líkamann og vita hvenær hún á að gefa eft- ir og huga betur að heilsunni. Líf hennar einkennist af hraða en hún verður að gefa sér tíma fyr- ir fjölskylduna og sínar eigin þarfir. Núna er tíminn því hún kemst ekki í gott og langt frí í bráð. Stormsveipur Svo er það Hangandi maður sem rekur lestina. Svanhildur virð- ist vera reiðubúin til að leggja sig fram af alhug þegar kemur að ver- kefni sem hún stendur frammi fyrir, stöðu útvarpsstjóra. Hún vill samt fyrst og fremst klára þá vinnu sem hún hefur haldið utan um í fjármálaráðuneytinu, hratt og ör- ugglega fyrst, svo hún geti geng- ið glöð inn í útvarpshúsið. Hún má samt búa sig undir að fólkið í kringum hana muni telja að hún sé að þessu fyrir peningana – ekki af hugsjón. En Svanhildur veit sannleikann og lætur neikvæðn- israddir sem vind um eyru þjóta. Hún kemur sem stormsveip- ur inn í útvarpshúsið og kem- ur þónokkrum í uppnám með ákveðni sinni og hreinskilni. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.