Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2019, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2019, Blaðsíða 8
8 UMRÆÐA Sandkorn 13. desember 2019 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. Aðalnúmer: 512 7000 Auglýsingar: 512 7050 Ritstjórn: 512 7010 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Ritstjóri: Lilja Katrín Gunnarsdóttir Prentun: Torg prentfélag Dreifing: Póstdreifing Suðurlandsbraut 14 2. hæð FRÉTTASKOT 512 7070 ABENDING@DV.IS S tormur skellur á og árshá­ tíð samfélagsmiðlagrínara hefst með pomp og prakt. Fólk keppist við að búa til skrýtlur. Fjölmiðlar taka saman fyndnustu tístin. Allir hlæja. „Við erum að ala upp aumingja,“ gaspr­ ar einhver þegar að loksins, loks­ ins, borgarbúa hlýða fyrirmælum viðbragðsaðila út af veðurviðvör­ unum. Börn sótt snemma, fyrir­ tækjum er lokað, göturnar eru mannlausar. Milljarðatjón út af þessum eina degi blasir við. Þá fjárhagslegt tjón. Með því að hlýða spornuðum við borgarbúar við tjóninu sem hefði getað orðið og ekki yrði metið til fjár. Sem bet­ ur fer. Við borgarbúar erum heppnir. Rafmagninu sló ekki út hjá okk­ ur. Við komumst öll heim til okk­ ar. Vissulega fuku einhverjar þakplötur hér og þar og stöku trampólín var á vergangi en yfir heildina litið sluppum við vel. Þó að sprengilægðin hefði verið meira eins og lítil ýla en ekki tugþúsunda flugeldakaka hér í höfuð borginni þá var ég allavega fegin að ég hlýddi. Maður veit nefnilega aldrei hvernig náttúran hagar sér og sagan sýnir að það er ómögulegt að tjónka við henni þegar hún skiptir skapi og þá ekki síst þegar um íslenskt veðurfar er að ræða. Gaspur á samfélagsmiðlum um hvað við erum miklar mann­ leysur að láta svona í þessum andvara varð síðan í meira lagi hjákátlegt þegar borgarbúar litu upp af Netflix­þættinum og klár­ uðu dreggjar sellerídjússins og fylgdust aðeins með því sem var að gerast utan borgarmarka. Raf­ magnsleysi, ekki í nokkrar mín­ útur heldur marga klukkutíma og svo dögum skipti. Fólk komst ekki heim til sín, þurfti að leita skjóls í hjálparmiðstöðvum. Fallnir raf­ magnsstaurar. Bátar losnuðu frá bryggju. Kindur fennti inni í fjár­ húsum. Nei, þetta er ekki prent­ villa. Þær voru ekki fastar úti í gaddi og stormi. Þær festust inni og enginn gat komist til þeirra. Það er ekki flókið að leika mik­ ið karlmenni og tala digurbarka­ lega um „smágjóstur“ í nokkuð góðu skjóli af Esju á sama tíma og fólk í öðrum landshlutum glímir við veðraham sem á sér vart hlið­ stæðu í seinni tíð. Það sem setti þessar náttúru­ hamfarir síðan í enn skýrara, og ósegjanlega dapurlegra, samhengi var hjálpsami unglingspilturinn sem er týndur. Hann féll í Núpá. Stormurinn varð þess valdandi að erfiðlega gekk fyrir viðbragðsaðila að komast hratt og örugglega á staðinn til að hefja leit. Unglings­ pilturinn lagði líf sitt í hættu til að aðstoða bónda við að koma raf­ magni aftur á. Þannig að þetta er ekkert grín. Náttúran lætur ekki að sér hæða og lætur hressilega í sér heyra ef við reitum hana til reiði. Þótt megi gera grín að nánast öllu og öllum þá er þessi rígur, landsbyggðin gegn höfuðborginni, orðinn frekar þreyttur – sérstaklega þegar kemur að veðráttunni. Þetta snýst nefni­ lega ekki bara um veðrið, hve stór­ an hluta af foknu þakplötunum við fáum til baka úr tryggingunum eða að maður sjái ekki í bílinn sinn fyrir snjó. Í þessu tilviki, og svo margoft áður, snýst þetta fyrst og fremst um alvöru fólk. Mannslíf. n Aumingjasamfélagið Steingrímur fer á taugum Eitthvað er jólastressið að hafa áhrif á forseta Alþingis, Steingrím J. Sigfússon. Sérstaklega virð­ ast þingmenn Pírata fara fyr­ ir brjóstið á honum. Í vikunni hefur honum lent saman við Píratana Helga Hrafn Gunnars- son, Halldóru Mogensen og þing­ menn Samfylkingarinnar, Loga Einarsson og Helgu Völu Helga- dóttur. Halldóra Mogensen gekk jafnvel svo langt að saka Steingrím um að grípa vilj­ andi fram í undir ræðum Pírata á þingi. Vísir greindi frá því í gær að samkvæmt heimildar­ mönnum sé það reyndar ekki jólastressið sem leikur Stein­ grím svona illa þessa dagana, heldur undirliggjandi vandi innan stjórnarsamstarfsins. Er þetta merki um enn eina ríkis­ stjórnina sem ekki nær að sitja heilt kjörtímabil? Við bíðum allavega spennt eftir nýju ári til að fá þeirri spurningu svarað. Ef Svanhildur verður útvarpsstjóri Aðstoðarkona fjármálaráðherra, Svanhildur Hólm Valsdóttir, hefur sótt um stöðu út­ varpsstjóra og hefur sú ákvörðun vakið mikla athygli. Sem svar við ákvörðun stjórnar RÚV um að gefa ekki út lista um umsækjendur hefur hver umsækjandinn á eftir öðr­ um gengist við því opinberlega að hafa sótt um. Þeirra á með­ al er Svanhildur. Hún hefur um árabil verið aðstoðarmað­ ur Bjarna Benediktssonar og er gallhörð Sjálfstæðiskona. Hljóti hún starfið er deginum ljósara að það mun vekja mikla athygli og óumflýjanlega spurninguna um hvort hún hafi fengið stöð­ una sökum hæfis, eða tengsla. Er yfirhöfuð forsvaranlegt að ráða hana í starfið nú þegar spilling er jafn áberandi í þjóð­ félagsumræðunni og hún hefur verið í kjölfar Samherjamáls­ ins? Maður spyr sig. OnePortal er vefgátt sem gerir fyrirtækjum og sveitar- félögum kleift að veita íbúum þjónustu allan sólahringinn, allt árið um kring. Rafrænir innri ferlar eru teng r við þjónustu átt fyrir íbúa eða viðskiptavini, þar sem þeir Gæða- stjórnun á stóran þátt í góðum árangri fyrirtækja. OneQuality er lausn sem OneSystems bjóða heildarlausn í skjalamálum fyrirtækja og sveitarfélaga og þjónustu við viðskiptavini og íbúa þeirra Hagkvæmar lausnir með áherslu á rekjanleika, auðveldan aðgang og gagnsæi. OneRecords er öug lausn sem a ðveldar fyrirtækjum og sveitarfélögum halda utan um mál sem eru í gangi á hverjum tíma. Stjórnendur hafa yrsýn yr gang mála nnan fyrirtækisins og notendur geta á einfaldan máta sótt lista yr þau mál sem þeir bera ábyrgð á Vilt þú koma skjalamálunum í lag? VELJUM ÍSLENST - VELJUM ÍS LE NS KT -V EL JUM ÍSLENSKT - Records Mála- og skjalakerfi Self-Service www.one.is OneSystems - sími: 660 8551 | fax: 588 1057 | www.one.is | one@one.is www.one.is . one@one.is sími: 660 8551 . fax: 588 1057 Leiðari Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.