Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2019, Blaðsíða 52
52 6. september
Stjörnuspá vikunnar
Gildir xx
STJÖRNUSPÁ
stjörnurnar
Spáð í Afmælisbörn vikunnar
n 8. september Gylfi Þór Sigurðsson knattspyrnumaður, 30 ára
n 9. september Aldís Davíðsdóttir leikkona, 35 ára
n 12. september Þórunn Erna Clausen leikkona, 44 ára
n 13. september Björk Eiðsdóttir fjölmiðlakona, 45 ára
n 13. september Júlíus Jóhannsson, fasteignasali og gleðipinni, 45 ára
n 14. september Hallbera Guðný Gísladóttir knattspyrnukona, 33 ára
Naut - 20. apríl – 20. maí
Fiskur - 19. febrúar – 20. mars
Vatnsberi -
20. janúar – 18. febrúar
Steingeit -
22. desember – 19. janúar
Bogamaður -
22. nóvember – 21. desember
Sporðdreki -
23. október – 21. nóvember
Vog - 23. sept. – 22. október
Meyja - 23. ágúst – 22 .sept.
Ljón - 23. júlí – 22. ágúst
Krabbi - 22. júní – 22. júlí
Tvíburi - 21. maí – 21. júní
Þú ert ofboðslega gagnrýnin/n þessa
dagana og þú mættir aðeins tóna niður
neikvæðni þína. Fólki finnst þú vera of
yfirlætisfull/ur þegar þú ferð á flug og þú
gætir komið illa við marga ef þú passar
þig ekki aðeins. Stundum er gott að vera
auðmjúkur og halda skoðunum sínum
fyrir sig.
Það er annaðhvort allt eða ekkert hjá
þér þessa dagana. Þú ferð á fulla ferð í
ýmis mál og kemur þér í klandur því þú ert
búin/n að lofa þér í alltof margt. Þau naut
sem eru nýlega komin í samband ættu
sérstaklega að passa sig því hugsan-
lega er alltof snemmt að fara að ræða
barneignir, sambúð eða þar fram eftir
götunum.
Það er líkt og bleik hula sé yfir andliti þínu
og þú lítur gjörsamlega framhjá göllum
og rauðum flöggum er varða tiltekna
manneskju í þínu lífi. Auðvitað er alltaf
gott að vera bjartsýn/n og jákvæð/ur en
þú verður að horfa á þessa manneskju
eins og hún er – ekki eins og þú vilt að hún
sé. Þetta er manneskja sem skiptir miklu
máli í þínu lífi og þú verður að ákveða
hvort þú vilt hafa hana í lífi þínu eður ei.
Þú ert að fást við persónulegt vandamál
sem þú bara finnur ekki lausn á. Þú spyrð
ótal manns álits, leitar á internetinu
og leitar þér aðstoðar, en allar þessar
mismunandi skoðanir veltast um í höfði
þínu og gera þig að algjörum stressbolta.
Finndu þér tíma til að fara yfir kosti og
galla í rólegheitum og mundu að hlusta
líka á hjartað.
Þú ert nýbúin/n að kynnast manneskju
sem þú ert ofboðslega skotin/n í. Nú
verður þú hins vegar aðeins að slaka á og
ekki opna þig eins og bók strax á þriðja
stefnumóti. Þú skalt halda hæfilegri fjar-
lægð þangað til þú ert búin/n að fullvissa
þig um að þessi manneskja sé þess virði
að þú verðir berskjölduð/aður.
Þú tekur þér nauðsynlegt frí frá amstri
dagsins til að endurmeta stöðu þína í
lífinu. Það er eitthvað að angra þig og þú
ert ekki búin/n að vera upp á þitt besta.
Einhver streitueinkenni láta á sér kræla
og þú mátt alls ekki hunsa þau – líkami
þinn er tvímælalaust að reyna að segja
þér eitthvað.
Það er einhver að reyna að gabba þig. Það
er ekkert endilega neitt ofboðslega mik-
ilvægt mál sem þessi manneskja er að
reyna að láta þig trúa að sé eitthvað ann-
að en það er, en þú þolir ekki að láta hafa
þig að fífli. Gerðu því rannsóknarvinnuna
þína og tryggðu að ekki sé um svik að
ræða áður en þú eyðir dýrmætum tíma og
jafnvel fjármunum í verkefnið.
Þú ert í einhvers konar fjárhagsvandræð-
um sem tengjast manneskju sem þér
þykir vænt um. Þið eruð búin að koma
ykkur í kröggur með djörfum ákvörðunum
og þið þurfið leið út, sem virðist ekki vera
svo auðvelt að finna. Ekki örvænta.
Þig dreymir stóra drauma og hleypur
mjög hratt í átt að þeim, en getur verið
að draumurinn sem þú hefur elt sé ekkert
spes eftir allt saman? Þú skalt staldra við
og spá í hvort þú sért virkilega að hlaupa
í rétta átt. Draumar geta breyst á miðri
leið og það er allt í lagi fyrir þig að taka
smá beygju til að komast að markmiðum
þínum.
Það er mikill ferðahugur í þér, eins og hef-
ur reyndar verið síðustu vikur. Þig þyrstir
í ný ævintýri og allt í einu kemur tækifæri
upp í hendurnar á þér sem þú getur ekki
sleppt. Þú þráir að sleppa aðeins úr hvers-
deginum og þetta tækifæri tengist mjög
andlegum málefnum og hugleiðslu.
Þú hefur gengið í gegnum erfiða tíma og
þú átt að fjölda fólks sem styður þig. Hins
vegar virðist þú ekki hafa áttað þig á því
almennilega. Opnaðu á þennan stuðning
og gefðu fólkinu sem þykir vænt um þig
verkefni til að létta undir með þér. Þú
hefur rosalega gott af því að hafa ekki
fullkomna stjórn á gjörsamlega öllu.
Þér er treyst fyrir verkefni eða nýrri vinnu
sem þú hefur haft augastað á lengi. Þetta
tækifæri er hins vegar ekki eins og þú
bjóst við og þér fallast hendur þegar þú
sérð umfangið. Get ég þetta? er spurning
sem ómar í höfðinu á þér og sjálfstraustið
fær högg. Fiskar eru hins vegar ekki
þekktir fyrir að gefast upp og eina sem þú
þarft er smá tími til að venjast og læra.
Hrútur - 21. mars – 19. apríl
Spáð í tarot fyrir Elínu Hirst
Svona eiga þau saman
Hanna Rún
Fædd 17. júlí 1990
krabbi
n hugmyndarík
n traust
n tilfinn-
ingarík
n geðþekk
n óörugg
n skap-
stór
Nikita Bazev
Fæddur 12. júní 1987
tvíburi
n blíður
n forvitinn
n fljótur að læra
n með góða að-
lögunarhæfni
n óstyrkur
n óákveðinn
Framtíðin björt eftir
erfiðan skilnað
8.-14. september
N
ýlega birtust þær fréttir að
Elín Hirst, fyrrverandi al-
þingiskona og fréttastjóri,
væri skilin við eiginmann
sinn til 35 ára, Friðrik Friðriks-
son, fjármálastjóra Nýsköpunar-
sjóðs atvinnulífsins. DV ákvað að
leggja tarotspil fyrir Elínu á þess-
um tímamótum, en lesendum er
bent á að þeir geta gert slíkt hið
sama á vefnum.
Mikil veisluhöld
Fyrsta spilið sem kemur upp hjá
Elínu er 9 bikarar, en spilið tákn-
ar sannleika sem Elín hefur ný-
verið þurft að horfast í augu við.
Þegar sann-
leikurinn er
talaður ljóm-
ar hann og
glitrar fallega
og nú hefur
Elín gefið um-
hverfi sínu ský-
laus skilaboð og
er frjáls frá van-
trausti og tak-
mörkunum. Það
er Elínu eðlislægt
að sýna kærleika
í verki og finnst
henni best á þess-
um tímamótum að eyða tíma með
þeim sem hún elskar. Umhyggja,
heiðarleiki og jákvætt viðhorf til
lífsins lýsir Elínu best og leggur
hún mikið upp úr því að búa til
notalegt umhverfi í kringum
sig. Á næsta leiti eru veislu-
höld með skyldfólki og veita
mannleg samskipti henni
mikla gleði á þessum erfiða
tíma.
Þráir jafnvægi
Næsta spil er 5 bikar-
ar en það táknar ein-
hvers konar missi eða
vonbrigði sem ýta
undir leiða hjá
Elínu. Ef hún
leyfir þessari
líðan að ná
yfirtökum á
annars já-
kvæðri
og bjartri
orku sinni
er hætt
við að
neikvæð-
ar tilfinningar verði henni þung-
bærar og magnist í huga hennar.
Það ýtir undir ójafnvægi en það á
einkar illa við Elínu þar sem hún
þráir jafnvægi í sínu lífi. Elín ætti
að leggja sig fram við að opna
hjarta sitt fyrir því sem eflir hana
og kasta frá sér þungu byrðunum
sem hvíla á herðum hennar. Hún
skal einnig hafa hugfast að í hverju
vandamáli felast dulbúin tækifæri.
Rís upp úr vonleysi
Lokaspilið er Tunglið. Tilfinningar
Elínar eru sem ringulreið og hún
gæti fundið fyrir einmanaleika á
næstunni, jafnvel ístöðuleysi. Elín
gæti haft það á tilfinningunni að
hún ráði ekki við það erfiði sem
ríkir núna en það gæti ekki ver-
ið fjær sannleikanum. Hún má
ekki leggjast niður í vonleysi held-
ur þarf að rísa upp og takast á við
framhaldið. Ójafnvægið og svart-
sýni geta villt henni sýn en Elín
þarf að horfa betur í kringum sig til
að sjá allt það sem lífið hefur upp
á að bjóða. Framtíðin er björt og
enginn tími fyrir leiðindi. n
Hanna Rún og Nikita
eiga von á barni
D
anshjónin Hanna Rún og
Nikita Bazev eiga von á sínu
öðru barni saman, en fyrir
eiga þau fimm ára gamlan
son. Hanna Rún og Nikita gengu í
það heilaga þegar að sonurinn var
nýfæddur og geislar af þeim ham-
ingjan, en hvernig eiga stjörnu-
merki þeirra saman?
Hanna Rún er krabbi en Nik-
ita er tvíburi. Þegar þessi tvö merki
koma saman getur sambandið
orðið ansi áhugavert. Krabbinn er
mjög tilfinningaríkur og á oft erfitt
með að gera sig almennilega skilj-
anlegan, en skýr skilaboð eru það
sem tvíburinn treystir á. Því geta
þessi tvö merki kennt hvort öðru
ansi mikið.
Tvíburinn er tungulipur og hvet-
ur krabbann til að koma meira út
úr skelinni, en krabbinn kennir tví-
buranum að slaka á og vera í núinu,
eitthvað sem tvíburinn á mjög erfitt
með. Þessi tvö merki horfa á heim-
inn mjög ólíkum augum og því
þurfa þau að skilja og samþykkja
hve ólík þau eru. Ef það gengur upp
gengur sambandið eins og í sögu.
Krabbinn er hjartað á heimil-
inu og gerir allt sem hann getur til
að fegra umhverfi sitt. Fjölskyldan
er í fyrsta, öðru og þriðja sæti hjá
krabbanum og gerir hann hvað sem
er til að halda henni glaðri og tek-
ur oft ákvarðanir án þess að hugsa.
Tvíburinn er hins vegar mikill hug-
suður og vill hafa allt útpælt áður
en látið er til skarar skríða. Tvíbur-
inn þarf hins vegar að gæta þess að
veita krabbanum mikla ást og um-
hyggju, því hann þrífst á henni. n