Fréttablaðið - 15.10.2015, Blaðsíða 25
Nóbelsverðlaun voru fyrst veitt fyrir rannsóknir í hagfræði 1969. Til verð-
launanna hafði verið stofnað árið
áður til að fagna 300 ára afmæli
Seðlabanka Svíþjóðar, elzta seðla-
banka heims. Þá voru tiltölulega
nýfallnir frá tveir risar sem hefðu
trúlega hreppt eða a.m.k. verð-
skuldað verðlaunin hefðu þeir enn
verið ofar moldu.
Fyrsta rokkstjarnan
Annar risinn var bandaríski
hagfræðingurinn Irving Fisher
(1867-1947), prófessor í hagfræði
í Yale-háskóla, einn merkasti
hagfræðingur allra tíma og jafn-
framt næstum örugglega hinn
afkastamesti, þótt hann þyrfti að
eyða þremur árum á berklahæli.
Ritaskrá hans telur 2.425 ritverk.
Fisher lét sér fátt óviðkomandi á
vettvangi hagfræðinnar og var jafn-
framt snjall uppfinningamaður.
Hann fann t.d. upp spjaldskrána,
gagnlegt skrifstofutæki sem lifði
fram á tölvuöld. Hann setti fyrstur
manna fram vísitölur svo annað
dæmi sé tekið úr hversdagslífinu.
Hann fór eins og eldibrandur milli
fyrirlestrasala og barðist m.a. fyrir
bindindi (hann var bannmaður),
grænmetisáti og hreinlæti. Fisher
var fyrsta rokkstjarna hagfræð-
innar.
Ein fyrirlestraferðin endaði
illa. Fisher fór um öll Bandaríkin
1929 til að lýsa þeirri skoðun
að verðhækkun hlutabréfa væri
komin til að vera: Ekkert að ótt-
ast, sagði hann. Bréfin hrundu
þá um haustið og efnahagslífið
með og þá einnig orðstír Fishers.
Samt skrifuðu fáir af meira viti
og dýpri skilningi en hann um
heimskreppuna eftir á, orsakir
hennar og afleiðingar. En Fisher
fékk ekki að njóta sannmælis fyrir
þau skrif fyrr en menn dustuðu af
þeim rykið í bankahremmingum
síðustu ára.
Bensíngjöf og bólusetningar
Hinn risinn var Bretinn John
Maynard Keynes (1883-1946),
upphafsmaður þjóðhagfræði
nútímans. Hann var ekki síður
fjöllyndur en Fisher, ýmist
háskólakennari í Cambridge eða
embættismaður í London, lista-
verkasafnari og ballettunnandi,
kvæntist rússneskri ballerínu.
Hann vakti fyrst athygli með því
að rísa gegn Versalasamningunum
1919 í bók þar sem hann spáði rétt
fyrir um efnahagslegar afleiðingar
skaðabótanna sem Bandaríkja-
menn, Bretar og Frakkar lögðu á
Þjóðverja eftir stríðið mikla sem
við köllum nú fyrri heimsstyrjöld-
ina. Frægastur varð Keynes fyrir
að rísa gegn ríkjandi hagfræði
sem kenndi að kreppan mikla
sem hófst 1929 yrði aðeins tíma-
bundin. Tíminn leið, en kreppunni
slotaði ekki.
Keynes birti höfuðrit sitt 1936
þar sem hann lagði grunninn
að nýrri þjóðhagfræði þar sem
almannavaldið hefur svigrúm
til að vernda efnahagslífið fyrir
duttlungum einkaframtaksins með
því t.d. að stíga á bensíngjöfina
þegar heimilin og fyrirtækin
halda að sér höndum og efnahags-
lífið lendir af þeim sökum í lægð.
Þessu fræðilega framlagi Keynes
á heimsbyggðin það að þakka að
bankahremmingarnar í Bandaríkj-
unum 2007-2008 leiddu ekki af sér
nýja heimskreppu. Þeir sem halda
áfram að berjast gegn arfleifð
Keynes af stjórnmálaástæðum eru
næsti bær við fólkið sem berst nú
gegn bólusetningu barna.
Deilur um verðlaun
Bókmenntaverðlaun Nóbels hafa
iðulega vakið deilur, ýmist vegna
margra rithöfunda sem verðlauna-
nefndin gekk fram hjá, t.d. Leo
Tolstoy, Henrik Ibsen, Mark Twain,
Anton Chekov, August Strindberg,
Karen Blixen, Graham Greene
og Jorge Luis Borges, eða vegna
óverðugra höfunda sem sátt náðist
um í nefndinni.
Hagfræðiverðlaunin hafa ekki
vakið umtalsverðar deilur nema
tvisvar, í fyrra skiptið þegar Milton
Friedman (1912-2006), prófessor
í Chicago, hlaut verðlaunin 1976
og pólitískum andstæðingum
hans var ekki skemmt. Friedman
var samt fyllilega verður verð-
launanna. Hitt skiptið var þegar
tveir fjármálaprófessorar hlutu
verðlaunin 1997 og risavaxinn
vogunarsjóður sem þeir stýrðu
ásamt öðrum komst í sögulegt þrot
árið eftir svo að bandarískt efna-
hagslíf lék á reiðiskjálfi.
Fátækt skiptir máli
Fyrir nokkrum dögum tilkynnti
Nóbelsnefndin í Stokkhólmi að
hagfræðiverðlaunin í ár hljóti
Angus Deaton, prófessor í Prince-
ton-háskóla í Bandaríkjunum,
fyrir tölfræðilegar rannsóknir m.a.
á fátækt og ójöfnuði. Deaton er
Skoti, tæplega sjötugur að aldri.
Hann sezt við hljóðfærið heima hjá
sér flesta daga og spilar m.a. verk
Chopins og Schumanns. Hann birti
dásamlega bók í hittiðfyrra þar sem
hann kortleggur framför heimsins
síðustu 250 ár með því að reifa
hagtölur og heilbrigðistölur hlið
við hlið (The Great Escape: Health,
Wealth, and the Origin of Inequa-
lity, 2013). Framför heimsins lýsir
sér ekki aðeins í meiri tekjum og
minna erfiði, heldur einnig og ekki
síður í auknu heilbrigði og langlífi.
Með þessari verðlaunaveitingu
sendir Nóbelsnefndin skýr
skilaboð: Fátækt skiptir máli. Það
er holl brýning nú þegar heims-
byggðin á í vök að verjast fyrir árás
taumlausrar græðgi á grunnstoðir
samfélagsins.
Og svo er það einnig ánægjuleg
upplyfting að ár eftir ár skuli berast
fréttir frá Nóbelsnefndunum í
Stokkhólmi af frækilegum sigrum í
fræðum og vísindum ekki síður en
t.d. íþróttum.
Nóbelsverðlaun og misskipting
Þorvaldur
Gylfason
prófessor
Í dag
Með þessari verðlaunaveit-
ingu sendir Nóbelsnefndin
skýr skilaboð: Fátækt skiptir
máli. Það er holl brýning nú
þegar heimsbyggðin á í vök
að verjast fyrir árás taum-
lausrar græðgi á grunnstoðir
samfélagsins.
FIMMTUDAGUR
OKTÓBER
15
Kl. 17 Setning Menningarhátíðar Seltjarnarness 2015
Gallerí Grótta & Bókasafn Seltjarnarness
Kl. 17 Taktur í 100 ár
Gallerí Grótta - Sýningaropnun
Kl. 17 Taktur í 100 ár
Bókasafn Seltjarnarness - Sýningaropnun
Kl. 20 Landbrot
Sýningarsalur í Nesi - Opnunarhátíð
Kl. 20 Undrabörn Mary Ellen Mark
Nesstofa - Sýningaropnun
Kl. 9 Morgunhugleiðsla og orkuskot
Systrasamlagið
Kl. 9.30 Neshreysti
Plan við Sundlaug
Kl. 10.30 Morgunverðarboð fyrir bæjarbúa
Eiðistorg
Kl. 12 Músin Marta
Bókasafn Seltjarnarness
Kl. 13 Lyfjafræðisafnið
Sýning
Kl. 11 Bach fyrir börnin
Seltjarnarneskirkja
Kl. 15 Hvað er að virka?
Bókasafnið - Umræður um unglingabækur
Kl. 16 Taktur í 100 ár
Bókasafnið - Leiðsögn og spjall nemenda
Kl. 16.30 Taktur í 100 ár
Gallerí Grótta - Leiðsögn sýningarstjóra
Kl. 17 Lúðrasveit Tónó ásamt sólistum
Eiðistorg - Helgi Hrafn / Tribute
Kl. 18 Pop Quiz
Eiðistorg
FÖSTUDAGUR
OKTÓBER
16
LAUGARDAGUR
OKTÓBER
17
Kl. 16 Á Valhúsahæð - Tónlistarhátíð Nesbúa 2015
Seltjarnarneskirkja
Kl. 21 Tina Dickow, Helgi Hrafn Jónsson og félagar
Félagsheimili - tónleikar UPPSELT
Kl. 10 Seltjarnarneskirkja
Fræðsla, guðþjónusta, sýning og markaður
Kl. 14 Heiðursdagskrá um Jennu Jensdóttur
Félagsheimili
Kl. 18 Friðrik Karlsson og Nýjaland
Seltjarnarneskirkja - Hugleiðsla
Kl. 21 Tina Dickow, Helgi Hrafn Jónsson og félagar
Félagsheimili - Aukatónleikar UPPSELT
SUNNUDAGUR
OKTÓBER
18
15.10.15 - 18.10.15
MENNINGARHÁTÍÐ
SELTJARNARNESSNánari dagskrá á www.seltjarnarnes.is
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 25F i M M T u d a g u R 1 5 . o k T ó B e R 2 0 1 5