Fréttablaðið - 15.10.2015, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 15.10.2015, Blaðsíða 60
Í kvöld ætlar tónlistarmaðurinn Kristján Kristjánsson, flestum þekktur sem KK, að stíga á Litla svið Borgarleikhússins og frumsýna ein- leikinn Vegbúar sem hann samdi í samvinnu við Jón Gunnar Þórðar- son sem jafnframt er leikstjóri sýningarinnar. Kristján segir að leikhúsið sé honum nú ekki ókunn- ugt en óneitanlega sé Jón Gunnar leikhúsmaðurinn í tvíeykinu. „Jón Gunnar er búinn að vera lengi að í leikhúsinu þrátt fyrir ungan aldur og innan leikhússins vita allir hver hann er. Hann hefur starfað víða og er menntaður í Englandi þar sem hann vann til að mynda með Kevin Spacey í einhverju Shakespe- are-brölti. Við kynntumst fyrir ein- hverjum átta árum þegar hann setti upp Fool for Love eftir Sam Shepard með leikhópi sem hét Silfurtunglið og þar fékk hann gamla manninn til þess að koma og leika. Þessi sýning gekk ljómandi vel og fékk tvær til- nefningar til Grímuverðlauna. Við mættum að sjálfsögðu þangað og þar varð til þessi hugmynd að búa til leikrit sem byggir á sögu gítar- anna minna. Það er það sem við erum svo að fara að sýna í kvöld. Verkið er sem sagt byggt í kringum mína reynslu af gítur- unum í gegnum tíðina og tengist líka ýmsum gítarleikurum s.s. John Lennon, Joe Hill og hinum og þessum snillingum. En gítararnir á sviðinu eru níu talsins, allir úr mínum ranni, en sá elsti er hundrað og fimm ára gamall. Ég er að segja söguna af því hvernig þessir gítarar hafa komið upp í hendurnar á mér. Þeir hafa svona ratað einhvern veginn til mín. Þessi saga tengist svo stundum heiminum og tónlistinni og hvern- ig tónlistin hefur stundum breytt gangi mála í heiminum. Það er einn tónn sem lifir og það er sama hvað þeir skjóta menn þá er einn tónn sem lifir. Það er búið að skjóta marga en þeir lifa enn. Þetta fjallar soldið um það og er svona tónninn í þessu.“ Kristján segir að hann tengi þetta líka við sína persónulegu sögu og fjölskyldusögu í gegnum árin. „Hvernig sum lögin hafa orðið til og hvaðan þau spretta. Það tekur alveg soldið á að fara í svona persónulegt verkefni. En ég ræð soldið hversu langt er gengið vegna þess að við skrifum þetta saman, við Jón Gunn- ar. Maður vill ekki vera að bera allt á torg svo ég fæ að halda aðeins í taumana með þennan persónulega þátt. En reyndar er nú mikið af tón- listinni sem ég hef samið í gegnum árin soldið ævisögulegt og byggir oft á þeirri reynslu sem ég hef öðlast á minni lífsleið. Og reynsla mín er ekkert ólík reynslu allra. Þetta er eins og ef þú hlustar á eitthvert lag og það snertir þig, þá er það út af þeirri reynslu sem þú hefur öðlast í lífinu. Kannski er svipuð reynsla að baki hjá þeim sem samdi lagið og þeim sem hlustaði en hún getur líka verið gjörólík en tengingin og tilfinningarnar skríða samt fram á eigin forsendum. Málið er að það er sammannlegur strengur í tón- listinni og tónninn lifir.“ Kristján á að baki langan feril sem trúbador og að mörgu leyti er stutt á milli trúbardorsins og leik- hússins. „Já, það má vel segja það. Þetta er sögustund hjá trúbadorn- um KK sem byggir bæði á minni persónulegu reynslu og svo tengir maður í tónlistinni við stórkostlega tónlistarmenn á borð við Lennon, Bítlana og marga aðra og hvernig þeir hafa getað nýtt gítarinn til þess að skýla sér. Í raun og veru má segja að gítarinn hafi bjargað lífi mínu. En vilji fólk fá að komast að því hvernig gítarinn bjargaði lífi mínu, sem hann hefur gert oftar en einu sinni, þá þarf það að koma og sjá leikritið,“ segir Kristján og hlær sínum hlýja ráma hlátri. Gítarinn hefur oft bókstaflega bjargað lífi mínu KK frumflytur einleikinn Vegbúar á Litla sviði Borgarleikhússins og með í för eru gítararnir hans níu sem allir hafa merkar sögur að segja sem KK og Jón Gunnar Þórðarson draga saman fram í dagsljósið. Jón Gunnar Þórðarson og Kristján Kristjánsson á Litla sviði Borgarleikhússins með góða gítara. FréttaBLaðið/GVa Hin vel þekkta gamanópera Ross- inis Rakarinn frá Sevilla er haust- verkefni Íslensku óperunnar í ár og verður frumsýning næsta laugardag í Eldborg Hörpu. Með titilhlutverk- ið, hlutverk rakarans Fígarós, fer baritónsöngvarinn Oddur Arnþór Jónsson sem var valinn Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaun- unum í vor. Rakarinn frá Sevilla hefur notið vinsælda og velgengni í tæp 200 ár allt frá frumflutningi árið 1816 og Oddur segist vissulega vona að það verði nú ekki lát á þessum vinsældum nú þegar hann stígur á svið á laugardagskvöldið í hlutverki rakarans geðþekka. „Í grunninn er þetta einföld ástarsaga. Greifinn Almaviva fellur fyrir Rosinu og þráir ekkert heitar en að ná ástum hennar. En Rosina býr hjá verndara sínum Bartolo og hann ætlar að giftast henni á þessum degi sem óperan gerist á. Þannig að greifinn fær rakarann ráðagóða til liðs við sig til þess að bjarga málum og þeir þurfa að hafa hraðar hendur ef ekki á illa að fara. Rakarinn er svona gaur sem þarf að bjarga öllu, hann er algjör vængmaður eins og sagt er, enda með það eina markmið að koma greifanum og Rosinu saman.“ Oddur segist halda að það sem liggi að baki þessum tveggja alda vinsældum verksins sé einfald- lega fyrst og fremst samþætting einfaldrar og skemmtilegrar sögu og áheyrilegrar tónlistar. „Þetta bara passar allt svo vel saman og er fyndið og skemmtilegt. En fyrir þá sem hafa áhyggjur af kunnáttu- leysi í ítölskunni má benda á að sýningin er textuð þannig að það þarf enginn að missa af neinu. Við reynum líka að gera allt skýrt og skemmtilegt þannig að fólk njóti sýningarinnar vel. En svo erum líka með alveg fádæma skemmtilegan hóp á svið- inu og það skiptir líka miklu máli. Það er afskaplega skemmtilegt að vinna með Gissuri Páli Gissurarsyni sem fer með hlutverk greifans. Giss- ur er svona gaur sem er bara ógeðs- lega fyndinn og skemmtilegur og við erum saman í búningsklefa og alltaf saman á sviðinu líka þannig að við erum bara brosandi hring- inn allan liðlangan daginn.“ Oddur segir að þrátt fyrir öll þessi skemmtilegheit þá sé það ekkert endilega léttara verkefni að takast á við hlutverk á borð við rakarann en dramatískari hlutverk. „Mér finnst rosa gott að syngja dramatísk hlutverk og taka dramatíkina út þar. Það er reyndar mjög erfitt að syngja hlutverk rakarans, maður má kannski ekki segja svona, en þetta liggur mjög hátt svo þetta er ekkert sem maður gerir bara með vinstri. Núna í frum- sýningarvikunni þarf maður aðeins að passa sig og svo fær maður frí á föstudagskvöldið til þess að vera vel hvíldur og ferskur á laugardags- kvöldið.“ Við söngvararnir hlæjum og skemmtum okkur konunglega allan daginn Magnús Guðmundsson gudsteinn@frettabladid.is 1 5 . o k t ó b e r 2 0 1 5 F I M M t U D A G U r44 M e n n I n G ∙ F r É t t A b L A ð I ð Maður ViLL eKKi Vera að Bera aLLt á torG sVo éG fæ að haLda aðeins í tauMana Með Þennan persónuLeGa Þátt. en reyndar er nú MiKið af tónListinni seM éG hef saMið í GeGnuM árin soLdið æVisöGuLeGt oG ByGGir oft á Þeirri reynsLu seM éG hef öðLast á Minni LífsLeið. Það er reyndar MJöG erfitt að synGJa hLutVerK raKarans, Maður Má KannsKi eKKi seGJa sVona, en Þetta LiGGur MJöG hátt sVo Þetta er eKKert seM Maður Gerir Bara Með Vinstri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.