Fréttablaðið - 15.10.2015, Blaðsíða 22
Japanska flugfélagið All Nippon Airways hefur látið merkja Boeing 787-9 þotu flugfélagsins með tilvísunum í Stjörnustríðsmyndirnar. Flugvélin
hefur verið nefnd eftir vélmenninu geðþekka R2-D2. Fyrsta flug þotunnar verður frá Tókýó á laugardaginn, ætlað aðdáendum myndarinnar sem
gert verður að klæðast Stjörnustríðsbúningum í fluginu. nordicphotos/afp
Stjörnustríð í háloftunum
Ekki er búið að kynna afstöðu
Seðlabanka vegna áforma slita
stjórna föllnu bankanna um
greiðslu stöðugleikaframlags fyrir
stýrinefnd um afnám fjármagns
hafta. Bjarni Benediktsson fjár
málaráðherra hefur verið staddur
erlendis á ársfundi Alþjóðagjald
eyrissjóðsins í Perú og heimsfundi
OECD í Mexíkó en hann kemur til
landsins í dag.
Kynna átti afstöðu Seðlabank
ans opinberlega þriðjudaginn 6.
október samhliða útgáfu ritsins
Fjármálastöðugleika. Því var
frestað þar sem ekki hefði tekist
að kynna málið fyrir stýrinefnd
inni. – sg
Nefndin enn
ekki fengið
kynningu
Fasteignaverð mun hækka um 25 pró
sent á þessu ári og út árið 2017 gangi
ný þjóðhagsspá Íslandsbanka eftir.
Íbúðarverð muni því hækka um 16
prósent að raunvirði á spátímabilinu.
Þá verði raunverð íbúðarhúsnæðis
orðið hærra en það var árið 2005 og því
„nokkuð hátt sögulega séð“.
Aðspurður hvort hætta sé á fast
eignabólu segir Ingólfur Bender,
forstöðumaður Greiningardeildar
Íslandsbanka, að hafa þurfi auga með
verðþróun á ákveðnum svæðum, til að
mynda í miðbæ Reykjavíkur.
„En við erum ekki að segja að
hækkanirnar séu ekki studdar efna
hagslegum rökum, alls ekki því að
fasteignaverð hefur fylgt ágætlega
vel launaþróun og kaupmáttarþróun.“
segir Ingólfur en Íslandsbanki spáir ríf
lega 5 prósenta vexti kaupmáttar launa
bæði árin 2015 og 2016.
Þá sé ekki að sjá að hækkun íbúða
verðs sé drifin áfram af lántökum
líkt og gerðist á árunum fyrir banka
hrun. Skuldir almennings séu fremur
að lækka. Einnig sé búið að herða á
reglum um greiðslumat.
Verðhækkanir í póstnúmeri 101
skýrist að stórum hluta af vexti ferða
þjónustunnar enda hefur mikið af
íbúðum þar verið leigt út til ferða
manna. Ingólfur bendir á að þau
hótelherbergi sem nú séu í byggingu
muni rétt ná að halda í við fjölgun
ferðamanna.
Því sé ekki að vænta að nýjar hótel
byggingar nái að mæta eftirspurn eftir
húsnæði í miðbæ Reykjavíkur.
Ingólfur segir merkilega lítið hafa
verið byggt af íbúðum að undanförnu
miðað við hve fasteignaverð hefur
hækkað hratt og mikið.
„Þar vil ég meina að hertar reglur
um gæði eigna séu að halda svolítið
aftur af því annars vegar og hins vegar
var talsvert af ónýttum eignum á
hliðar línunni eftir hrunið sem þurfti
að koma í umferð áður en menn fóru
að byggja nýtt,“ segir hann og bætir
við: „Fjárfesting í íbúðarhúsnæði
heldur áfram að vera tiltölulega lítil
og nær ekki nema rétt upp í meðaltal
síðustu áratuga sem hlutfall af lands
framleiðslu undir lok spátímabilsins
þrátt fyrir að menn sjái hér krana í
hverju horni.“
Helst verði það áform stjórnvalda
um að byggja 2.300 nýjar félagslegar
leiguíbúðir á næstu fjórum árum sem
muni drífa áfram fjárfestingar í íbúðar
húsnæði. ingvar@frettabladid.is
Búast við 25 prósenta
hækkun fasteignaverðs
Íslandsbanki spáir því að húsnæðisverð hækki um fjórðung til ársloka 2017.
Þá verði fasteignaverð hærra að raungildi en árið 2005. Fylgjast þurfi vel með
fasteignaverði í miðbænum. Lítið hafi verið byggt miðað við verðhækkanir.
Twitter hefur ráðið fyrrverandi for
stöðumann viðskiptasviðs Google,
Omid Kordestani, sem nýjan
stjórnar formann fyrirtækisins.
Kordestani er fyrsti stjórnarfor
maður Twitter sem ráðinn er utan
fyrirtækisins.
Vonir eru bundnar við það að
hann geti veitt fyrirtækinu nýja
innsýn, en það hefur átt í miklum
erfiðleikum við að fjölga notendum
sínum umfram 300 milljónir mán
aðarlega. Twitter tilkynnti í vikunni
að til stæði að fækka starfsmönnum
um 336 vegna skipulagsbreytinga.
Kordestani hóf störf hjá Google
árið 1999 en sagði upp störfum í
ágúst. Í millitíðinni var hann ráð
gjafi Google á meðan það gekkst
undir breytingar og varð að
Alphabet.
Kordestani hafði ekki verið mjög
virkur á Twitter áður en hann var
ráðinn, og hafði einungis tíst átta
sinnum, hann hefur nú tíst fjórum
sinnum í viðbót um nýja starfið. – sg
Nýr stjórnarformaður
Twitter tíst tólf sinnum
„Eins og staðan er núna er ég mjög
efins um að það sé raunhæfur mögu
leiki,“ segir Björn Óli Hauksson, for
stjóri Isavia, um áform um að byggja
nýjan alþjóðaflugvöll við Hvassahraun.
Niðurstaða skýrslu Rögnunefndar
innar sem birtist í sumar var að hag
kvæmast væri að byggja flugvöll fyrir
innanlandsflug í Hvassahrauni af
þeim kostum sem komu til skoðunar.
Ein helsta forsendan fyrir því væri að
flugvöllurinn gæti orðið alþjóðaflug
völlur sem myndi taka við millilanda
flugi af Keflavíkurflugvelli.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
Reykjavíkur, sendi innanríkisráðu
neytinu bréf í sumar þar sem óskað
var eftir að hefja viðræður um stofn
un undirbúningsfélags um flugvöll í
Hvassahrauni. Því bréfi hefur enn ekki
verið svarað.
Björn telur brýnt að hefja uppbygg
ingu á Keflavíkurflugvelli sem fyrst því
hann sé nú þegar sprunginn á háanna
tíma. Búist er við að umferð um flug
völlinn muni nær tvöfaldast fram til
ársins 2020.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir að
fyrsta áfanga við stækkun flugvallarins
muni hefjast árið 2017 og kosti 70 til
90 milljarða króna. Eigi að færa milli
landaflug í Hvassahraun tefjist það
að Ísland geti tekið á móti auknum
straumi ferðamanna. – ih
Millilandaflug ekki bæði í
Keflavík og Hvassahrauni
fasteignaverð hefur hækkað einna mest í miðbæ reykjavíkur. fréttablaðið/vilhelm
Fjárfesting í íbúðar-
húsnæði heldur
áfram að vera tiltölulega lítil
og nær ekki nema rétt upp í
meðaltal síðustu áratuga sem
hlutfall af landsframleiðslu
undir lok spátímabilsins
þrátt fyrir að menn sjái hér
krana í hverju
horni.
Ingólfur Bender,
forstöðumaður
Greiningardeildar
Íslandsbanka
omid Kordestani
nýr stjórnar-
formaður Twitter
Eins og staðan er
núna er ég mjög
efins um að það sé raun-
hæfur mögu-
leiki.
Björn Óli Hauksson,
forstjóri Isavia
„Þetta verða eins konar þjálfunar
búðir fyrir stjórnarmenn og stjórnar
formenn, bæði núverandi og verð
andi,“ segir Eyþór Ívar Jónsson um
nýtt nám sem ætlað er núverandi
og verðandi stjórnarmönnum
fyrirtækja. Rannsóknarmiðstöð um
stjórnarhætti og Viðskiptafræði
stofnun standa að náminu og hefst
námið í nóvember.
Eyþór segir ekki vanþörf á að þjálfa
stjórnarmenn enda sé stjórnar seta
flókið starf. Stjórnarmenn hafi oft
lítinn tíma til að kynna sér mál og
þurfi að vera vel inni í mörgum hlið
um fyrirtækjareksturs. Námið verði
byggt upp á samræðum og raun
dæmum sem fólk úr atvinnulífinu
leggur fyrir nemendur. – ih
Kemur á fót
námi fyrir
stjórnarmenn
Viðskipti
1 5 . o k t ó b e r 2 0 1 5 F I M M t U D A G U r22 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A ð I ð