Fréttablaðið - 15.10.2015, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 15.10.2015, Blaðsíða 66
15. október 2015 Ráðstefnur Hvað? Láttu tónlistarveiturnar vinna fyrir þig Hvenær? 14.00 Hvar? Norræna húsið, Sturlugötu 5 Ráðstefna á vegum STEF og ÚTÓN þar sem markmiðið er að skoða tekjumódel tónlistarveitna og hvernig tónlistarmenn geta fengið sem mest út úr þeim. Ýmsir inn­ lendir og erlendir gestir koma og flytja erindi. Meðlimir STEFs fá frítt inn en almennt miðaverð er 3.000 krónur. Skráið þátttöku á icelandmusic@icelandmusic.com. Tónlist Hvað? Hamingjan og Úlfurinn – Jónas Sig. og Héðinn Unnsteinsson Hvenær? 20.00 Hvar? Salurinn, Kópavogi Tónlistarmaðurinn Jónas Sigurðs­ son leikur tónlist sína og rithöf­ undurinn Héðinn Unnsteinsson, sem skrifaði bókina Vertu úlfur, gerir Lífsorðunum 14 skil og fjallar Hvað? Hvenær? Hvar? Fimmtudagur um lífsreynslu sína. Miðaverð er 3.900 krónur. Hvað? Vegbúar með KK Hvenær? 20.00 Hvar? Borgarleikhúsið, Listabraut 3, Reykjavík Tónlistarmaðurinn KK stígur á svið og segir sögu gítaranna sinna sem hafa fylgt honum í blíðu og stríðu í gegnum árin. Hann greinir frá upp­ runa þeirra og sérstökum tengslum sínum við hvern og einn þeirra – allir tengjast þeir á einn eða annan hátt skrautlegu lífi og örlögum erlendra trúbadora sem áttu það sameigin­ legt að þrá réttlæti og frelsi. Í verkinu tvinnast þessar sögur saman við lífshlaup KK sjálfs, spurt er um mikil­ vægi tónlistarinnar, mátt hennar í hörðum heimi og leitina eilífu að hinum eina sanna tóni. KK slær á sína alkunnu strengi og fer með áhorfendur í ógleymanlegt ferðalag. Verð 5.500 krónur. Hvað? Högni Egilsson Hvenær? 20.30 Hvar? Landnámssetur Íslands, Brákar- braut 13-15 Högni leikur efni úr ýmsum áttum en hann hefur samið mikið af tón­ list ásamt hljómsveitunum Hjalta­ lín og GusGus auk sólóverkefnis­ ins HE. Miðaverð er 2.500 krónur. Hvað? Lára Rúnars Hvenær? 21.00 Hvar? Café Rósenberg, Klapparstígur 27 Lára Rúnars hefur tónleikaröð sína á Café Rósenberg í kvöld. Hún mun leika lög af nýútkominni plötu sinni, Þel, ásamt eldra efni. Miðaverð er 2.000 krónur. Hvað? Fiddlebox Hvenær? 21.00 Hvar? Græni hatturinn, Hafnarstræti 96 Dúettinn Fiddlebox stígur á svið á Græna hattinum í kvöld. Sérstakur gestur er trommuleikarinn Stein­ grímur Guðmundsson. Hvað? Laser Life Hvenær? 21.00 Hvar? Mengi, Óðinsgötu 2 Raftónlistarmaðurinn Laser Life, eða Breki Steinn Mánason, flytur lög af plötunni Polyhedron. Platan byggir á hljóðheimi sem á rætur að rekja í gamla tölvuleiki á borð við NES og Saga Genesis. Miðaverð er 2.000 krónur. Hvað? Dúndurfréttir Hvenær? 21.00 Hvar? Hljómahöll, Hjallavegi 2 Hljómsveitin fagnar tuttugu ára afmæli. Á tónleikunum flytja Dúndurfréttir klassískt rokk eins og það gerðist best en sveitina skipa þeir Matthías Matthíasson, Pétur Örn Guðmundsson, Einar Þór Jóhannsson, Ólafur Hólm og Ingimundur Óskarsson. Miðaverð er 3.500 krónur. Frumsýning Hvað? Þú kemst þinn veg Hvenær? 20.30 Hvar? Tjarnarbíó, Tjarnargötu 12 Einleikur eftir Finnboga Þorkel Jónsson sem byggður er á sögu Garðars Sölva Helgasonar sem glímt hefur við geðklofa frá unga aldri. Verkið er byggt á viðtölum Finnboga við Garðar en Finnbogi flytur jafnframt einleikinn. Miða­ verð er 2.900 krónur. Uppistand Hvað? Uppistand í Comedy klúbbnum Hvenær? 21.30 Hvar? Bar 11, Hverfisgötu 18 Uppistand á ensku með þeim York Underwo­ od, Jona than Duffy, Rökkva Vésteinssyni og Sigurði Antoni Friðþjófssyni. Miðaverð er 1.000 krónur. Sýningar Hvað? Circum-Arctic Art sýning Hvenær? 10.00 Hvar? Gamla bíó, Ingólfsstræti 2a Sýningin er vettvangur fyrir handverk og listir frumbyggja frá svæðunum við norðurheimskautsbaug. Í boði eru sölusýning, vinnustofur, sviðs­ listir, kvikmyndasýningar og fleira. Sýningin stendur yfir til 19. október næstkomandi og er miðaverð 2.200 krónur. Opnanir Hvað? RUMSK Hvenær? 17.00 Hvar? Menningarhús, Spönginni 41 Systurnar Sigrún og Ólöf Einarsdætur sýna gler­ og textílverk. Verk þeirra eru innblásin af hinum stöðugu átökum ytri og innri krafta hinnar íslensku náttúru. Sýningin stendur til 9. janúar 2016. Listamannaspjall Hvað? Heimurinn án okkar Hvenær? 20.00 Hvar? Hafnarborg, Strandgötu 34 Myndlistarkonurnar Björg Þorsteins­ dóttir og Brynhildur Þorgeirsdóttir ræða við gesti um verk sín á sýning­ unni Heimurinn án okkar. Á sýning­ unni eru leiddir saman íslenskir lista­ menn sem vinna með hugmyndir um alheiminn í verkum sýnum og varpa ljósi á ákveðna þætti hans á margvís­ legan máta. Uppákomur Hvað? Jafnréttisdaga-pubquiz ung- mennaráðs UN Women Hvenær? 20.00 Hvar? Loft Hostel, Bankastræti 7 Ungmennaráð UN Women lætur sig ekki vanta á Jafnréttisdaga og stendur fyrir PubQuiz á Lofti Hos­ teli kl. 20 þann 15. október. Tveir til fjórir saman í liði, óþarfi að skrá liðið, bara mæta á staðinn. Þemað verður kvenhetjur og við lofum mikilli skemmtun! Vinningar verða ekki af verri endanum. Hvetjum alla til að mæta! Viðburðurinn er hluti af Jafn­ réttisdögum og aðgangur er ókeypis. Hvað? Höfundakvöld Hvenær? 20.00 Hvar? Gunnarshús, Dyngjuvegi 8 Linda Vilhjálmsdóttir, Bubbi Morthens og Óskar Árni Óskarsson koma á fyrsta Höfundakvöld haustsins í Gunnars­ húsi. Þar ræða þau um nýútkomin verk sín við Hauk Ingvarsson. Allir vel­ komnir, aðgangur 1.000 krónur. Fyrirlestrar Hvað? Fyrirlestraröð um Sturlungaöld Hvenær? 16.30 Hvar? Salur 132, Öskju, Háskóla Íslands Miðaldastofa Íslands stendur fyrir fyrirlestraröð um Sturlungaöld annan hvern fimmtudag í vetur. Í dag verða fluttir tveir fyrirlestrar. Sverrir Jakobsson, prófessor í miðaldasagnfræði, flytur erindið Gissur, Hrafn og Brandur – Kon­ ungstaka Íslendinga 1262­1264, og Gunnar Karlsson, prófessor í sagn­ fræði, erindið Noregskonungur sök á Sturlungaöld? Aðgangur er ókeypis. Félagsvist Hvað? Félagsvist Hvenær? 20.00 Hvar? Salur Skaftfellingafélagsins, Laugavegur 178 Félagsvist á vegum Rangæinga­ og Skaftfellingafélagsins. Vegleg verð­ laun í boði og kaffiveitingar. Allir velkomnir. Högni Egilsson spilar á Borgarnesi í kvöld. FréttaBlaðið/StEFán lára rúnars spilar á Café rósenberg í kvöld. KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI AKUREYRI KEFLAVÍK EGILSHÖLLÁLFABAKKA LEGEND KL. 8 - 10:45 BLACK MASS KL. 8 - 10:30 THE INTERN KL. 5:30 INSIDE OUT ÍSLTAL 2D KL. 5:50 LEGEND KL. 5:10 - 8 - 10:45 BLACK MASS KL. 6 - 9 - 10:10 BLACK MASS VIP KL. 10:40 THE INTERN KL. 5:20 - 8 - 10:40 EVEREST 3D KL. 5:20 - 8 - 10:40 EVEREST 2D VIP KL. 5:20 - 8 VACATION KL. 8 INSIDE OUT ÍSLTAL 2D KL. 5:50 LEGEND KL. 5:20 - 8 - 10:40 BLACK MASS KL. 5:20 - 8 - 10:35 THE INTERN KL. 8 - 10:35 EVEREST 3D KL. 8 EVEREST 2D KL. 5:20 - 10:35 HÓTEL TRANSYLVANÍA 2 ÍSLTAL 2D KL. 5:20 LEGEND KL. 5:10 - 8 - 10:45 BLACK MASS KL. 8 - 10:40 THE INTERN KL. 5:20 - 8LEGEND KL. 10:10 KLOVN FOREVER KL. 8 BLACK MASS KL. 10:45 THE MARTIAN 2D KL. 8 bio. siSAM Ein besta gamanmynd þessa árs með Óskarsverðlaunaleikurunum Robert DeNiro & Anne Hathaway. Sýnd með íslensku tali JOHNNY DEPP ER STÓRKOSTLEGUR Í HLUTVERKI SÍNU SEM JAMES „WHITEY“ BULGER. Vissir þú að fyrverandi ungfrú Ísland er ástæðan fyrir því að einn alrlæmdasti glæpamaður USA náðist?  VARIETY  THE WRAP  ROLLING STONE  USA TODAY    TOTAL FILM TIME OUT LONDON EMPIRE   TIME OUT LONDON NEW YORK DAILY NEWS Sýningartímar á eMiði.is og miði.is KLOVN FOREVER 5:50, 8, 10 THE MARTIAN 3D 7 EVEREST 3D 5:30, 8 SICARIO 10:30 HÓTEL TRANSYLV. 2D ÍSL 5 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar Stille Hjerte 18:00, 22:15 Stúlkurnar á Kleppjárnsreykjum 18:00 Hrútar 18:00 Fúsi 20:00 Love 3D 22:00 Red Army 22:00 HAPPY HOUR Á BARNUM 17-20 L…GFR®ÐIAÐSTOÐ ORATORS - fŽlag laganema við H‡sk—la êsland 1 5 . O k T ó b e R 2 0 1 5 F I M M T U D A G U R50 M e n n I n G ∙ F R É T T A b L A ð I ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.