Fréttablaðið - 15.10.2015, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 15.10.2015, Blaðsíða 2
Veður Í dag verða suðvestan 8 til 13 metrar á sekúndu á landinu, en þó gæti verið heldur hvassara nyrst. Með hlýju lofti kemur raki og því má búast við súldarlofti sunnan og vestanlands en útlit fyrir bjartviðri um austanvert landið. Sjá SÍðu 40 Skólabörn skunda á brott Afþreying Lokið hefur verið við hönnun á nýju stigakerfi fyrir íslenska útgáfu skrafls, stafaleiks­ ins sem byggir á erlendu útgáfunni Scrabble. Að nýja skraflinu stendur Skraflfélag Íslands og segir Jóhann­ es Benediktsson, formaður félags­ ins, að vinna við nýja stigakerfið hafi verið afar umfangsmikil og staðið yfir síðasta hálfa árið. Gamla stigakerfið segir hann vera frá 1990. Það hafi verið búið til af metnaði, en um leið nokkrum vanefnum, enda ekki við tölvukost nútímans að styðjast.  Við nánari skoðun hafi það reynst mein­ gallað. Hafi leikmaður dregið eina ú­ið voru til dæmis yfir helmings­ líkur á sigri hans. Þessi og fleiri van­ kantar hafi verið lagaðir. „Til dæmis getur sá sem spilar skrafl í nýja kerf­ inu fundið 70 prósentum fleiri orð þegar hann dregur stafi af handa­ hófi úr pokanum, því stafirnir endurspegla nú íslenskuna betur.“ Jóhannes líkir breytingunni við að teknir hafi verið upp alvöruspaðar í borðtennisleik í stað panna. Í vinnslu nýja kerfisins segir Jóhannes að virkjaðir hafi verið allir helstu skraflsérfræðingar landsins, um 40 talsins, þar á meðal tölvukarlarnir Hjálmar Gíslason og Vilhjálmur Þorsteinsson og stærð­ fræðingarnir Stefán Ingi Valdimars­ son og Sigrún Helga Lund. Þá hafi verið leigður tími í ofurtölvu til að aðstoða við tölfræðilegan saman­ burð á rúmlega 10 milljón mögu­ legum „niðurlögnum“ í leiknum. Hefðbundið skrafl segir Jóhannes að hafi verið uppselt hér á landi síðustu ár, en leikurinn sé engu að síður afar vinsæll. Fólk spili þetta heima hjá sér og að auki leiki um ellefu þúsund manns reglulega skrafl á netinu, á vefnum Netskrafl. is. Höfundur netskraflsins er Vil­ hjálmur Þorsteinsson og segir Jóhannes að þar verði nýja kerfið líka tekið upp á næstu dögum. Þá sé von á skrafli um næstu jól sem taki mið af þessu „nýja“ eða „íslenska“ kerfi og verði með nýja stafapok­ ann. Breytingin segir Jóhannes að sé stórmál og jafngildi því í raun að skipta um reglur í skák. Á alþjóða­ vísu hafi hins vegar lengi verið ræddar breytingar á kerfinu án þess að menn hafi getað komið sér saman um þær. „Þetta kemur væntan lega til með að vekja mikla athygli ytra.“ olikr@frettabladid.is Hafa endurhannað vinsælan stafaruglsleik Þeir geta glaðst sem leiðist fjöldi e-a í skrafli. Ofurtölva og helstu sérfræðingar landsins komu að gerð nýs stigakerfis fyrir stafa ruglsleikinn vinsæla. Kerfið verður tekið upp í leiknum netskrafl.is á netinu og von á útgáfu í verslanir líka. Jóhannes Benediktsson, formaður Skraflfélags Íslands, heimsækir reglulega móðurömmu sína, Guðbjörgu Lilju Maríusdóttur, til að spila við hana skrafl. FréttaBLaðið/anton Stjórnmál Arctic Circle­ráðstefnan verður sett í dag. Formleg dagskrá hefst með ljósmyndasýningu fyrir utan Hörpu klukkan 17.30. Ráðstefnan, sem snýr að málefn­ um norðurslóða, fer fram í Hörpu og stendur allt fram á næsta sunnudag. Meðal þeirra sem koma fram á ráð­ stefnunni eru Ólafur Ragnar Gríms­ son forseti, Albert fursti af Mónakó og Philippe Couillard, ríkisstjóri Québec. Ýmsir fræðimenn munu flytja ávarp á ráðstefnunni, meðal ann­ ars frá Háskólanum í Reykjavík, Háskóla Íslands, MIT, Harvard og Tufts­háskóla. Ólafur Ragnar sagði á Bylgjunni að ráðstefnan væri vettvangur fyrir þjóðina til þess að fylgjast með því hvernig staða Íslands breytist. – sg Arctic Circle- ráðstefnan hefst í dag Þessir hressu krakkar áttu leið um Langholtsveginn í gær. Þegar þvera þarf götuna er gott að hafa þá sem eldri eru til að líta eftir sér. FréttaBLaðið/GVa Til dæmis getur sá sem spilar skrafl í nýja kerfinu fundið 70 pró- sentum fleiri orð þegar hann dregur stafi af handahófi úr pokanum. Jóhannes Benediktsson, formaður Skraflfélags Íslands Alþingi Katrín Jakobsdóttir, for­ maður Vinstri grænna, vill rann­ sókn á aðgerðum stjórnvalda gagnvart íslenskum konum á her­ námsárunum. Katrín ræddi þetta málefni undir liðnum störf þings­ ins á þessu á Alþingi í gær og óskaði eftir svari frá innanríkisráðherra vegna málsins. Katrín vakti máls á þessu í tilefni af heimildarmyndinni Stúlkurnar á Kleppjárnsreykjum, sem sýnir aðstæður sem urðu til þess að fjöldi stúlkna var vistaður á vinnuhæli. „Þær aðstæður voru […] her­ námið 1940 sem olli þvílíkum usla í íslensku sam félagi að gripið var til ótrúlegra ráðstafana til að stöðva samskipti þessara stúlkna sem voru á öllum aldri, allt frá ungum stúlkum upp í konur á sjötugsaldri, við hina erlendu hermenn.“ Katrín benti á að svo langt var gengið að sett voru neyðarlög til að lækka sjálfræðisaldur til að hægt væri að koma höndum yfir þessar ungu konur. – bo Katrín vill rannsókn Katrín Jakobsdóttir vill að aðgerðir gegn ástandskonunum verði rannsak- aðar. FréttaBLaðið/Ernir Gripið var til ótrúlegra ráðstafana til að stöðva samskipti þessara stúlkna. Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna 1 5 . o k t ó b e r 2 0 1 5 f i m m t u D A g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.