Fréttablaðið - 15.10.2015, Blaðsíða 50
Í dag
19.15 ÍR - Tindastóll Hertz Hellirinn
19.15 Haukar - Snæfell Schenkerh.
19.15 FSu - Grindavík Iða
19.30 Valur - Víking. Vodafonehöll
19.30 Grótta - ÍR Hertz höllin.
20.00 Fram - UMFA Framhús
Gylfi í úrvalsliðinu
Gylfi Þór sigurðsson, landsliðs-
maður í fótbolta, var valinn í
úrvalslið undankeppni EM 2016
af evrópska knattspyrnusam-
bandinu, en Gylfi spilaði frá-
bærlega með strákunum okkar í
undankeppninni. Gylfi er á þriggja
manna miðju með steven Davis
frá norður-írlandi og David alaba
frá austurríki. framlínan er heldur
betur glæsileg í þessu úrvalsliði,
en þar eru Gareth Bale,
robert lewandowski
og Thomas Müller.
Gylfi Þór skoraði sex
mörk af miðjunni
í undankeppninni
og gaf þrjár
stoðsendingar.
ashley Williams,
samherji Gylfa hjá
swansea, er í varnar-
línu úrvalsliðsins
hjá uEfa.
Körfubolti ír-ingar hafa í meira
en hálfa öld getað kallað sig
sigursælasta körfuboltalið landsins
en nú eru blikur á lofti. lengi leit
út fyrir að njarðvíkingar væru
líklegastir til að ná Breiðhyltingum
en njarðvíkingar hafa ekki unnið
stóra titilinn í að verða áratug og
þess í stað eru það Kr-ingar sem
stefna nú hraðbyri á toppinn.
Kr vann íslandsmeistaratitilinn
annað árið í röð síðasta vor og um
leið í fimmta skiptið á síðustu níu
árum. Þá svart-hvítu vantar því
aðeins einn titil til að ná ír.
Unnu fimmtánda titilinn árið 1977
ír-ingar unnu fimmtánda titil sinn
vorið 1977 og voru þá tíu titlum
á undan erkifjendum sínum úr
vestur bænum. njarðvíkingar unnu
sinn tólfta íslandsmeistaratitil á
rúmum tveimur áratugum árið 2002
en hafa síðan aðeins bætt einum
við og hann kom í hús fyrir níu
árum. Gullöld Kr hefur tekið við
og enginn endir á henni í augsýn.
Metin eru við sjóndeildarhringinn.
Kr-ingar, íslandsmeistarar síð-
ustu tveggja ára, eru ekki aðeins
með lið fullt af landsliðsmönnum
og besta Kana deildarinnar síðustu
ár (Michael Craion) því þeir gerðu
gott enn betra og fengu til sín einn
besta leikstjórnanda landsins (Ægi
Þór steinarsson).
Kr-liðið hefur unnið 21 og 20
leiki síðustu tvö ár en með þennan
mannskap er engin ástæða til
annars en að stefna á 22 sigra
(í 22 leikjum) á þessu tímabili.
Hafi verið pressa á fH-ingum í fót-
boltanum síðasta sumar þá verður
hún alls ekki minni á körfubolta-
liði Kr í vetur. liðið var aðeins sex
stigum frá fullu húsi í spá fyrirliða,
þjálfara og forráðamanna og ekki að
ástæðulausu. allt annað en fimm-
tándi titillinn í húsi væru mikil von-
brigði í vesturbænum og stórfrétt
fyrir alla aðra.
Tindastóll kom mjög mörgum á
óvart með því að ná öðru sætinu á
síðasta tímabili en það er ekki hægt
að koma á óvart ár eftir ár og nú
eru miklu meiri væntingar gerðar
til stólanna. Gömlu mennirnir
eru vissulega einu ári eldri en
hinir ungu og efnilegu leikmenn
liðsins hafa líka bætt við einu ári
í reynslubankann. finninn Pieti
Poikola hefur náð frábærum árangri
með lið sín en það á eftir að koma í
ljós hvort hann nær að byggja ofan
á frábært starf israels Martin eða
reynir að breyta of miklu.
Skref í rétta átt á hverju ári
Haukarnir hafa stigið eitt skref
í rétta átt á hverju tímabili
undir stjórn ívars Ásgrímssonar
undanfarin ár og eru líklegir til að
reyna við eitt skref til viðbótar í
vetur. liðið, sem er nær eingöngu
byggt upp á heimastrákum, fór upp
2013, komst í átta liða úrslitin 2014
og fór í undanúrslitin 2015. Haukar
eru eitt af liðunum sem verða í
baráttunni um annað sætið í vetur.
stjarnan vann lengjubikarinn
og mætir með spennandi lið til
leiks. Justin shouse er enn á eftir
hinum langþráða íslandsmeist-
aratitli og mætir hungraður til
leiks í flottu formi. Garðbæingar
verða með í toppbaráttunni.
fyrir fram er búist við að fjögur
efstu liðin skeri sig úr en það má
alltaf búast við spútnikliði og eitt
þeirra gæti komið úr næsta pakka.
Þar eru lið eins og Þór Þorlákshöfn,
Grindavík, njarðvík, fsu og Kefla-
vík.
Ekkert Suðurnesjalið á topp fimm
suðurnesin hafa verið höfuðvígi
körfuboltans síðustu áratugina en
útlitið er ekkert sérstaklega bjart
ef marka má árlega spá fyrirliða,
þjálfara og forráðamanna. Þar skipa
suðurnesjaliðin þrjú sér í sæti sex,
sjö og átta. Það væri sögulegt enda
hefur alltaf að minnsta kosti eitt lið
frá suðurnesjum verið með heima-
vallarrétt í fyrstu umferð úrslita-
keppninnar. Þetta er líka í fyrsta
sinn í sögu þessarar spár þar sem lið
frá suðurnesjum endar ekki í einu af
þremur efstu sætunum.
Þ a ð va r vi t a ð a ð b æ ð i
Keflavík og Grindavík yrðu í
leikmannavandræðum en það
var aftur á móti búist við miklu af
njarðvík eftir að liðið samdi aftur
við stefan Bonneau. Hásinarslit
Bonneau hafa hins vegar breytt öllu
í ljónagryfjunni og takmarkanir
leikmannahópsins urðu um leið
enn meira áberandi.
Það er samt alltaf hættulegt
að vanmeta liðin þrjú sem hafa
saman unnið 23 af síðustu 32
íslands meistara titlum. Endur-
nýjunin hefur ekki verið í sama
gæðaflokki og áratugina á undan
en „pressuleysið“ gæti gert mörgum
leikmönnum liðanna gott. Það er
líka enginn í Keflavík, njarðvík og
Grindavík að fara að sætta sig við
sjötta sætið, hvað þá það sjöunda
eða áttunda.
Spútnikliðið frá Suðurlandi?
suðurlandið á tvo fulltrúa í
deildinni í ár og bæði liðin fóru alla
leið í undanúrslit lengjubikarsins.
nýliðar fsu burstuðu bæði njarðvík
og Keflavík á leið sinni þangað og
Þórsarar eru búnir að endurheimta
nat-vélina (ragnar nathanaelsson)
sem breytir miklu fyrir liðið.
nýliðar Hattar verða að
berjast fyrir lífi sínu í deildinni
en ír og snæfell, sem misstu
bæði af úrslitakeppninni í
fyrra, hafa þurft að horfa á eftir
lykilmönnum síðustu árin og
það bættist í þann hóp í sumar.
Óvissan í kringum leikmannahóp
þeirra og lítil reynsla gætu orðið
báðum liðum að falli í vetur.
ooj@frettabladid.is
Titill númer fimmtán í augsýn
Domino's-deild karla í körfubolta hefst í kvöld með þremur leikjum. Hafi pressa verið á FH-ingum í Pepsi-
deildinni í sumar þá er hún alls ekki minni á stjörnum prýddu og sigursælu liði KR-inga í vetur.
Fulltrúar liðanna tólf sem spila í Dominos-deild karla í vetur. FRéTTAblAðið/STEFán
Dominos deild kvenna
Stjarnan - Haukar 75-86
Stigahæstar: Chelsie Schweers 31, Mar-
grét Kara Sturludóttir 11/11 frák. - Helena
Sverrisdóttir 35/15 frák./7 stoðs.
Meistaraefnin í Haukum unnu
góðan sigur á nýliðunum þar sem
Helena fór á kostum í endurkomu-
leiknum í íslenska boltann.
Valur - Keflavík 92-88
Stigahæstar: Karisma Chapman 36/19 frák.,
Bergþóra Holton 19. - Melissa Zorning 35,
Guðbjört Júlíusdóttir 10.
Kanarnir fóru á kostum á Hlíðar-
enda þar sem valsliðið byrjaði á
góðum sigri.
Hamar - Snæfell 61-78
íslandsmeistararnir byrjuðu á sigri í
Hveragerði. Engin tölfræði barst frá
leiknum vegna rafmagnsvandræða
í húsinu.
Nýjast
Frábær ráðning hjá
mínum mönnum! Nú þurfa
bara #leiknisljonin að ná
upp sömu stemningu og í
sumar! #leiknir.
Garðar Gunnar Ásgeirsson
@gardargunnar
Stutt gaman hjá Auði Ýri í Ásgarði
Ingvar Guðjónsson, einn af þremur þjálfurum Hauka, ber Auði Ýri Ólafsdóttur, leikstjórnanda liðsins, í örmum sér af velli eftir að Auður sneri sig á
ökkla í fyrsta leikhluta. Hún gat ekki snúið aftur vegna meiðslanna en Haukarnir unnu samt leikinn með ellefu stigum. FRéTTAblAðið/VilHElM
íslanD 4. sTyrKlEiKafloKKi
strákarnir okkar verða í fjórða
og neðsta styrkleikaflokki þegar
dregið verður til riðlakeppni EM
2016 þann 12. desember. styrk-
leikaröðunin var gefin út í gær,
en ísland þurfti sigra gegn lettum
og Tyrkjum til að eiga möguleika
á að klífa upp í þriðja styrkleika-
flokk. strákarnir luku keppni með
tveimur jafnteflum og einum tap-
leik gegn Tyrklandi.
KrisTJÁn í BrEiðHolTið
Kristján Guðmundsson var í gær
ráðinn þjálfari leiknis í Breiðholti
sem féll úr Pepsi-deild karla í fót-
bolta í sumar. leiknir var þar að
spila í fyrsta sinn í sögu félagsins
og sögðu þjálfarar liðsins, freyr
alexandersson og Davíð snorri
Jónasson, upp störfum eftir að
liðið féll. Kristján hefur áður
þjálfað Þór, Keflavík og val.
1 5 . o K t ó b e r 2 0 1 5 f i M M t u D A G u r34 S p o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð
sport