Fréttablaðið - 15.10.2015, Page 50

Fréttablaðið - 15.10.2015, Page 50
Í dag 19.15 ÍR - Tindastóll Hertz Hellirinn 19.15 Haukar - Snæfell Schenkerh. 19.15 FSu - Grindavík Iða 19.30 Valur - Víking. Vodafonehöll 19.30 Grótta - ÍR Hertz höllin. 20.00 Fram - UMFA Framhús Gylfi í úrvalsliðinu Gylfi Þór sigurðsson, landsliðs- maður í fótbolta, var valinn í úrvalslið undankeppni EM 2016 af evrópska knattspyrnusam- bandinu, en Gylfi spilaði frá- bærlega með strákunum okkar í undankeppninni. Gylfi er á þriggja manna miðju með steven Davis frá norður-írlandi og David alaba frá austurríki. framlínan er heldur betur glæsileg í þessu úrvalsliði, en þar eru Gareth Bale, robert lewandowski og Thomas Müller. Gylfi Þór skoraði sex mörk af miðjunni í undankeppninni og gaf þrjár stoðsendingar. ashley Williams, samherji Gylfa hjá swansea, er í varnar- línu úrvalsliðsins hjá uEfa. Körfubolti ír-ingar hafa í meira en hálfa öld getað kallað sig sigursælasta körfuboltalið landsins en nú eru blikur á lofti. lengi leit út fyrir að njarðvíkingar væru líklegastir til að ná Breiðhyltingum en njarðvíkingar hafa ekki unnið stóra titilinn í að verða áratug og þess í stað eru það Kr-ingar sem stefna nú hraðbyri á toppinn. Kr vann íslandsmeistaratitilinn annað árið í röð síðasta vor og um leið í fimmta skiptið á síðustu níu árum. Þá svart-hvítu vantar því aðeins einn titil til að ná ír. Unnu fimmtánda titilinn árið 1977 ír-ingar unnu fimmtánda titil sinn vorið 1977 og voru þá tíu titlum á undan erkifjendum sínum úr vestur bænum. njarðvíkingar unnu sinn tólfta íslandsmeistaratitil á rúmum tveimur áratugum árið 2002 en hafa síðan aðeins bætt einum við og hann kom í hús fyrir níu árum. Gullöld Kr hefur tekið við og enginn endir á henni í augsýn. Metin eru við sjóndeildarhringinn. Kr-ingar, íslandsmeistarar síð- ustu tveggja ára, eru ekki aðeins með lið fullt af landsliðsmönnum og besta Kana deildarinnar síðustu ár (Michael Craion) því þeir gerðu gott enn betra og fengu til sín einn besta leikstjórnanda landsins (Ægi Þór steinarsson). Kr-liðið hefur unnið 21 og 20 leiki síðustu tvö ár en með þennan mannskap er engin ástæða til annars en að stefna á 22 sigra (í 22 leikjum) á þessu tímabili. Hafi verið pressa á fH-ingum í fót- boltanum síðasta sumar þá verður hún alls ekki minni á körfubolta- liði Kr í vetur. liðið var aðeins sex stigum frá fullu húsi í spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna og ekki að ástæðulausu. allt annað en fimm- tándi titillinn í húsi væru mikil von- brigði í vesturbænum og stórfrétt fyrir alla aðra. Tindastóll kom mjög mörgum á óvart með því að ná öðru sætinu á síðasta tímabili en það er ekki hægt að koma á óvart ár eftir ár og nú eru miklu meiri væntingar gerðar til stólanna. Gömlu mennirnir eru vissulega einu ári eldri en hinir ungu og efnilegu leikmenn liðsins hafa líka bætt við einu ári í reynslubankann. finninn Pieti Poikola hefur náð frábærum árangri með lið sín en það á eftir að koma í ljós hvort hann nær að byggja ofan á frábært starf israels Martin eða reynir að breyta of miklu. Skref í rétta átt á hverju ári Haukarnir hafa stigið eitt skref í rétta átt á hverju tímabili undir stjórn ívars Ásgrímssonar undanfarin ár og eru líklegir til að reyna við eitt skref til viðbótar í vetur. liðið, sem er nær eingöngu byggt upp á heimastrákum, fór upp 2013, komst í átta liða úrslitin 2014 og fór í undanúrslitin 2015. Haukar eru eitt af liðunum sem verða í baráttunni um annað sætið í vetur. stjarnan vann lengjubikarinn og mætir með spennandi lið til leiks. Justin shouse er enn á eftir hinum langþráða íslandsmeist- aratitli og mætir hungraður til leiks í flottu formi. Garðbæingar verða með í toppbaráttunni. fyrir fram er búist við að fjögur efstu liðin skeri sig úr en það má alltaf búast við spútnikliði og eitt þeirra gæti komið úr næsta pakka. Þar eru lið eins og Þór Þorlákshöfn, Grindavík, njarðvík, fsu og Kefla- vík. Ekkert Suðurnesjalið á topp fimm suðurnesin hafa verið höfuðvígi körfuboltans síðustu áratugina en útlitið er ekkert sérstaklega bjart ef marka má árlega spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna. Þar skipa suðurnesjaliðin þrjú sér í sæti sex, sjö og átta. Það væri sögulegt enda hefur alltaf að minnsta kosti eitt lið frá suðurnesjum verið með heima- vallarrétt í fyrstu umferð úrslita- keppninnar. Þetta er líka í fyrsta sinn í sögu þessarar spár þar sem lið frá suðurnesjum endar ekki í einu af þremur efstu sætunum. Þ a ð va r vi t a ð a ð b æ ð i Keflavík og Grindavík yrðu í leikmannavandræðum en það var aftur á móti búist við miklu af njarðvík eftir að liðið samdi aftur við stefan Bonneau. Hásinarslit Bonneau hafa hins vegar breytt öllu í ljónagryfjunni og takmarkanir leikmannahópsins urðu um leið enn meira áberandi. Það er samt alltaf hættulegt að vanmeta liðin þrjú sem hafa saman unnið 23 af síðustu 32 íslands meistara titlum. Endur- nýjunin hefur ekki verið í sama gæðaflokki og áratugina á undan en „pressuleysið“ gæti gert mörgum leikmönnum liðanna gott. Það er líka enginn í Keflavík, njarðvík og Grindavík að fara að sætta sig við sjötta sætið, hvað þá það sjöunda eða áttunda. Spútnikliðið frá Suðurlandi? suðurlandið á tvo fulltrúa í deildinni í ár og bæði liðin fóru alla leið í undanúrslit lengjubikarsins. nýliðar fsu burstuðu bæði njarðvík og Keflavík á leið sinni þangað og Þórsarar eru búnir að endurheimta nat-vélina (ragnar nathanaelsson) sem breytir miklu fyrir liðið. nýliðar Hattar verða að berjast fyrir lífi sínu í deildinni en ír og snæfell, sem misstu bæði af úrslitakeppninni í fyrra, hafa þurft að horfa á eftir lykilmönnum síðustu árin og það bættist í þann hóp í sumar. Óvissan í kringum leikmannahóp þeirra og lítil reynsla gætu orðið báðum liðum að falli í vetur. ooj@frettabladid.is Titill númer fimmtán í augsýn Domino's-deild karla í körfubolta hefst í kvöld með þremur leikjum. Hafi pressa verið á FH-ingum í Pepsi- deildinni í sumar þá er hún alls ekki minni á stjörnum prýddu og sigursælu liði KR-inga í vetur. Fulltrúar liðanna tólf sem spila í Dominos-deild karla í vetur. FRéTTAblAðið/STEFán Dominos deild kvenna Stjarnan - Haukar 75-86 Stigahæstar: Chelsie Schweers 31, Mar- grét Kara Sturludóttir 11/11 frák. - Helena Sverrisdóttir 35/15 frák./7 stoðs. Meistaraefnin í Haukum unnu góðan sigur á nýliðunum þar sem Helena fór á kostum í endurkomu- leiknum í íslenska boltann. Valur - Keflavík 92-88 Stigahæstar: Karisma Chapman 36/19 frák., Bergþóra Holton 19. - Melissa Zorning 35, Guðbjört Júlíusdóttir 10. Kanarnir fóru á kostum á Hlíðar- enda þar sem valsliðið byrjaði á góðum sigri. Hamar - Snæfell 61-78 íslandsmeistararnir byrjuðu á sigri í Hveragerði. Engin tölfræði barst frá leiknum vegna rafmagnsvandræða í húsinu. Nýjast Frábær ráðning hjá mínum mönnum! Nú þurfa bara #leiknisljonin að ná upp sömu stemningu og í sumar! #leiknir. Garðar Gunnar Ásgeirsson @gardargunnar Stutt gaman hjá Auði Ýri í Ásgarði Ingvar Guðjónsson, einn af þremur þjálfurum Hauka, ber Auði Ýri Ólafsdóttur, leikstjórnanda liðsins, í örmum sér af velli eftir að Auður sneri sig á ökkla í fyrsta leikhluta. Hún gat ekki snúið aftur vegna meiðslanna en Haukarnir unnu samt leikinn með ellefu stigum. FRéTTAblAðið/VilHElM íslanD 4. sTyrKlEiKafloKKi strákarnir okkar verða í fjórða og neðsta styrkleikaflokki þegar dregið verður til riðlakeppni EM 2016 þann 12. desember. styrk- leikaröðunin var gefin út í gær, en ísland þurfti sigra gegn lettum og Tyrkjum til að eiga möguleika á að klífa upp í þriðja styrkleika- flokk. strákarnir luku keppni með tveimur jafnteflum og einum tap- leik gegn Tyrklandi. KrisTJÁn í BrEiðHolTið Kristján Guðmundsson var í gær ráðinn þjálfari leiknis í Breiðholti sem féll úr Pepsi-deild karla í fót- bolta í sumar. leiknir var þar að spila í fyrsta sinn í sögu félagsins og sögðu þjálfarar liðsins, freyr alexandersson og Davíð snorri Jónasson, upp störfum eftir að liðið féll. Kristján hefur áður þjálfað Þór, Keflavík og val. 1 5 . o K t ó b e r 2 0 1 5 f i M M t u D A G u r34 S p o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð sport

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.