Fréttablaðið - 15.10.2015, Blaðsíða 39
|Fólk
Samfélagsmiðillinn Instagram
hefur verið í mikilli sókn meðal
hátískuvörumerkja heimsins
undanfarið enda byggir mið
illinn á ljósmyndum og hentar
því slíkum merkjum einstak
lega vel.
Í nýlegri rannsókn markaðs
rannsóknafyrirtækisins Digital
Luxury Group kemur fram að
hátískuvörumerkin bera höfuð
og herðar yfir aðra lúxus
vöruflokka, t.d. bíla og skart
gripi, þegar kemur að sýnileika
á Instagram talið í fylgjendum
og notkun kassa merkis (#).
Efst á lista yfir fjölda fylgj
enda er franski
tískurisinn
Louis Vuitton
(@LouisVuitt
on) með
rúmlega 7,1
milljónir fylgj
enda.
Skammt á
eftir fylgir
annar franskur risi, Chanel
(@chanelofficial), með rúm
lega 7 milljónir fylgjenda og
þriðja franska fyrirtækið er
næst á lista, skórisinn Christi
an Louboutin (@louboutin
world) með rúmlega 5,6 millj
ónir fylgjenda.
Þegar kassamerkin eru skoð
uð, þ.e. hversu oft myndir ann
arra eru merktar viðkomandi
tískumerki, breytist röðin tals
vert. Ítalski tískurisinn Prada
(#prada) trónir þar á toppnum
með tæplega 23 milljónir kas
samerkja, Dior (#dior) er með
rúmlega 22,5 milljónir og í
þriðja sæti er franska fyrir
tækið Hermès (#hermes) með
tæplega 20 milljónir kassa
merkja.
Sýnileiki á
inStagram
Helstu hátískumerkin
eru búin að átta sig
á kostum samfélags
miðilsins instagram.
Hrekkjavakan er á næsta leiti en sífellt fleiri hafa tekið upp þann rótgróna banda
ríska sið og fer hrekkjavökupartíum fjölgandi ár frá ári. Það vefst þó fyrir
sumum að finna búning og margir virðast fá sömu hugmynd. Það er því ekki
óalgengt að það séu tvær kattarkonur og þrjár vampírur í sama partíi. Það
sem greinir hrekkja vökupartí frá hefðbundnum búningapartíum er að
búningarnir þurfa að vera hrollvekjandi, sem takmarkar valið. Það er því
ekki úr vegi að fara að viða að sér hugmyndum.
Uppvakninga og dúkkuþema hefur notið vinsælda að undanförnu og hér
fylgja tvær mismunandi hugmyndir. Annars vegar frá Disneystjörnunni Pey
tron List, sem klæddi sig upp sem hrollvekjandi dúkka í hrekkja vöku partíi
2012 og hins vegar frá leikkonunni Michelle Trachtenberg, sem var fram
tíðarlegur uppvakningur ári fyrr.
ertu að fara í Hrekkjavökupartý?