Fréttablaðið - 19.04.2017, Side 2
Veður
Sunnan strekkingsvindur og
rigning eða slydda um morguninn,
en síðan allhvöss suðvestanátt og
skúrir eða él. Léttir til á Austurlandi
seinnipartinn. SJÁ SÍÐU 22
01 Smærri
viðgerðir
Hraðþjónusta HEKLU.
Hringdu í 590 50 30 eða renndu við.
Hekla.is
SAMFÉLAG Flogið hefur verið með
rétt tæplega sjötíu hælisleitendur
burt af landinu frá 1. ágúst síðast-
liðnum í krafti samstarfssamnings
á milli Útlendingastofnunar og
Alþjóðafólksflutningsstofnunar-
innar um aðstoð við sjálfviljuga
heimför. Hælisleitendurnir eiga
það sammerkt að hafa samþykkt að
vera sendir af landi brott eða dregið
hælis umsókn sína til baka. Ferða-
lagið heim er borgað fyrir hælis-
leitendurna og svo fá fullorðnir 200
evrur og börn 100 evrur í fjárhags-
legan styrk.
Þeir hælisleitendur sem koma til
greina eiga það sameiginlegt að eiga
ekki rétt á hæli hér á landi og eru í
sumum tilfellum vegabréfslausir.
Hælisleitendur sem hafa verið
algengir frá löndum innan Evrópu,
á borð við Albaníu og Makedóníu,
heyra því ekki undir samninginn og
eru flestir sendir á brott eftir öðrum
leiðum, meðal annars á vegum ríkis-
lögreglustjóra og Frontex.
Fréttablaðið greindi frá því í júlí
í fyrra að samningur hefði náðst á
milli stjórnvalda og Alþjóðafólks-
flutningastofnunarinnar um að
hælisleitendur, sem ekki eiga rétt
á vernd hér á landi, geti snúið aftur
heim til sín án aðkomu lögreglu
og stjórnvalda. Þá kom jafnframt
fram að sams konar samningur
væri í gildi við önnur Norðurlönd
en hámarksstyrkur til hvers hælis-
leitanda þar væri um 500 þúsund
krónur. Það er langtum meira en
hælisleitendur hér á landi fá. Full-
orðnir fá 200 evrur sem gera um
23 þúsund krónur og börn um 11
þúsund krónur.
Samningurinn tók gildi 1. ágúst
síðastliðinn og kveður á um að
íslensk stjórnvöld greiði fólksflutn-
ingastofnuninni rúma 336 þúsund
dollara, tæplega 40 milljóna króna,
þóknun sem stofnunin nýtir svo til
að flytja hælisleitendurna af landi
brott. Samningurinn gildir í átján
mánuði og kveður á um brottflutn-
ing 100 hælisleitenda.
Á þeim rúmu átta mánuðum
sem liðnir eru síðan samningurinn
tók gildi hefur Útlendingastofnun
nýtt sér hann til brottflutnings 70
manns og því eru uppi áætlanir um
að endur nýta eða framlengja samn-
inginn svo fleiri verði sendir heim í
krafti hans.
snaeros@frettabladid.is
kristjanabjorg@frettabladid.is
Sjötíu hælisleitendur
sendir með vasapening
Hælisleitendur sem samþykkja sjálfir brottflutning frá Íslandi fá 23.000 krónur í
vasapening þegar þeir eru sendir burt frá landinu. Útlendingastofnun nálgast að
vera búin að fullnýta samning um brottflutning á fyrstu mánuðum ársins.
Hælisleitendurnir eru sendir heim aftur með flugi og fá þeir vasapening. Þrjá-
tíu pláss eru eftir samkvæmt núgildandi samningi. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
23.000
krónur fylgja með hverjum
fullorðnum hælisleitanda
sem sendur er á brott sam-
kvæmt samningum.
70
hafa verið sendir burt hingað
til. 30 pláss eru eftir.
VIÐSKIPTI Spákaupmennskufyrir-
tæki fær ekki að gjaldfæra 250 millj-
óna króna tap sem fyrirtækið segir
að hafi komið til vegna veðmála um
íþróttaleiki í gegnum veðmálasíðuna
betfair.com. Þetta er niðurstaða yfir-
skattanefndar sem staðfesti niður-
stöðu ríkisskattstjóra þessa efnis.
Í kæru fyrirtækisins til yfirskatta-
nefndar kemur fram að fyrir hrun
hafi það stundað viðskipti sem fól-
ust í spákaupmennsku með erlenda
gjaldmiðla. Slík viðskipti séu í eðli
sínu veðmál um þróun gengis út frá
ákveðnum forsendum. Eftir hrunið
dróst starfsemi þess saman meðal
annars vegna gjaldeyrishaftanna.
Brá eigandi þá á það ráð að afla
tekna með þátttöku í erlendri get-
raunastarfsemi. Vildi eigandinn
meina að veðmálin hefðu verið
liður í starfsemi hans og því ætti
að vera heimilt að telja tapið inn í
reksturinn.
Yfirskattanefnd taldi hins vegar
að fyrirsvarsmaður félagsins hefði
stofnað veðmálareikninginn í eigin
nafni og veðjað á körfubolta og
knattspyrnu í eigin nafni. Til þess
notaði hann viðskiptakort félagsins.
Þá þótti ekki unnt með nokkru
móti að fallast á það að veðmál á
íþróttaleiki teldust fjármálagern-
ingar í skilningi laga um verðbréfa-
viðskipti. Að endingu var ekkert að
finna í bókhaldi félagsins um veð-
málin heldur birtust þau skyndi-
lega á skattframtölum þess. Af
þeim sökum var ekki fallist á það
að veðmálin tengdust félaginu með
nokkru móti og niðurstaða ríkis-
skattstjóra staðfest. – jóe
Ekki fallist á
skýringar
VIÐSKIPTI Gunnlaugur Árnason
mun taka við starfi stjórnarfor-
manns Pressunnar. Á sama tíma
hættir Björn Ingi Hrafnsson sem
stjórnarformaður og útgefandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Pressunni, sem er móðurfélag
Vefpressunnar, DV og Birtíngs.
Þar segir að breytingar hafi verið
gerðar á stjórn félagsins ásamt því
að hlutafé í félaginu verði aukið um
300 milljónir króna.
Þar af eru um 155 milljónir frá
fjárfestingarfélaginu Dalnum. Það er
félag í eigu Róberts Wessman, Árna
Harðarsonar og fleiri aðila. – jhh
Róbert eignast
hlut í DV
Róbert Wess-
mann fjárfestir
250
milljónir voru gjaldfærðar
sem tap á veðmálastarfsemi.
Þétt setið á áhorfendabekkjum
Þeir voru þétt setnir áhorfendabekkirnir í DHL-höllinni vestur í bæ þegar fyrsti leikur KR og Grindvíkinga um Íslandsmeistaratitilinn í körfu-
bolta fór fram. KR vann leikinn örugglega og var sigur Vesturbæjarliðsins í raun aldrei í hættu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
1 9 . A P R Í L 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð