Fréttablaðið - 19.04.2017, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 19.04.2017, Blaðsíða 41
BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 E N N E M M / S ÍA / N M 8 1 1 9 8 R e n a u lt T ra ff ic a lm e n n 5 x 2 0 RENAULT TRAFIC Renault atvinnubílar hafa slegið í gegn með hagstæðu verði, ríkulegum búnaði og úrvali sparneytinna dísilvéla. Komdu og kynntu þér Renault Trafic og lá…u sölumenn okkar gera þér tilboð í nýjan atvinnubíl. www.renault.is *M ið að v ið u pp ge fn ar tö lu r f ra m lei ða nd a um e ld sn ey tis no tk un í bl ön du ðu m a ks tri RENAULT TRAFIC STUTTUR 1,6 L. DÍSIL, 115 HESTÖFL Verð: 2.895.000 kr. án vsk. 3.590.000 kr. m. vsk. Eyðsla frá, 6,5 l/100 km* HANDBOLTI Úrslitakeppnin í Olís- deild karla heldur áfram í kvöld þegar undanúrslitin hefjast í karla- flokki. Óvænt tíðindi urðu í fjórð- ungsúrslitum þegar tvö af sterkustu liðum deildarinnar, Haukar og ÍBV, féllu bæði úr leik. Það ætti að gera leið deildarmeistara FH að Íslands- meistaratitlinum enn greiðari en úrslitakeppnin hingað til hefur undir strikað hversu liðin í deildinni eru jöfn og hversu erfitt er að spá um úrslit rimmanna. Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, var Fréttablaðinu innan handar við að meta möguleika liðanna fjögurra sem eftir standa. Hann spáir því að FH og Valur muni mætast í lokaeinvíginu um Íslands- meistaratitilinn en afskrifar þó alls ekki möguleika Aftureldingar og Fram, þvert á móti. „Það á enn margt eftir að gerast og það væri glapræði að afskrifa eitthvert lið á þessum tímapunkti. Hins vegar lýgur taflan ekki og FH er það lið sem sýndi mestan stöðug- leika í vetur og kemur inn í úrslita- keppnina í besta forminu. FH-ingar eru því til alls líklegir,“ segir Gunnar. Þurfa mun betri vörn Mosfellingar eiga stórt verkefni fyrir höndum. Afturelding sló Selfoss úr leik í 8 liða úrslitum en FH-ingar unnu Gróttu. Bæði lið unnu rimmur sínar 2-0 en lentu þó bæði í jöfnum og erfiðum leikjum. Gunnar segir ekkert stórt leyndar- mál við rimmu Aftureldingar og FH. Gamla spekin um að vörn og mark- varsla þurfi að vera í lagi eigi hér vel við lið Aftureldingar, ætli Mosfell- ingar sér að eiga möguleika gegn deildarmeisturum FH. „Afturelding hefur verið í basli með vörnina eftir áramót. Þeir þurfa að bæta hana mikið frá síðustu vikum og mánuðum, og fá þá mark- vörsluna með, til að eiga möguleika. Góðu fréttirnar eru að Böðvar Páll [Ásgeirsson] er að koma aftur inn eftir meiðsli og það styrkir liðið.“ Grimmdin nauðsynleg Hann segir að það séu brotalamir á liði FH eins og öllum liðum. „En eins og FH lítur út í dag er FH með sterkt varnarlið og góða mark- vörslu. Það er breidd í sókninni og mikill agi. Þá hafa FH-ingar haft seigluna með sér í jöfnum leikjum og unnið þá líka.“ Gunnar bendir á að Mosfell- ingar þurfi að finna leið til að stöðva Gísla Þorgeir Kristjánsson og Jóhann Birgi Ingvarsson. „Þeir sækja mikið á sinn varnarmann og eru afar sterkir einn á einn. Svo fá þeir aðstoð frá mönnum eins og Ásbirni [Friðrikssyni] og Einari Rafni [Eiðssyni] í að nýta sér stöðuna sem kemur upp. Þess utan eru FH-ingar með sterka línu- og hornamenn. En það er alveg ljóst að varnarmenn Aftureldingar verða að sækja út í þá [Jóhann og Gísla]. Ef þeir sitja bara á línunni og bíða eftir þeim eiga þeir ekki séns.“ Leikbannið mikið áfall Sjálfsagt reiknuðu flestir hlutlausir með því að Haukar og ÍBV myndu bera sigur úr býtum í leikjum laugardagsins og að liðin myndu mætast í undanúrslitunum. Annað kom á daginn og Fram sló Hauka úr leik eftir æsilega vítakastskeppni. Þá gerðu Valsmenn sér lítið fyrir og unnu ÍBV í oddaleik í Vestmanna- eyjum. Gunnar er reynslunni ríkari eftir rimmu sína við Fram og varar Valsmenn við nokkurs konar van- mati. „Mönnum er frjálst að gagn- rýna okkur Hauka eins og þá lystir en menn skulu ekki líta framhjá þætti Fram. Framarar spiluðu þessa rimmu gegn okkur afar vel og eiga heiður skilinn fyrir. Þar fyrir utan töpuðu Framarar fáum leikjum í deildinni í febrúar og mars.“ Tveir þættir gætu haft mikil áhrif á rimmu Fram og Vals – þátttaka Vals í Evrópukeppninni næstu tvær helgar hið minnsta og tveggja leikja bann Josips Gric, skyttu Vals, sem skoraði samtals nítján mörk í leikj- unum gegn ÍBV. „Það er mikið áfall fyrir Val og munar um minna. En ég er alger- lega sannfærður um að reynsla Vals úr Evrópukeppninni hjálpi liðinu mikið. Valur hefði ekki unnið í Eyjum nema út af þeirri reynslu sem liðið fékk úr Evrópuleikjunum í vetur.“ Hann segir Valsmenn líklegri í fimm leikja rimmu þar sem þrjá sigra þarf til að komast áfram. „En þeir munu þurfa að hafa mikið fyrir þessu og ég býst við að þetta ráðist í oddaleik,“ bætir hann við. Báðir leikir kvöldsins hefjast klukkan 20.00. eirikur@frettabladid.is Evrópukeppnin hjálpar Valsmönnum Undanúrslitin í Olísdeild karla hefjast í kvöld. Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, segir erfitt að afskrifa nokkurt lið á þessum tímapunkti en telur FH-inga líklega til afreka. Hann telur að spútniklið Fram muni reynast Valsmönnum óþægur ljár í þúfu. Josip Gric fékk tveggja leikja bann fyrir að sparka í Róbert Aron Hostert, leik- mann ÍBV. Hans verður sárt saknað í fyrstu tveimur leikjum Vals gegn Fram. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Ef þeir sitja bara á línunni og bíða eftir þeim eiga þeir ekki séns. Gunnar Magnús- son, þjálfari Hauka S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17M I Ð V I K U D A G U R 1 9 . A P R Í L 2 0 1 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.