Fréttablaðið - 19.04.2017, Qupperneq 41
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
1
1
9
8
R
e
n
a
u
lt
T
ra
ff
ic
a
lm
e
n
n
5
x
2
0
RENAULT TRAFIC
Renault atvinnubílar hafa slegið í gegn með hagstæðu verði, ríkulegum búnaði
og úrvali sparneytinna dísilvéla. Komdu og kynntu þér Renault Trafic og lá
u
sölumenn okkar gera þér tilboð í nýjan atvinnubíl.
www.renault.is
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
tö
lu
r f
ra
m
lei
ða
nd
a
um
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tri
RENAULT TRAFIC STUTTUR
1,6 L. DÍSIL, 115 HESTÖFL
Verð: 2.895.000 kr. án vsk.
3.590.000 kr. m. vsk.
Eyðsla frá, 6,5 l/100 km*
HANDBOLTI Úrslitakeppnin í Olís-
deild karla heldur áfram í kvöld
þegar undanúrslitin hefjast í karla-
flokki. Óvænt tíðindi urðu í fjórð-
ungsúrslitum þegar tvö af sterkustu
liðum deildarinnar, Haukar og ÍBV,
féllu bæði úr leik. Það ætti að gera
leið deildarmeistara FH að Íslands-
meistaratitlinum enn greiðari en
úrslitakeppnin hingað til hefur
undir strikað hversu liðin í deildinni
eru jöfn og hversu erfitt er að spá um
úrslit rimmanna.
Gunnar Magnússon, þjálfari
Hauka, var Fréttablaðinu innan
handar við að meta möguleika
liðanna fjögurra sem eftir standa.
Hann spáir því að FH og Valur muni
mætast í lokaeinvíginu um Íslands-
meistaratitilinn en afskrifar þó alls
ekki möguleika Aftureldingar og
Fram, þvert á móti.
„Það á enn margt eftir að gerast
og það væri glapræði að afskrifa
eitthvert lið á þessum tímapunkti.
Hins vegar lýgur taflan ekki og FH
er það lið sem sýndi mestan stöðug-
leika í vetur og kemur inn í úrslita-
keppnina í besta forminu. FH-ingar
eru því til alls líklegir,“ segir Gunnar.
Þurfa mun betri vörn
Mosfellingar eiga stórt verkefni fyrir
höndum. Afturelding sló Selfoss úr
leik í 8 liða úrslitum en FH-ingar
unnu Gróttu. Bæði lið unnu rimmur
sínar 2-0 en lentu þó bæði í jöfnum
og erfiðum leikjum.
Gunnar segir ekkert stórt leyndar-
mál við rimmu Aftureldingar og FH.
Gamla spekin um að vörn og mark-
varsla þurfi að vera í lagi eigi hér vel
við lið Aftureldingar, ætli Mosfell-
ingar sér að eiga möguleika gegn
deildarmeisturum FH.
„Afturelding hefur verið í basli
með vörnina eftir áramót. Þeir þurfa
að bæta hana mikið frá síðustu
vikum og mánuðum, og fá þá mark-
vörsluna með, til að eiga möguleika.
Góðu fréttirnar eru að Böðvar Páll
[Ásgeirsson] er að koma aftur inn
eftir meiðsli og það styrkir liðið.“
Grimmdin nauðsynleg
Hann segir að það séu brotalamir
á liði FH eins og öllum liðum. „En
eins og FH lítur út í dag er FH með
sterkt varnarlið og góða mark-
vörslu. Það er breidd í sókninni og
mikill agi. Þá hafa FH-ingar haft
seigluna með sér í jöfnum leikjum
og unnið þá líka.“
Gunnar bendir á að Mosfell-
ingar þurfi að finna leið til að
stöðva Gísla Þorgeir Kristjánsson
og Jóhann Birgi Ingvarsson. „Þeir
sækja mikið á sinn varnarmann
og eru afar sterkir einn á einn.
Svo fá þeir aðstoð frá mönnum
eins og Ásbirni [Friðrikssyni] og
Einari Rafni [Eiðssyni] í að nýta
sér stöðuna sem kemur upp. Þess
utan eru FH-ingar með sterka línu-
og hornamenn. En það er alveg
ljóst að varnarmenn Aftureldingar
verða að sækja út í þá [Jóhann og
Gísla]. Ef þeir sitja bara á línunni og
bíða eftir þeim eiga þeir ekki séns.“
Leikbannið mikið áfall
Sjálfsagt reiknuðu flestir hlutlausir
með því að Haukar og ÍBV myndu
bera sigur úr býtum í leikjum
laugardagsins og að liðin myndu
mætast í undanúrslitunum. Annað
kom á daginn og Fram sló Hauka úr
leik eftir æsilega vítakastskeppni.
Þá gerðu Valsmenn sér lítið fyrir og
unnu ÍBV í oddaleik í Vestmanna-
eyjum.
Gunnar er reynslunni ríkari
eftir rimmu sína við Fram og varar
Valsmenn við nokkurs konar van-
mati. „Mönnum er frjálst að gagn-
rýna okkur Hauka eins og þá lystir
en menn skulu ekki líta framhjá
þætti Fram. Framarar spiluðu þessa
rimmu gegn okkur afar vel og eiga
heiður skilinn fyrir. Þar fyrir utan
töpuðu Framarar fáum leikjum í
deildinni í febrúar og mars.“
Tveir þættir gætu haft mikil áhrif
á rimmu Fram og Vals – þátttaka
Vals í Evrópukeppninni næstu tvær
helgar hið minnsta og tveggja leikja
bann Josips Gric, skyttu Vals, sem
skoraði samtals nítján mörk í leikj-
unum gegn ÍBV.
„Það er mikið áfall fyrir Val og
munar um minna. En ég er alger-
lega sannfærður um að reynsla Vals
úr Evrópukeppninni hjálpi liðinu
mikið. Valur hefði ekki unnið í
Eyjum nema út af þeirri reynslu
sem liðið fékk úr Evrópuleikjunum
í vetur.“
Hann segir Valsmenn líklegri í
fimm leikja rimmu þar sem þrjá
sigra þarf til að komast áfram. „En
þeir munu þurfa að hafa mikið fyrir
þessu og ég býst við að þetta ráðist í
oddaleik,“ bætir hann við.
Báðir leikir kvöldsins hefjast
klukkan 20.00.
eirikur@frettabladid.is
Evrópukeppnin hjálpar Valsmönnum
Undanúrslitin í Olísdeild karla hefjast í kvöld. Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, segir erfitt að afskrifa nokkurt lið á þessum
tímapunkti en telur FH-inga líklega til afreka. Hann telur að spútniklið Fram muni reynast Valsmönnum óþægur ljár í þúfu.
Josip Gric fékk tveggja leikja bann fyrir að sparka í Róbert Aron Hostert, leik-
mann ÍBV. Hans verður sárt saknað í fyrstu tveimur leikjum Vals gegn Fram.
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Ef þeir sitja bara á
línunni og bíða eftir
þeim eiga þeir ekki séns.
Gunnar Magnús-
son, þjálfari Hauka
S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17M I Ð V I K U D A G U R 1 9 . A P R Í L 2 0 1 7