Fréttablaðið - 19.04.2017, Qupperneq 6
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR VW
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði
sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina
má flest allt um ástand bílsins og gæði.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is
L-Mesitran
Náttúruleg
sáragræðsla
með hunangi
Vörurnar fást í Lyf og heilsu, Lyfjaveri, Apótekaranum, Hraunbergsapóteki,
Lyfsalanum Glæsibæ,Akureyrarapóteki, Apóteki Mos og Apóteki Ólafsvíkur.
Nánari upplýsingar
fást á www.wh.is.
Skemmtanir
Árshátíðir
Grímuböll
Dimmisjón
ofl. & ofl.
Ykkar skemmtun....
....okkar fókus
www.nordanfiskur.is | 430-1700 | pantanir@nordanfiskur.is
Yfir 300 vörutegundir
fyrir veitingastaði,
mötuneyti og fyrir þig !
UMHVERFISMÁL Verksmiðja United
Silicon í Helguvík mun ekki hefja
framleiðslu að nýju í bráð en ofn
verksmiðjunnar verður einungis
gangsettur ef áframhaldandi rann-
sóknir Umhverfisstofnunar krefjast
þess.
Þessi ákvörðun var tekin af stjórn
fyrirtækisins fyrir páska og óháð
eldi sem kom upp í verksmiðjunni
aðfaranótt þriðjudags. Þá hafði
Umhverfisstofnun þegar hótað að
stöðva starfsemina vegna mengunar
að undanförnu. Þetta þýðir að algjör
óvissa er um hvenær framleiðsla í
verksmiðjunni hefst að nýju.
Sigrún Ágústsdóttir, sviðsstjóri hjá
Umhverfisstofnun, segir að stofnun-
in hafi verið við eftirlit í verksmiðju
United Silicon yfir páskana vegna
kvartana sem bárust yfir hátíðina.
Jafnframt hafði Umhverfisstofnun
verið í sambandi við fyrirtækið fyrir
páska varðandi skorður við starf-
seminni.
„Því lyktaði með því að stjórn
fyrir tækisins tók ákvörðun um að
ef ofn verksmiðjunnar færi niður
lengur en í eina klukkustund þá yrði
hann ekki keyrður upp aftur til fram-
leiðslu heldur einungis til að greina
losun efna og slíkt,“ segir Sigrún sem
bætir við að áhyggjur hafi verið af
veðurspá yfir páskana – norðlægum
áttum og þeim áhrifum sem vinnsla
í verksmiðjunni hefur haft á íbúa
Reykjanesbæjar og fjallað hefur verið
um að undanförnu. Verksmiðjunni
var sent bréf þess efnis. Þar kemur
fram að kvartanir frá íbúum höfðu
hrúgast upp á stuttum tíma, og eru
orðnar tæplega 400 síðan verk-
smiðjan hóf rekstur.
„Við höfum því haft í forgangi að
vinna úr málinu síðustu daga,“ segir
Sigrún.
Eldur kom síðan upp í verk-
smiðjunni aðfaranótt þriðjudags.
Fréttavefurinn Vísir sagði frá því
að eldurinn hefði komið upp í ofn-
húsi verksmiðjunnar á efstu hæð, en
hann teygði sig í þrjár hæðir hússins.
Í viðtali Vísis við Kristleif Andrésson,
yfirmann öryggis- og umhverfis-
mála hjá United Silicon, kom fram
að framleiðsla hefði stöðvast vegna
eldsins og óvíst væri hvenær hægt
yrði að hefja framleiðslu á ný.
Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og
auðlindaráðherra, skrifaði í tilefni
brunans Facebook-færslu í gærmorg-
un þar sem hún sagði afdráttarlaust
að „nú væri komið nóg“. Sagði hún
að loka þyrfti verksmiðju United Sili-
con þar til fengist á hreint af hverju
íbúar sem búa næst verksmiðjunni
í Helguvík „upplifi einkenni sem
að mengunarmælingar geta ekki
útskýrt“. Eins hvaða óæskilegum
efnum starfsmenn séu útsettir fyrir,
og kanna þurfi fjármögnun verk-
smiðjunnar. „Það er ljóst á öllu að
fyrirtækið þarf fjármagn. Hverjir eru
að bjóða það fram núna? Ég ætla rétt
að vona að það séu ekki sameiginleg-
ir sjóðir þeirra sömu landsmanna og
ýta á að fyrirtækið loki,“ skrifar Björt.
Það er í valdi Umhverfisstofnunar
að loka verksmiðju United Silicon,
en ekki umhverfisráðherra.
svavar@frettabladid.is / sjá einnig frétt
Markaðarins um United Silicon
Með öllu óljóst hvenær
framleiðsla hefst á ný
Stjórn United Silicon hafði tekið ákvörðun um að hætta rekstri verksmiðjunn-
ar tímabundið, áður en eldur kom þar upp í fyrrinótt. Umhverfisstofnun hafði
sent bréf um skorður við starfseminni fyrir páska. Framhaldið er í óvissu.
SAMGÖNGUMÁL Aðeins eru um 50
metrar þar til slegið verður í gegn í
Vaðlaheiðargöngum. Mjög vel hefur
gengið síðustu vikur og hafa jarð-
lög verið með eindæmum hagfelld
framkvæmdaaðilum.
Jökull Bergmann, framkvæmda-
stjóri Vaðlaheiðarganga, telur lík-
legt að gegnumslag verði um eða eftir
næstu helgi.
„Nú hefur bara verið unnið á dag-
vöktum Fnjóskadalsmegin og mér
heyrist framkvæmdaaðilinn ætla að
klára verkið Eyjafjarðarmegin svo
það er líklegt að það klárist á um
vikutíma,“ segir Jökull.
„Það eru að vonum ánægjuleg
tíðindi og setur þá framkvæmdina í
allt annan fasa þegar gangagerðinni
sjálfri er lokið.“
Það hefur að sönnu gustað um
framkvæmdir við göngin allt frá því
þær hófust. Fyrsta sprengingin var
þann 3. júlí árið 2013.
Átján mánuðum síðar var búið
að grafa helming lengdar gang-
anna. Síðan fór að halla undan
fæti og hefur tekið langan tíma að
komast í gegnum síðari helming
ganganna. – sa
Brátt slegið í gegn í Vaðlaheiðargöngum
Við höfum haft í
forgangi að vinna úr
málinu síðustu daga
Sigrún Ágústs-
dóttir, sviðsstjóri
hjá Umhverfis-
stofnun
RÚSSLAND Abror Azimov sem er
grunaður um að hafa skipulagt
hryðjuverkaárás á neðanjarðarlesta-
kerfið í Sankti Pétursborg í Rúss-
landi gaf skýrslu í réttarhöldunum í
Basmanny-dómnum í Moskvu í gær.
Sautján manns fórust og um 50
særðust í sprengingunni sem varð
á lestarstöðinni hinn 3. apríl síðast-
liðinn.
Azimov neitaði því fyrir dómi að
hafa skipulagt árásirnar. „Ég gerði
mér ekki grein fyrir því hvað ég var
að gera. Ég fékk leiðbeiningar,“ sagði
hann við réttarhöldin í gær. Áður
hafði verið fullyrt að Azimov hefði
játað að hafa skipulagt sprengju-
árásina. – jhh
Sakaður um að hafa banað 15 manns
Abror Azimov var lokaður inni meðan hann beið þess að gefa skýrslu fyrir dómi í Moskvu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
1 9 . A P R Í L 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð