Fréttablaðið - 19.04.2017, Side 13
Á vef stjórnarráðs Íslands er að finna stefnuyfirlýsingar allra ríkisstjórna sem tekið hafa
við völdum undanfarinn aldar-
fjórðung. Allar hafa þær haft það
á stefnuskrá sinni að standa vörð
um íslenska tungu þótt yfirleitt
hafi ekki þótt ástæða til að hafa um
það mörg orð, eins og eftirfarandi
tilvitnanir í stefnuyfirlýsingarnar
sýna:
„Að standa vörð um íslenska
tungu og þjóðmenningu ...“
(1995, 1999)
„Að standa vörð um íslenska
tungu, sögu og þjóðmenningu.“
(2003)
„Átak verði gert í íslenskukennslu
fyrir útlendinga.“ (2007)
„Tryggja þarf … íslenskukennslu
fyrir útlendinga.“ – „Hafin verði
vinna við að innleiða tillögur um
íslenska málstefnu.“ (2009)
„Áhersla verður lögð á málvernd
… auk rannsókna og fræðslu.
Ríkisstjórnin mun vinna að því
að auka virðingu fyrir … tungu-
málinu, innanlands sem utan.“
– „Standa þarf vörð um íslenska
tungu, efla rannsóknir á þróun
tungumálsins og styrkja stöðu
íslensks táknmáls.“ (2013)
„Efla þarf stuðning við móður-
málskennslu tvítyngdra nem-
enda, samhliða kennslu íslensku
sem annars máls.“ – „Íslenska
málsvæðið er lítið og stuðningur
Falleg orð – en fátt um efndir
Miðað við núverandi stöðu
Háskólans og gildandi
reiknilíkan háskólastigsins
er ekki von á miklum ný-
ráðningum í íslensku á næst-
unni, og ný fjármálaáætlun
ríkisstjórnarinnar fyrir árin
2018-2022 gefur sannarlega
ekki ástæðu til bjartsýni.
Eiríkur
Rögnvaldsson
prófessor í ís-
lenskri málfræði
við Háskóla
Íslands
því nauðsynlegur. Máltækniverk-
efni verði haldið áfram í samstarfi
við fræðasamfélagið og atvinnu-
lífið.“ (2017)
Kennurum fækkað
um næstum helming
Þótt orðin séu fá hefur enn minna
orðið um efndir. Hér skal aðeins
nefnt eitt dæmi, en af ýmsu er að
taka. Fyrir aldarfjórðungi, árið
1992, voru 15 fastir kennarar í
kennslugreininni íslensku við
Háskóla Íslands – meðalaldur
þeirra var rúm 49 ár. Nú, snemma
árs 2017, hefur þeim fækkað niður í
11. Fram til hausts 2020 fara þrír til
viðbótar á eftirlaun þannig að í lok
þessa kjörtímabils verða ekki nema
8 eftir og meðalaldur þeirra verður
tæp 56 ár. Kennurum í íslensku
hefur þá fækkað um næstum helm-
ing frá 1992. Nemendum í grunn-
námi hefur vissulega einnig fækkað
frá þeim tíma, en á móti kemur að
þá var ekkert doktorsnám. Mikill
tími fer í að leiðbeina doktorsnem-
um þannig að verkefnum kennara
hefur síst fækkað.
Hér er ekki gert ráð fyrir að
ráðnir verði kennarar í stað þeirra
sem fara á eftirlaun á næstu árum.
Vitanlega er ekki útséð um það,
en miðað við núverandi stöðu
Háskólans og gildandi reikni-
líkan háskólastigsins er ekki von
á miklum nýráðningum í íslensku
á næstunni, og ný fjármálaáætlun
ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2018-
2022 gefur sannarlega ekki ástæðu
til bjartsýni. Sú aukning sem þar er
gert ráð fyrir til háskólastigsins fer
að miklu leyti í hús íslenskunnar
sem stendur til að byggja á næstu
árum. Það er vissulega mjög kær-
komið og löngu tímabært, en hús
eitt og sér gerir lítið gagn ef ekkert
fólk er innan þess til að sinna rann-
sóknum og kennslu íslensks máls
og bókmennta. Eða eins og skáldið
sagði: „Því hvað er auður og afl og
hús / ef eingin jurt vex í þinni krús.“
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín
Opið virka daga frá kl. 8:30 - 18
og á laugardögum frá kl. 11 - 14.
Bosch uppþvottavélar
með Zeolith®-þurrkun
Bosch gæði í sérhverju smáatriði
Kemur allt blautt úr uppþvottavélinni? Finnst þér það ekki aðeins
hálfunnið verk? Það er þreytandi og hreinn óþarfi að þurfa að láta
leirtauið þorna sjálft eftir að það hefur verið tekið úr vélinni eða þá
að þurrka það með viskustykki. Hér kemur lausnin á vandanum.
Bosch uppþvottavélar með Zeolith®-þurrkun skila sérlega þurru
og glitrandi hreinu leirtaui. Jafnvel plastið verður einnig þurrt.
Leyndarmálið við Zeolith®-þurrkunina felst í því að láta hið náttúru-
lega steinefni seólít soga í sig raka og gefa frá sér hita. Þetta þýðir
að uppþvottavélar með Zeolith®-þurrkun lenda í besta orkuflokknum.
Og þurrka dásamlega. Svo mælum við sérstaklega með nýju kerfi,
60° C hraðkerfi. Einstaklega hraðvirkt og öflugt.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13M I Ð V I K U D A G U R 1 9 . A P R Í L 2 0 1 7