Fréttablaðið - 19.04.2017, Side 18
MARKAÐURINN
ÚTGÁFUFÉLAG 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5000 | Fax 512 5301
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is
Um 830 núverandi eða fyrrverandi
starfsmenn Landsbankans, sem
fengu hlutabréf í bankanum gefins
árið 2013, ákváðu í fyrra að taka
tilboði fyrirtækisins um að selja
hlutabréf sín fyrir um alls 1.391
milljón króna. Langflestir þeirra
seldu bankanum bréf sín í septem-
ber eða þegar endurkaupaáætlun
fyrirtækisins hófst.
Bankaráð Landsbankans ákvað í
september 2016 að bankinn myndi
kaupa eigin hluti í bankanum í
samræmi við samþykkt aðalfundar
í apríl í fyrra. Endurkaupin skyldu
nema allt að 480 milljónum hluta
eða tveimur prósentum af útgefnu
hlutafé bankans.
Markmiðið með endurkaup-
unum var að lækka eigið fé og gefa
hluthöfum tækifæri til að selja hluti
sína sem þeim hafði áður verið
óheimilt að gera.
Samkvæmt ársreikningi Lands-
bankans fyrir 2016 fækkaði hlut-
höfum um 832 frá árslokum 2015 til
loka 2016. Þá hafði bankinn keypt
133,5 milljónir eigin hluta á meðal-
verðinu 10,42 á hlut að heildarfjár-
hæð 1.391 milljón króna. Enginn
af framkvæmdastjórum bankans
seldi.
Þriðju og síðustu lotunni í
endurkaupaáætlun bankans lauk
24. febrúar og keypti hann þá alls
8.509.625 hluti á genginu 10,62.
Hluthafar bankans seldu þá bréf í
félaginu fyrir rétt rúmar 90 millj-
ónir króna. – hg
Yfir 800 starfsmenn seldu í bankanum
Heimild til kaupa á eigin hlutum í Landsbankanum var veitt á aðalfundi hans í
apríl í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Magnús Garðarsson, stærsti eigandi
United Silicon í Helguvík, er hættur
í stjórn kísilversins. Lögmaðurinn
Auðun Helgason sem átti þar einn-
ig sæti fyrir hönd Magnúsar og með-
fjárfesta hans, er einnig farinn út.
Samkvæmt heimildum Markaðar-
ins er Sigrún Ragna Ólafsdóttir,
fyrrverandi forstjóri VÍS, nú fulltrúi
Magnúsar á stjórnarfundum ásamt
Ingu Birnu Barkardóttur, starfs-
manni Alvotech, en þær sett-
ust báðar í stjórn félagsins í
janúar síðastliðnum.
Samkvæmt tilkynningu
United Silicon til hluta-
félagaskrár ríkisskattstjóra
fór Magnús úr stjórninni þann
6 . a p r í l .
J a k o b
B j a r n a -
son, starfs-
m a ð u r
LBI eignar-
h a l d s f é l a g s
(gamla Lands-
bankans), fór
þangað inn á sama
tíma og Sigrún og Inga
Birna. Heimildir Mark-
aðarins herma að Jakob
sé fulltrúi lífeyrissjóða
sem fjárfestu í verksmiðjunni og að
Arion banki, lánveitandi kísilvers-
ins, hafi gert kröfu um uppstokkun
í stjórninni sem leiddi til þess að
nýju stjórnarmennirnir þrír tóku
þar sæti.
Ekki náðist í Magnús Garðarsson
við vinnslu fréttarinnar en hann var
um tíma starfandi stjórnarmaður
verkefnisins. Auðun Helgason
er enn stjórnarformaður Geysis
Green Capital sem á lóðina í
Helguvík þar sem kísilverið
er starfrækt. Doron Beeri
Sanders er stjórnarformaður
United Silicon. Rekstur verk-
smiðjunnar hefur gengið illa
allt frá gangsetningu hennar
í nóvember í fyrra og eins
og komið hefur fram
verið plagaður af
mengunaróhöpp-
um og í gær kom
upp eldur í bygg-
ingunni. – hg
Stærsti eigandi United
Silicon hættur í stjórninni
Magnús Garð-
arsson, stærsti
eigandi United
Silicon.
Haustpróf í verðbréfaviðskiptum 2017
Prófnefnd verðbréfaviðskipta stendur fyrir haustprófum í verðbréfaviðskiptum sem
hér segir:
Próf úr I. hluta
28. ágúst 2017 Íslensk réttarskipun og Evrópuréttur, fræðikerfi
lögfræðinnar. Ágrip úr réttarfari.
29. ágúst 2017 Viðfangsefni úr fjármunarétti, Félagaréttur, Ábyrgðir.
30. ágúst 2017 Viðskiptabréfareglur, Veðréttindi, Þinglýsingar
Próf úr II. hluta
4. september 2017 Grunnatriði í fjármálafræðum.
5. september 2017 Grunnatriði í þjóðhagfræði.
6. september 2017 Greining ársreikninga.
Próf úr III. hluta
11. september 2017 Lög og reglur á fjármálamarkaði.
12. september 2017 Viðskiptahættir.
13. september 2017 Verðbréf, afleiður og gjaldeyrir.
14. september 2017 Fjárfestingarferli.
Próftími er 4 klukkustundir og tímasetning hvers prófs er 16:00-20:00.
Prófsefni er tilgreint í prófsefnislýsingu prófnefndar verðbréfaviðskipta. Í henni er
jafnframt útlistað hvaða hjálpargögn eru leyfileg í einstaka prófum.
Prófsefnislýsinguna má nálgast á vefsvæði prófnefndar verðbréfaviðskipta á
heimasíðu fjármála- og efnahagsráðuneytis:
http://www.fjarmalaraduneyti.is/raduneytid/nefndir/nr/16884
Um prófin fer samkvæmt reglugerð nr. 633/2003 um próf í verðbréfaviðskiptum.
Einkunnir í einstökum prófum eru gefnar í heilum og hálfum tölum frá 0 til 10. Til
þess að standast verðbréfaviðskiptapróf þarf próftaki að hljóta a.m.k. 7,0 í meða-
leinkunn úr þeim prófum sem hann hefur þreytt. Próftaki telst ekki hafa staðist
einstök próf hljóti hann lægri einkunn en 5,0.
Skráning í haustprófin fer fram á vefsíðu Opna háskólans í HR:
http://www.ru.is/opnihaskolinn/prof-i-verdbrefavidskiptum/
Skráningu í haustpróf lýkur 19. júní 2017.
Prófgjald vegna haustprófa er kr. 17.500 fyrir hvert próf. Vakin er athygli á að
haustpróf verður ekki haldið nema að a.m.k. 10 manns hafi skráð sig í viðkomandi
próf, sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 633/2003 um próf í verðbréfaviðskiptum. Haustprófin
verða haldin í húsakynnum Háskólans í Reykjavík, framkvæmdaraðila verðbréfa-
viðskiptaprófs veturinn 2016-2017.
Tilkynning um þau haustpróf sem verða haldin verður send út til skráðra próftaka
26. júní 2017.
Greiðsluseðlar verða eingöngu sendir út vegna prófa sem verða haldin. Skráning í
próf er bindandi og og greiðsluseðlar verða ekki felldir niður.
Reykjavík, 19. apríl 2017.
Prófnefnd verðbréfaviðskipta
Framtakssjóður á vegum Stefnis
ásamt Jóni Sigurðssyni, fyrrverandi
forstjóra FL Group, og Einari Erni
Ólafssyni, fyrrverandi forstjóra
Skeljungs, er að ganga frá kaupum á
Gámaþjónustunni og dótturfélögum
hennar fyrir milljarða króna. Jón og
Einar Örn verða með um 35 prósenta
hlut í félaginu sem stendur að baki
kaupunum, samkvæmt heimildum
Markaðarins.
Stærsti hluthafi Gámaþjónustunn-
ar er Benóný Ólafsson, sem stofnaði
fyrirtækið 1983, með ríflega 60 pró-
senta hlut en aðrir hluthafar áttu í
árslok 2015 allir minna en 3,7 pró-
sent í félaginu. Gámaþjónustan hefur
verið leiðandi fyrirtæki í flokkun og
endurvinnslu úrgangs allt frá því að
það hóf starfsemi en á árinu 2015
nam heildarvelta samstæðunnar lið-
lega 4,45 milljörðum. Þá var EBITDA-
hagnaður fyrirtækisins – afkoma
fyrir fjármagnsliði, afskriftir og opin-
ber gjöld – um 524 milljónir og hélst
nánast óbreyttur frá fyrra ári.
Það er Framtakssjóðurinn SÍA III
sem leiðir kaupin á Gámaþjónust-
unni en fyrirtækið var sett í söluferli
á síðasta ári, samkvæmt heimildum
Markaðarins. SÍA III er tæplega
13 milljarða framtakssjóður sem
sjóðastýringarfyrirtækið Stefnir,
dótturfélag Arion banka, kom á fót
sumarið 2016. Hluthafar í sjóðnum
eru um 40 talsins og samanstanda
af lífeyrissjóðum, tryggingafélögum
og öðrum fagfjárfestum. Kaupin á
Gámaþjónustunni eru önnur fjár-
festing sjóðsins en í október í fyrra
var tilkynnt að SÍA III væri á meðal
innlendra og erlendra fjárfesta sem
fjármagna uppbyggingu lúxushót-
elsins Marriott EDITION við Hörpu.
Ekki hefur verið birtur ársreikn-
ingur fyrir 2016 en samkvæmt heim-
ildum Markaðarins jókst EBITDA
fyrirtækisins á milli ára. Gróflega má
áætla að heildarkaupverðið – eigið
fé og yfirtaka á skuldum – sé um 3,5
til 4 milljarðar króna. Heildarskuldir
Gámaþjónustunnar voru um 3,6
milljarðar í árslok 2015 – þar af voru
skuldir við lánastofnanir 2,35 millj-
arðar – en heildareignir fyrirtækisins
ríflega sex milljarðar króna.
Jón Sigurðsson stýrir fjárfestingum
Helgafells eignarhaldsfélags sem er í
jafnri eigu Bjargar Fenger, eiginkonu
Jóns, Ara Fenger og Kristínar Fenger
Vermundsdóttur en í lok árs 2015
námu eignir fjárfestingarfélagsins
yfir tveimur milljörðum. Félagið er
meðal annars í hópi stærstu hlut-
hafa TM og N1 en Jón hefur setið í
stjórn olíufélagsins frá árinu 2014.
Jón hætti störfum hjá fjármálafyrir-
tækinu GAMMA Capital Manage-
ment fyrir meira en ári en þar áður
hafði hann verið forstjóri FL Group
(síðar Stoðir) á árunum 2007 til 2010.
Einar Örn er jafnframt á meðal
stærstu hluthafa TM en fjárfestingar-
félag hans Einir ehf. á 2,76 prósent í
tryggingafélaginu. Hann var kjörinn
í stjórn TM á aðalfundi félagsins í
liðnum mánuði en fjárfestingar-
félögin Einir og Helgafell, sem Jón
stýrir, eiga samanlagt ríflega níu pró-
senta hlut í TM. hordur@frettabladid.is
Lífeyrissjóðir að kaupa
Gámaþjónustuna
Verið er að ganga frá sölu á Gámaþjónustunni en auk SÍA III, 13 milljarða fram-
takssjóðs í rekstri Stefnis, standa þeir Einar Örn Ólafsson og Jón Sigurðsson að
kaupunum. Hlutur Einars Arnar og Jóns í Gámaþjónustunni verður um 35%.
Heildarvelta Gámaþjónustunnar og dótturfélaga hennar á árinu 2015 var 4,45 milljarðar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
524
milljónir var EBITDA-hagn-
aður Gámaþjónustunnar
árið 2015.
1 9 . A P R Í L 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A G U R2 MARKAÐURINN