Fréttablaðið - 19.04.2017, Síða 26
Valdimar Sigurjónsson, eigandi Dekkjasölunnar, segir að törnin byrji alltaf
af alvöru eftir páska. „Það er alveg
sama hvenær páskarnir eru,
dagarnir á eftir eru mjög anna-
samir. Við leggjum metnað okkar í
að leysa hratt og vel úr öllum þeim
verkefnum sem koma til okkar,“
segir hann.
„Fyrirtækið hefur tekið miklum
breytingum frá því það var stofnað
fyrir sjö árum. Þá voru bílarnir
tjakkaðir upp úti á plani og ein
dekkjavél inni á gólfi. Árið 2014
var húsnæðið tvöfaldað og við
opnuðum fullbúið dekkjaverk-
stæði með tvennum innkeyrslu-
dyrum. Núna í vetur var öllu
gjörbreytt innandyra og þriðju
innkeyrsludyrunum bætt við,
afgreiðslan var færð, búin til ný
setustofa fyrir viðskiptavini ásamt
því að reistur var sýningarveggur
fyrir felgur,“ útskýrir Valdimar.
Stóraukið úrval
„Felgurnar eru alltaf að verða
stærri hluti af okkar starfsemi,“
bætir hann við. „Í vetur höfum
við bætt verulega við úrvalið af
felgum og aukahlutum sem þeim
tengjast svo sem felguboltum og
róm, miðjulokum, miðjuhringjum
og fleira í þeim dúr. Ætli við getum
ekki státað af því að vera með
landsins mesta úrval af felgum.
Við erum með eitthvað á áttunda
hundrað tegundir af nýjum felgum
ásamt því að úrvalið í notuðum er
líka töluvert.
Þó að við höfum stóraukið
úrvalið af nýjum felgum höfum
við ekki gleymt einu af okkar
aðalsmerkjum í gegnum tíðina
sem er pólýhúðun á felgum. Við
eigum mikið af dekkjum á felgum
sem við lánum fólki á meðan
verið er að pólýhúða svo ekki
þurfi að leggja bílnum á meðan.
Þannig losna viðskiptavinir
Dekkjasölunnar við allt vesen og
umstang sem annars fylgir þessari
aðgerð. Svo eigum við mikið af
pólýhúðuðum felgum á lager
þannig að ef þú ert á sams konar
felgum þá færðu þær undir og við
tökum þínar gömlu og pólýh-
úðum þær fyrir þann næsta sem
kemur,“ greinir Valdimar frá.
Dekk frá mörgum
framleiðendum
„Það sem hefur breyst á síðustu
árum í sambandi við felguskipti er
að allir bílar framleiddir frá og með
árinu 2014 þurfa að hafa búnað
sem lætur vita ef loftþrýstingur
lækkar í dekkjunum. Í flestum
bílum eru þetta skynjarar sem eru
staðsettir við loftventilinn á hverju
dekki en í öðrum bílum er þessi
búnaður í ABS-kerfinu. Við höfum
komið okkur upp fullkomnu
tölvukerfi sem les og forritar nýja
skynjara sem fást auðvitað hér á
hagstæðu verði. Þannig getum við
auðveldlega leyst úr því þegar fólk
vill eiga sumar- og vetrardekk á
felgum.
Þegar kemur að sjálfum dekkj-
unum þá bjóðum við upp á dekk
frá mörgum framleiðendum.
Það sem skiptir okkur máli er að
leiðbeina fólki vandlega um það
hvaða dekk henta akstri þess og
aðstæðum.
Þjónusta bílaleigubíla
Við þjónustum eitthvað á annað
þúsund bílaleigubíla og höfum
notað það tækifæri vandlega til
að skrá niður kílómetra á endingu
á dekkjum ásamt öðrum upplýs-
ingum er varða akstur við íslenskar
aðstæður. Núna erum við komin
með góðan gagnagrunn yfir hvaða
dekk henta hvaða bílum, miðað
við þá notkun sem þeir eru ætlaðir
í, og leiðbeinum fólki í samræmi
við það.
Með því að vera ekki háð neinu
einu vörumerki höfum við á
Dekkjasölunni frjálsar hendur til
að meta hvað hentar fólki best og
getum verið mjög hreinskilin um
það hvað það er sem sameinar
gæði og gott verð í hverju tilfelli
fyrir sig,“ segir Valdimar.
Hræðast ekki samkeppni
Valdimar var spurður hvaða
áhrif koma Costco á markaðinn
kynni að hafa á starfsemi Dekkja-
sölunnar.
„Hvað Dekkjasöluna varðar þá
erum með stóran hóp af tryggum
viðskiptavinum sem koma aftur og
aftur. Þessi hópur hefur stækkað
með hverju árinu sem líður þrátt
fyrir að hér í nágrenninu séu
nokkur stór hjólbarðaverkstæði
og Dekkjasalan hafi ekki auglýst
mikið í gegnum tíðina. Ég held að
það sé vegna þess að hér fær fólk
góða þjónustu á sanngjörnu verði
og það spyrst út.“
Upplýsingar, verð og myndir af
öllum dekkjum og felgum Dekkja-
sölunnar er að finna á heima-
síðunni, dekkjasalan.is.
Vöruhús Dekkjasölunnar er að
Dalshrauni 16 í Hafnarfirði. Opið er
frá klukkan 8 til 18 virka daga og frá
klukkan 10 til 14 á laugardögum.
Símanúmerið er 587-3757 og einnig
er hægt að hafa samband gegnum
tölvupóst á netfangið dekkjasalan@
dekkjasalan.is
Valdimar Sigurjónsson, eigandi Dekkjasölunnar, segist vera með eitt besta úrval landsins af felgum. MYND/GVA
Framhald af forsíðu ➛
Árið 2014 var
húsnæðið tvö-
faldað og við opnuðum
fullbúið dekkjaverk-
stæði með tvennum
innkeyrsludyrum. Núna
í vetur var öllu gjör-
breytt innandyra og
þriðju innkeyrsludyr-
unum bætt við.
Valdimar Sigurjónsson
Ég þarf að treysta
ökumanninum til
að keyra með mig á yfir
200 km hraða á malbiki,
malarvegi eða jafnvel í
snjó og ökumaðurinn
þarf að treysta hverju
einasta orði sem ég segi.
Ásta Sigurðardóttir
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: Visir.isÁbyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Ásta hefur í mörg horn að líta. Auk þess að keppa í ralli er hún við nám í búfræði við
Landbúnaðarháskóla Íslands á
Hvanneyri. „Ég veit ekkert betra
en að vera úti í náttúrunni, innan
um dýr og stefni á að verða bóndi
í framtíðinni, vonandi kúabóndi.
Eins og stendur er ég í verknámi
og bý á bóndabæ í tvo mánuði og
læri á sveitina. Allir dagar hefjast
á mjöltum, kálfaknúsi og ýmsum
verkum, bæði í fjósi og fjárhúsi og
svo bíð ég auðvitað spennt eftir
sauðburði.“
Ásta var 16 ára þegar hún keppti
í ralli í fyrsta sinn og þá varð ekki
aftur snúið. „Bræður mínir hafa
keppt í ralli í mörg ár og ég kynntist
íþróttinni í gegnum þá. Fyrsta
rallið mitt var vorið 2006 svo þetta
er ellefta árið mitt. Ég eignaðist
minn eigin rallýbíl 2008 og keppti
aðeins á honum það ár. Ég tók þátt
í Íslandsmóti 2009 og hef svo tekið
aðeins í stýrið síðan þá en hef þó
oftar keppt sem aðstoðarökumaður
og er öllu flinkari þeim megin í
bílnum. Við Daníel bróðir minn
höfum keppt langmest saman en
ég hef einnig keppt með hinum
bróður mínum, Marra. Við Danni
urðum Íslandsmeistarar 2006 og
2007 og 2016.“
Hvað heillar þig við þessa
íþrótt? „Rall er algjörlega mögnuð
íþrótt. Ég veit ekki um neina
íþrótt þar sem samvinna skiptir
jafn miklu máli. Ég þarf að treysta
ökumanninum mínum til að keyra
með mig á yfir 200 km hraða á mal-
biki, malarvegi eða jafnvel í snjó
og ökumaðurinn þarf að treysta
hverju einasta orði sem ég segi. Ef
ég segi flatt yfir hæð þá þarf hann
að treysta mér og nótunum sem ég
les, hverri beygju, hverri kílómetra-
tölu.“
Hvernig heldur þú þér í góðu
formi fyrir keppnir? „Rall er eins og
flest annað í lífinu, betra er að vera í
ágætu líkamlegu formi en and-
lega hliðin er ekki síður mikilvæg.
Fyrir keppnir tek ég sykur út úr
mataræðinu en mér finnst hann
skemma fyrir mér einbeitinguna.
Þótt það takist sjaldnast reyni ég
að sofa mikið og vel fyrir keppni.
Hugarástand, undirbúningur og
einbeiting skiptir ótrúlega miklu
máli.“
Hvað þarf góður rall-öku-
maður að hafa til að bera? „Það
er ótalmargt sem þarf að haldast
í hendur. Þú þarft að vera flinkur
að keyra, vera djarfur og fljótur að
bregðast við ýmsum aðstæðum
sem upp koma á hverri sérleið. Það
skiptir hins vegar engu máli hversu
flinkur þú ert nema þú getir keyrt
og hlustað á kóarann þinn um leið
og meðtekið það sem hann segir.
Enginn getur munað hvaða beygjur
og blindhæðir eru á einni sérleið og
því skiptir góður kóari öllu máli, og
að hlusta á hann.“
Í hvaða keppnum hefur þú
tekið þátt erlendis? „Ég keppti
fyrst í útlöndum 2007 og við tókum
nokkrar keppnir í Bretlandi. Árið
2010 tókum við heilt tímabil í
BRC og kláruðum 5 af 6 keppnum
víðs vegar um Bretland. Ég varð
Evo Challenge meistari það árið.
Við kepptum á Mitsubishi Lancer
Evolution X og Evo Challenge var
keppni innan Bresku meistara-
keppninnar milli bíla af gerðinni
Evolution. Eftir það tókum við hlé á
útlöndunum þangað til núna í mars
þegar við fórum út til Finnlands og
kepptum á bíl sem Danni keypti
nýlega sem er af gerðinni Skoda
Fabia S2000 og er framleiddur sem
rallýbíll. Rallið var í snjó og fyrsta
svoleiðis rallið sem við keppum í og
var algjörlega geggjað. Þá er keppt
á mjóum dekkjum með stórum
nöglum.
Hvaða bíll er í uppáhaldi hjá
þér? „Ég er miklu meiri rallý-stelpa
en almenn bílastelpa. Ég hef t.d.
einu sinni farið á Bíladaga á Akur-
eyri en það er eitthvað sem fólki
finnst oft ansi skondið, fyrir utan
að ég fór bara til að eltast við sætan
strák en ekki bílana! Auðvitað fylg-
ist ég með hinu og þessu og finnst
ægilega gaman að horfa á drift sem
rísandi íþrótt á Íslandi. Ég hef líka
gaman af sporti þar sem ökumenn
þurfa virkilega að hafa hæfileika og
það finnst mér sjarmerandi. Annars
er ég mikil Evo-stelpa, enda var það
fyrsti rallýbíllinn sem við kepptum
á en hann var af gerðinni Evolution
6. Síðan þá hef ég keppt á 5, 7, 8, 9
og 10 þannig að það eru ófáir sem
maður hefur setið í.”
Rall er mögnuð íþrótt
„Rall er eins
og flest annað
í lífinu, betra
að vera í góðu
líkamlegu formi
en andlega
hliðin er líka
mikilvæg.“
Ásta Sigurðar-
dóttir var valin
akstursíþrótta-
kona ársins 2016
en hún státar af
þremur Íslands-
meistaratitlum.
2 KYNNINGARBLAÐ 1 9 . A P R Í L 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U R