Fréttablaðið - 19.04.2017, Side 30
Samsetning umferðarinnar á vegum landsins er að breytast talsvert. Með auknum
straumi ferðamanna hefur orðið
um 60% aukning á vetrarumferð
milli ára. Bara á Suðurlands-
undirlendinu, Gullna hringnum
til dæmis, sjáum við um 40%
aukningu á vetrarumferð milli ára.
Þetta hefur áhrif á burðarlag vega
en fólksflutningabíll eða vöru-
flutningabíll brýtur niður veginn
á við 10.000 smábíla,“ segir Óskar
Örn Jónsson, forstöðumaður Vega-
gerðarinnar.
Ástand vega sé nú að koma í ljós
eftir veturinn og viðhald aðkall-
andi. Þó nokkrar framkvæmdir
verði á vegakerfinu í sumar.
„Fjárveiting til viðhalds var
aukin um tæplega 40 prósent og
er 8 milljarðar. Þá bættust 1.200
milljónir við til stofnframkvæmda.
Við forgangsröðum eins og hægt
er og ástand veganna er metið með
kerfisbundnum hætti. Sú ástands-
skoðun er sett inn í matsforrit og
svo er forgangsraðað eftir því í
samráði við fulltrúa Vegagerðar-
innar á hverju svæði,“ segir Óskar.
„Öryggi er okkar aðalfókus, og
aðgengi. Ég vonaðist til þess að
geta útrýmt einbreiðum brúm en
það verður ekki í ár. Við munum
hins vegar lengja vegrið víða þar
sem aðstæður kalla á og bæta við
fjölda útskota. Meðal framkvæmda
sem farið verður í í sumar er
endurbygging vegarins við Reynis-
fjöru og þá munu framkvæmdir
við Kjósarskarðsveg halda áfram,
einnig við Dettifossveg. Fram-
kvæmdir við mislæg gatnamót við
Krýsuvíkurveg eru hafnar og þá
verður tveimur hringtorgum bætt
við á Reykjanesbraut. Ný brú við
Eldvatn verður gerð eftir hlaupið í
fyrra og þá vonumst við til að geta
boðið út stórt verk við Berufjarðar-
botn fljótlega og við hringveginn
við Hornafjörð. Dýrafjarðargöng
verða stærsta einstaka verkið og
er áætlað að það taki þrjú ár,“
útskýrir Óskar. Hann hvetur veg-
farendur til að aka varlega í sumar,
sérstaklega um framkvæmdasvæði.
„Það þarf að gera strangar kröfur
um að halda hraða niðri þegar
ekið er yfir nýlagða klæðningu.
Það hefur orðið sprenging í rúðu-
brotum í bílaleigubílum. Vega-
gerðin er einnig í holuviðgerðum
um allt land og meðan klæðningin
er að festa sig ofan í asfaltinu liggja
steinar lausir. Fólk þarf því að
hafa varann á. Þar sem við erum
að byggja upp veginn verðum
við með fylgdarbíla, setjum upp
einstefnu- og umferðarljós til að
tryggja að fólk fari hægt um þau
svæði. Við hvetjum einnig alla til
að hafa augun opin fyrir hjólreiða-
mönnum og ferðamönnum, sem
eiga það til að snarstoppa þar sem
þeir eru staddir ef þeir sjá eitthvað
fallegt.“
Framkvæmda-
kort Vegagerðar-
innar fyrir árið
2017.
Það þarf að gera
strangar kröfur um
að halda hraða niðri
þegar ekið er yfir nýlagða
klæðningu. Fólk þarf því
að hafa varann á.
Óskar Örn Jónsson
Aki varlega á vinnusvæðum
Framkvæmdir verða við vegakerfi landsins í sumar. Óskar Örn Jónsson,
forstöðumaður Vegagerðarinnar, segir stóraukna umferð kalla á viðhald.
Framkvæmdir 2017
Bundið slitlag í lok árs 2016
Þjóðvegir með malarslitlagi
Helstu verk í vega- og
brúagerð sem unnið er
að á árinu.
Birt með fyrirvara um ófyrirséðar
breytingar
Kort sem sýnir framkvæmdir
við sjóvarnir og hafnargerð mun
birtast síðar.
Vaðlaheiðargöng
7,5 km
Verklok 2017
Eigandi ganga:
Vaðlaheiðargöng hf.
Norðfjarðargöng 7,9 km
og vegtengingar 7,3 km
Verklok 2017
Hringvegur (1)
í Reykjadal, áfangi 2
Daðastaðir - Reykjadalsá
Endurbætur 3,8 km
Verklok 2017
Örlygshafnarvegur (612)
Skápadalur - Hvalsker
Styrking og klæðing 6 km
Verklok: 2017
Jarðgöng og vegur
að iðnaðarsvæði
á Bakka við Húsavík
Langholtsvegur (341)
Flúðir - Heiðarbyggð
Endurbygging 5,3 km
Verklok 2017
Hegranesvegur (764)
Ás - Sauðárkróksbraut
Styrking og
klæðing 5,1 km
Verklok 2017
Kaldadalsvegur (550)
Hofmannsflöt
- Uxahryggjavegur
Burðarlag og klæðing 15,7 km
Lokið við framkvæmd frá 2016
Verklok 2017
Djúpvegur (61)
um Súðavíkurhlíð
Snjóflóðavarnir / færsla vegar
Verklok: 2018
Hringvegur (1)
um Akureyri
Lagfæringar
á fjórum
gatnamótum
Verklok 2019
Seyðisfjarðarvegur (93)
Endurbætur á vegsvæði
Langahlíð - Gufufoss
Verklok 2017
Dettifossvegur (862)
Dettifossvegur vestri -
Hólmatungur
Uppbygging nýs vegar
að efra burðarlagi 7,7 km
Verklok 2017
Efra burðarlag og klæðing
Verklok 2018
Strandavegur (643)
Hálsgata - Svanshóll
Endurgerð og klæðing 7,4 km
Verklok: 2017
Snæfellsnesvegur (54)
Hringvegur -
Álftaneshreppsvegur
Afrétting og klæðing 3 km
Verklok: 2017
Uxahryggjavegur (52)
Borgarfjarðarbraut - Gröf
Endurgerð og klæðing 3,8 km
Verklok: 2018
Kjósarskarðsvegur (52)
Fremriháls - Þingvallavegur
Endurbygging og klæðing 6,6 km
Lokið við framkvæmd frá 2016
Verklok 2017
Hróarstunguvegur (925)
um Urriðavatn
Styrking og klæðing 1,3 km
Verklok 2017
Hringvegur (1)
um Berufjarðarbotn
Endurbygging 5,1 km
Brú á Berufjarðará
Verklok 2018
Hringvegur (1)
um Morsá
nýr vegur 3 km
Verklok 2017
Hvanneyrarvegur (511)
Styrking og klæðing 2,0 km
Verklok: 2017
Vestfjarðavegur (60)
Hvolsdalur
Styrking, breikkun
og klæðing 6 km
Verklok: 2018
Súgandafjarðarvegur (65)
Laugar - Suðureyri
Lagfæringar og styrking 4,5 km
Verklok: 2017
Hringvegur (1)
norðan Lauga
Afrétting með
sementsfestun 1,8 km
Verklok: 2017
Hringvegur (1)
við Blöndubrú
Breikkanir við brúarenda
Verklok: 2017
Skagavegur (745)
við Harrastaði,
seinni hluti
Endurbygging 1,1 km
Verklok: 2017
Hringvegur (1)
um Vatnsskarð
Afrétting með
sementsfestun 3,2 km
Verklok 2017
Dagverðareyrarvegur (816)
Hlaðir - Tréstaðir
Endurbygging
og klæðing 1,5 km
Verklok 2017
Dettifossvegur (862)
Hólmatungur - Súlnalækur
Uppbygging nýs vegar 3 km
Verklok 2018
Hringvegur (1)
um Jökulsá á Breiðamerkursandi
Rofvarnir í farvegi,
endurbætur á aðkomu að brú
Verklok 2017
Hringvegur (1)
um Hornafjarðarfljót
Byrjun framkvæmda
Hringvegur (1)
vestan Hestgerðis
Afrétting með fræsun 1,4 km
Verklok 2017
Hringvegur (1)
við Flatey
Afrétting vegar 1,8 km
Verklok 2017
Helgustaðavegur (925)
utan Mjóeyrar
styrking og klæðing 1,1 km
Verklok 2017
Norðfjarðarvegur (95)
um Reyðarfjörð
Endurbætur á grjótvörn
Verklok 2017
Hringvegur (1)
um Þvottárskriður
Breikkun við vegrið
Verklok 2017
Dýrafjarðargöng 5,3 km
og vegtengingar 7,8 km
Verklok 2020
Biskupstungnabraut (35)
Geysir - Tungufljót
Endurbygging 1,6 km
Verklok 2017
Krýsuvíkurvegur (42)
hringtorg við Hellnahraun
Verklok 2017
Reykjanesbraut (41)
hringtorg (2 stk.) við Aðalbraut
og Keflavíkurveg
Verklok 2017
Skaftártunguvegur (208)
Ný brú á Eldvatn
og 2 km vegagerð
Verklok 2019
Kjóskaskarðsvegur (52)
Vindás - Fremriháls
Endurbygging 7 km
Reykjavegur (355)
Biskupstungnabraut - Laugarvatnsvegur
Endurbygging og breytingar 8 km
Verklok 2020
Þingvallavegur (36)
þjónustumiðstöð
- Klukkuhólar
Endurbygging 4 km
Biskupstungnabraut (35)
Heiði - Múlanes
Endurbygging 3 km
Verklok 2017Hakið (3834)
Þingvallavegur - þjónumiðstöð
Endurbygging 0,3 km
Verklok 2017
Reynishverfisvegur (215)
Presthús - Reynisfjara
Endurbygging 2 km
Verklok 2017
Reykjanesbraut (41)
Mislæg gatnamót við Krýsuvíkurveg
Verklok 2017
Framúrskarandi evrópsk gæðadekk
Dekkin frá og eru framleidd
eftir ströngustu gæðakröfum Goodyear.
Ekki gera málamiðlanir þegar kemur að öryggi
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 / 104 REYKJAVÍK - 590 5100
6 KYNNINGARBLAÐ 1 9 . A P R Í L 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U R