Fréttablaðið - 19.04.2017, Síða 39
Guðmundur H. Pálsson tók í
byrjun árs við stöðu framkvæmda-
stjóra auglýsingastofunnar Pipars/
TBWA. Hann er með BA í auglýs-
ingafræði og hefur starfað í auglýs-
ingabransanum í rúman áratug, en
fyrsta starf hans var sem sendill hjá
auglýsingastofunni Örkinni, aðeins
fjórtán ára gamall. Hann segist vera
í draumastarfinu en utan vinn-
unnar fer helmingur ársins í golfí-
þróttina.
Guðmundur er uppalinn í Breið-
holtinu og byrjaði skólagönguna í
Breiðholtsskóla, fór síðan í Selja-
skóla og útskrifaðist úr Menntaskól-
anum við Sund árið 1990. Eftir það
fór hann til Kaliforníu að læra í San
Jose State University og útskrifaðist
með BA í auglýsingafræði árið 1995.
Fyrsta launaða starfið fékk hann
þegar hann var 14 ára sem sendill
hjá auglýsingastofunni Örkinni
sem pabbi hans átti og rak. Hann
vann þar með skóla á sumrin, fyrst
sem sendill, síðan sem hönnuður
og endaði sem tengill. Eftir námið
í Bandaríkjunum kom hann til
Íslands og hóf störf sem markaðs-
stjóri B&L. Hann var þar í tæp tvö
ár og fór síðan yfir til IKEA sem
markaðsstjóri og síðan bættist hús-
gagnadeildin við sem ábyrgðarsvið
hans. Árið 2003 hóf hann störf hjá
Iceland Express sem svæðisstjóri
yfir Íslandi. Árið 2005 færði hann
sig svo yfir í auglýsingabransann og
eftir mörg áhugaverð ár er hann nú
framkvæmdastjóri Pipars\TBWA.
Hvað hefur komið þér mest á óvart
það sem af er ári? Við á Pipar\TBWA
höfum mikið verið að vinna fyrir
ferðamannabransann og er það
alltaf að aukast. Vegna starfsins
fór ég gullna hringinn í febrúar og
það það kom mér verulega á óvart
hversu mikið af erlendum ferða-
mönnum er á þessum stöðum á
þessum tíma, en þetta var eins
og Menningarnótt í miðbænum.
Maður upplifir ferðamenn aðal-
lega í miðbænum, en það er öðru-
vísi að fara á Þingvelli, Gullfoss og
Geysi og finna fyrir þessu. Að fara
inn í mannþröngina á Þingvöllum
á laugardagsmorgni í febrúar er
eitthvað sem kom mér verulega á
óvart.
Hvaða app notarðu mest? Ég
nota Flipboard mjög mikið. Þar er
skemmtilega tekið saman allt það
sem ég hef áhuga á, sett upp eins og
fréttasíða fyrir hvern flokk. Hvort
sem það er sportið eða allt það nýj-
asta sem er að gerast í auglýsinga-
bransanum eða tæknimálum þá
finn ég það í þessu appi. Síðan eru
það þessi hefðbundnu öpp sem ég
nota mikið, s.s. helstu úrslit í enska
boltanum og ekki skal gleyma Fant-
acy-appinu, en það er hörð keppni
í vinnunni.
Hvað gerir þú í frístundum þínum?
Helmingur ársins fer í golfíþróttina.
Ég reyni að stunda golf sem mest á
sumrin og ef ég get lengi ég tímabil-
ið með ferð til Flórída þar sem fjöl-
skyldan á húsnæði. Það eru miklir
golfarar í vinnunni minni en ásamt
því eru gömlu handboltafélagarnir
með vinagolfhóp. Upp á síðkastið
hafa aðeins verið að bætast við fjall-
göngur með fjölskyldunni, en það er
eitthvað sem ég held að eigi eftir að
aukast.
Hvernig heldur þú þér í formi?
Það hefur verið tekið í skorpum
hjá mér að halda forminu og er ég
búinn að prófa margar leiðir í því. Á
tímabili var það CrossFit sem er ein
skemmtilegasta leiðin til að komast
í mjög gott form. Annars hafa úti-
hlaup og tækjasalir verið mín leið
síðustu misseri.
Hvernig tónlist hlustar þú á? Börn-
in og konan eru alltaf að kynna nýja
tónlist fyrir mér og er margt mjög
gott. Ég enda samt alltaf sjálfur á að
hlusta á gömlu rokkarana, svo sem
Stones, Hendrix, Pink Floyd, Guns’n
Roses o.fl. Einnig, ef ég vil róa þetta
aðeins niður, þá hlusta ég á Clapton,
Dylan og Johnny Cash. Það lítur út
fyrir mikla veislu í þessu í sumar, en
hingað eru að koma Foo Fighters
og Red Hot Chilli Peppers sem ég er
búinn að kaupa miða á.
Ertu í draumastarfinu þínu? Að
vinna við auglýsingar og markaðs-
mál er eitthvað sem ég hef mjög
gaman af og hefur verið mín ástríða.
Til þess að vera í þessu starfi og
ílengjast þarf það að vera áhuga-
málið líka. Ég mæli ekki með því
fyrir neinn að vera í starfi sem ekki
er skemmtilegt. Það er gaman að
vinna með skemmtilegu, skapandi
fólki og takast á við áskoranir dags-
ins. Hjá mér er gaman í vinnunni og
er ég því klárlega í draumastarfinu.
Helmingur
ársins fer í
golfíþróttina
Guðmundur nam auglýsingafræði í Bandaríkjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Svipmynd
Guðmundur H. Pálsson
Heimildarefni á
Stöð 2 Maraþon NOW
SKOÐAÐU ÚRVALIÐ AF
HEIMILDARMYNDUM OG ÞÁTTUM Á
STÖÐ 2 MARAÞON NOW.
TRYGGÐU ÞÉR ÁSKRIFT
Á AÐEINS 2.990 KR
Á MÁNUÐI Á 2NOW.IS.*
*Stöð 2 Maraþon NOW fylgir einnig völdum sjónvarpspökkum Stöðvar 2. 2now.is
7M I Ð V I K U D A G U R 1 9 . A P R Í L 2 0 1 7 MARKAÐURINN