Fréttablaðið - 19.04.2017, Page 44
Ástkær eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, a
og langa
,
Ásmundur Brekkan
prófessor,
lést þriðjudaginn 11. apríl sl.
Útförin auglýst síðar.
Ólöf Helga S. Brekkan og ölskylda.
Elsku pabbi okkar, eiginmaður, sonur,
bróðir og tengdasonur,
Daði Garðarsson
Kelduhvammi 24, 220 Hafnarrði,
varð bráðkvaddur mánudaginn
10. apríl. Útför fer fram föstudaginn
21. apríl kl. 13.00 í Fríkirkjunni í Hafnarrði.
Alexander Máni Daðason
Dagur Máni Daðason
Fjóla Huld Daðadóttir
Bríet Ýr Daðadóttir
Karólína Helga Símonardóttir
Ragnheiður Víglundsdóttir
Laufey Dögg Garðarsdóttir Auðunn Einarsson
Birna Sigurbjörg Benediktsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
stjúpfaðir, tengdafaðir, a
og langa
,
Ríkarður Másson
fyrrverandi sýslumaður,
Iðutúni 16, Sauðárkróki,
lést 3. apríl 2017. Kveðjuathöfn verður í
Sauðárkrókskirkju laugardaginn 22. apríl
2017 kl. 14.00. Útför verður frá Háteigskirkju föstudaginn
28. apríl 2017 kl. 15.00.
Herdís Þórðardóttir
Ríkarður Már Ríkarðsson Lilja Þorsteinsdóttir
Hilmar Þór Óskarsson Sigríður Síta Pétursdóttir
Sólveig Lilja Óskarsdóttir
Davíð Þór Óskarsson Eva Dögg Fjölnisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra
Erla Lóa Ástvaldsdóttir
er lést þann 7. febrúar sl. á Ítalíu,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju
föstudaginn 21. apríl nk. kl. 11.00.
Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Krabbameinsfélagið.
Ástvaldur Eiríksson
Linda Katla og Carlo
Marco og Veronica
Erika og Edoardo
Ólafur Þ. Pálsson og Lára Björnsdóttir
Lárus Ástvaldsson og Kristín Stefánsdóttir
Helga Ástvaldsdóttir og Ágúst Kárason
Útför ástkærs föður míns, afa,
tengdaföður og langafa,
Ólafs Guðmundssonar
fyrrverandi forstjóra Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna í Bretlandi,
sem lést á heimili sínu í Bretlandi,
þriðjudaginn 14. mars, fer fram frá
Neskirkju föstudaginn 21. apríl kl. 13.00.
Guðmundur Bjarni Ólafsson Catherine Stormont
Richard Jón Ólafsson Elena Ólafsson
Robert Pétur Ólafsson Caroline Tweddle
Andrew Ólafsson
Anna Ólafsson
Elfa Halldóra Ólafsson
Hugmyndin spratt út frá ferli sem við gengum í gegnum í fyrra. Þar vorum við að vinna með hópspuna. Hópspuni er ákveðið form
innan spuna þar sem hópurinn tengist
í gegnum hreyfingu, hvort sem það
er milli tveggja manneskja eða stærri
hóps,“ segir Ástrós Guðjónsdóttir, nem-
andi í Listaháskóla Íslands.
Hún segir hópinn, sem kallar sig REAL
collective og samanstendur af annars árs
nemum, hafa heillast af hópspunaform-
inu eftir þennan kúrs. „Við sáum mögu-
leika á að tengja fólk saman í gegnum
hreyfingu frekar en munnleg samskipti.
Í nóvember prufuðum við svo að halda
fyrsta tímann fyrir almenning og síðan
þá höfum við hist á hverjum einasta
mánudegi klukkan 19.00.“
Feimnin fer fljótt
Ástrós segir almenning hafa tekið vel
í þessa danstíma. „Móttökurnar hafa
verið frábærar og það er skemmti-
legt að sjá ný andlit á hverjum einasta
mánudegi. Aldurshópurinn er breiður
og í hverjum tíma er nýr og fjölbreyttur
hópur. Fólk getur verið hrætt við að
labba inn í litla skúrinn okkar þar sem
töfrarnir gerast. Um leið og þau hafa
stigið inn fyrir þröskuldinn er stærsta
skrefinu lokið.“
Að sögn Ástrósar er fólk stundum
feimið þegar það mætir í tímana en
feimnin er fljót að hverfa. „Við byrjum
alltaf á stuttu spjalli til að kynnast hvert
öðru og létta á andrúmsloftinu fyrir þá
sem eru stressaðir. Eftir það er fólk mjög
afslappað og nýtur þess að hreyfa sig og
dansa. Við leiðum hópinn í gegnum
tímana og gerum einfaldar æfingar til
að örva hreyfifærni líkamans. Í lok hvers
tíma tökum við slökun þar sem einblínt
er á þarfir hvers einstaklings fyrir sig.
Við leggjum mikla áherslu á afslappað
andrúmsloft þar sem fólki er velkomið
að dansa eða horfa á,“ útskýrir Ástrós
og tekur fram að tímarnir henti öllum,
óháð aldri og reynslu í dansi.
Ástrós segir dansinn hafa afar jákvæð
áhrif á geðheilsu og hjálpa fólki við að
kúpla sig út úr stressi. „Við höfum orðið
vör við að þetta hjálpar fólki að létta á
áhyggjum sínum og stressi. Þetta er eins
og tveggja tíma frí frá hinu daglega lífi
í hverri viku. Fólk fer afslappaðra út en
það kom inn, auk þess sem það hefur
trúlega eignast nýja vini eða kunningja.
Við höfum mikla trú á hópspunaform-
inu til að tengja fólk saman á annan hátt
en það er vant,“ útskýrir Ástrós sem líkir
tímunum við sálfræðitíma.
Búa sig undir námsferð til Ísraels
Dansverkefnið sem um ræðir er upp-
hafið á námsferð sem hópurinn er að
fara í til Ísraels í janúar á næsta ári. „Við
viljum dýpka skilning okkar enn frekar
á hvernig við getum fært almenning nær
dansi áður en við förum út. Þar munum
við halda áfram með ferlið sem kenn-
arar okkar, Emma Rozgoni og Noam
Carmeli, byrjuðu með okkur í fyrra.
Við vonumst svo til að fá að hitta
dansflokkinn Batsheva Dance Company,
sem er heimsfrægur dansflokkur. Kenn-
arinn okkar, Emma, hefur þjálfað með
þeim og þekkir þau vel sem gerir okkur
vongóð. Það yrði algjör draumur að hitta
þau þar sem að við höfum litið upp til
þeirra seinustu ár og eflaust draumur
margra ungra dansara að fá að hitta þau.
Stærsta verkefnið okkar sem við munum
vinna að úti er að skapa verk til að sýna
hér á Íslandi eftir heimkomu. Verkið
mun verða innblásið af hópspuna og
tilraun okkar til að rannsaka möguleika
hópspuna sem sýningarforms.“
Til að fjármagna ferðina hefur hópur-
inn sett af stað söfnun og stefnir á að
safna tæpum tveimur milljónum.
„Við erum að safna 14.000 evrum sem
eru um 1,8 milljónir. Sá kostnaður er
miðaður við að halda sjö manneskjum
uppi í þrjár vikur í Ísrael. Söfnunin
gengur ágætlega en við höfum safnað
um 1.000 evrum. Það er einn mánuður
eftir af söfnuninni en við hvetjum fólk
eindregið til að kíkja á söfnunarsíðuna
okkar hjá Karolina Fund og kíkja á
áheitin okkar. Einnig er hægt að finna
okkur á Facebook og fylgjast með okkur
þar undir nafninu REAL collective.“
gudnyhronn@365.is
Opnu danstímarnir eru
eins og sálfræðimeðferð
Nýverið hófu háskólanemar af samtímadansbraut LHÍ að bjóða almenningi að koma og
dansa með sér í opnum danstíma á hverjum mánudegi. Ástrós Guðjónsdóttir dansnem-
andi segir danstímana hafa jákvæð áhrif á líkama og sál og gefa fólki frí frá amstri dagsins.
Danshópurinn Real Collective stefnir á að fara í námsferð til Ísraels á næsta ári.
Fólk fer afslappaðra út en það kom inn, auk
þess sem það hefur trúlega
eignast nýja vini eða kunningja.
20 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 9 . A P R Í L 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A G U R
TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@365.is.