Fréttablaðið - 19.04.2017, Page 47
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Miðvikudagur
hvar@frettabladid.is
19. APRÍL 2017
Tónlist
Hvað? Útskriftartónleikar Sigríðar
Eyþórsdóttur! tónskálds
Hvenær? 20.00
Hvar? Salnum, Kópavogi
Tónleikar Sigríðar Eyþórsdóttur, af
tónsmíðabraut, eru fyrsti viðburð-
ur útskriftarhátíðar Listaháskóla
Íslands. Verkið byggir á tveimur
þáttum. Annars vegar náttúru- og
umhverfisþáttum og hins vegar
tilfinningum og innri togstreitu.
Þessum þáttum er svo púslað
saman þannig að náttúran táknar
vissar mannlegar tilfinningar.
Verkið er að stórum hluta hljóð-
ritað fyrirfram en píanó og selló
munu hljóma með hljóðritinu.
Hvað? Vetur kvaddur
Hvenær? 14.00
Hvar? Breiðholtskirkju
Vorhátíð kirkjustarfs eldri borgara
í Breiðholtinu verður haldin í
dag. Þar mun kór eldri borgara í
Neskirkju, Hljómur, syngja undir
stjórn Hildigunnar Einarsdóttur
og Gerðubergskórinn undir stjórn
Kára Friðrikssonar. Eins mun
Soffíuhópurinn úr Hæðargarði lesa
ljóð og börn úr Tónskóla Sigur-
sveins leika á hljóðfæri. Kynnir
er sr. Þórhallur Heimisson. Eftir
hátíðina í kirkjunni er öllum
boðið til veislukaffis í safnaðar-
heimili Tjaldkirkjunnar í Mjódd.
Hvað? Sumrinu fagnað með latín- og
salsatakti
Hvenær? 20.30
Hvar? Kex Hosteli
Í fyrra kom út geisladiskurinn
Bongó með níu manna latínsveit
bassaleikarans Tómasar R. Einars-
sonar. Og í kvöld mun Tómas
ásamt hljómsveit sinni og salsa-
dönsurum flytja plötuna í heild
sinni á fríum tónleikum. Tónlistar-
fólkið sem kemur fram með Tóm-
asi eru m.a. Sigríður Thorlacius og
Bogomil Font.
Hvað? „Inspired“ – Harold Burr –
Gospel
Hvenær? 20.00
Hvar? Hannesarholti
Kvöldstund með Harold E. Burr
tónlistarmanni gefur fullkomið
tilefni til að verða innblásinn af
gospeltónlist. Harold hefur búið
á Íslandi undanfarin ár, en var
á yngri árum meðlimur í hinni
goðsagnakenndu hljómsveit The
Platters. Miðaverð er 3.000 krónur
á midi.is.
Sýningar
Hvað? Opnun á Sumarsýningu Grósku
Hvenær? 20.00
Hvar? Gróskusalnum, Garðatorgi 1
Íslensku vorboðarnir eru tveir:
lóan sem þegar er mætt með sitt
dirrindí og hin árlega Sumarsýning
Grósku. Hún verður opnuð í kvöld.
Til sýnis verða verk eftir hátt í
þrjátíu félaga í Grósku. Myndlistar-
mennirnir vinna verk sín í ýmsa
miðla og er fjölbreytnin því mikil
þannig að allir ættu að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi. Rebekka Sif
Stefánsdóttir söngkona syngur við
opnunina og Aron Andri Magnús-
son leikur á gítar. Auk myndverka
og ljúfra tóna verða einnig í boði
léttar veitingar. Fólk er hvatt til
að gera sér glaðan dag og göfga
andann með því að fagna sumrinu
á Sumarsýningu Grósku. Allir
eru velkomnir og þeir sem ekki
komast á opnunina þurfa ekki
að örvænta því sýningin er opin
áfram 20.-23. apríl kl. 12-18.
Hvað? Frumsýning á myndinni Hans
Jónatan – maðurinn sem stal sjálfum
sér
Hvenær? 19:30
Hvar? Havarí, Karlsstöðum, Djúpavogi
Heimildarmynd um Hans Jónatan
– manninn sem stal sjálfum sér
verður frumsýnd í Havarí í kvöld.
Myndin er um klukkustundar-
löng og er byggð á samnefndri
bók Gísla Pálssonar um manninn
sem fæddist sem þræll en átti að
lokum farsælt líf á Djúpavogi eftir
að hann birtist þar árið 1802. Í
myndinni er fetað í fótspor Hans
Jónatans á St. Croix, Kaupmanna-
höfn og Íslandi.
Fyrirlestrar
Hvað? Alþjóðasamvinna á kross-
götum: Hvert stefnir Ísland?
Hvenær? 9.00
Hvar? Norræna húsinu
Hvaða áhrif hefur breytt valdajafn-
vægi á smáríki á norðurslóðum,
möguleika þeirra til áhrifa í
alþjóðakerfinu og samstarf ríkja
innan alþjóðastofnana? Á ráð-
stefnu Alþjóðamálastofnunar
Háskóla Íslands og Norðurlanda
í fókus í samstarfi við Stofnun
stjórnsýslufræða og stjórnmála og
Félags stjórnmálafræðinga verður
velt upp spurningum tengdum
breyttu valdajafnvægi í heiminum
og stöðu lítilla ríkja í alþjóða-
kerfinu í dag. Þetta og margt fleira
verður rætt frá kl. 9-18. Aðgangur
er ókeypis og allir velkomnir á
meðan húsrúm leyfir, en skráning
fer fram á vefsíðu Alþjóðamála-
stofnunar, ams.hi.is.
Góða skemmtun í bíó
enær
Sigríður Thorlacius er meðal þeirra sem koma fram á sumartónleikum á Kex.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÁLFABAKKA
FAST AND FURIOUS 8 KL. 5:10 - 8 - 10:45
FAST AND FURIOUS 8 VIP KL. 5:10 - 8 - 10:45
GOING IN STYLE KL. 5:50 - 8 - 10:10
A MONSTER CALLS KL. 5:40 - 8
GHOST IN THE SHELL 2D KL. 5:30 - 8 - 10:45
CHIPS KL. 10:20
BEAUTY AND THE BEAST 2D KL. 5:10 - 8
KONG: SKULL ISLAND 2D KL. 10:45
FAST AND FURIOUS 8 KL. 5 - 7:40 - 10:30
GOING IN STYLE KL. 5:50 - 8 - 10:10
GHOST IN THE SHELL 2D KL. 10:10
CHIPS KL. 8 - 10:40
BEAUTY AND THE BEAST 2D KL. 5:20 - 8
KONG: SKULL ISLAND 2D KL. 5:30
EGILSHÖLL
GOING IN STYLE KL. 5:50 - 8 - 10:10
GHOST IN THE SHELL 2D KL. 8 - 10:30
BEAUTY AND THE BEAST 3D KL. 5:20 - 8 - 10:40
LA LA LAND KL. 5:20
KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI
GOING IN STYLE KL. 5:50 - 8 - 10:10
GHOST IN THE SHELL 2D KL. 10:40
BEAUTY AND THE BEAST 2D KL. 5:20 - 8
AKUREYRI
FAST AND FURIOUS 8 KL. 8 - 10:45
GOING IN STYLE KL. 8 - 10:10
KEFLAVÍK
TIME
TOTAL FILM
EMPIRE
Ein besta ævintýramynd allra tíma
VARIETY
87% THE PLAYLIST
CHICAGO SUN-TIMES
THE NEW YORK TIMES
SAN FRANCISCO CHRONICLE
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
SÝND KL. 8 SÝND KL. 8, 10.15
SÝND KL. 10.35SÝND KL. 4, 6
SÝND KL. 4, 7, 10 SÝND KL. 4, 6
HAPPY HOUR Á
BARNUM 17-19
Welcome to Norway 18:00
I, Daniel Blake 18:00
Safari 18:00
Genius 20:00
Moonlight 20:00
Glory 22:00
The Other Side Of Hope 22:30
Manchester By the Sea 22:30
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 | LAUGARDAGA 11 - 16
BÆJARLIND 16 | 201 KÓPAVOGUR | SÍMI 553 7100 | LINAN.IS
Láttu okkur ráða
Elja starfsmannaþjónusta 4 150 140 elja.is elja@elja.is
Þarftu að ráða?
Iðnaðarmann
Bílstjóra
Bifvélavirkja
Þjónustufólk
Öryggisvörð
Lagerstarfsmann
Matreiðslumann
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 23M I Ð V I K U D A G U R 1 9 . A P R Í L 2 0 1 7