Fréttablaðið - 19.04.2017, Page 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
Á T T U V O N
Á G E S T U M ?
Ítalskur svefnsófi með góðri
dýnu. Fæst dökkgrár, rauður,
ljósbrúnn og röndóttur.
Dýnust.: 140x200 cm.
Q UA D R O
PA L E R M O
C L I O
Ítalskur svefnsófi frá
Natuzzi Edition með góðri
dýnu. Hvítt eða rautt
vandað leður. Dýnust.:
140x200 cm.
FULLT VERÐ: 289.900 KR.
TILBOÐSVERÐ
217.425 K R.
FULLT VERÐ: 389.900 KR.
TILBOÐSVERÐ
292.425 K R.
Svefnsófi með góðri dýnu.
Rautt og dökkgrátt áklæði.
Dýnust.: 140x200 cm.
TILBOÐSVERÐ
277.425 K R. FULLT VERÐ: 369.900 KR.
2 5 % A F S L Á T T U R
A F Ö L L U M S V E F N S Ó F U M
ALLTAF VIÐ HÖNDINA
Þú getur lesið
Fréttablaðið í heild
sinni á Vísi og í
Fréttablaðs-appinu
... allt sem þú þarft
Þú færð appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum
Þetta eru örugglega búin að vera mestu lífs-reynsluárin sem ég hef átt hingað til – þetta er ekkert það langur tími og allt sem ég er búinn
að gera, læra, sjá og fá að fylgjast
með – þetta er eitthvað sem krakkar
á mínum aldri myndu örugglega
gera mikið til að fá að upplifa. Ég hef
fengið að vinna með og kynnast fullt
af ógeðslega góðu fólki. Þetta er bara
yndislegt,“ segir Aron Can um árin
2016 og 2017 en hann hefur bók-
staflega rokið upp á stjörnuhimininn
síðan hann gaf út mixteipið Þekkir
stráginn fyrir sirka ári. Í dag kemur
nýjasta platan hans, Ínótt, út á
vegum Sticky Records og er um plötu
í fullri lengd að ræða, 14 glæný lög.
Er þetta tímabil í lífi þínu það sem
platan snýst um? „Já – þetta er í raun
og veru bara það. Lífið síðan allt
þetta brjálæði byrjaði.“
Hversu lengi ertu búinn að vera
að vinna að plötunni? Hefur allt
þetta tónleikahald ekkert truflað?
„Kannski sex mánuði, allavega. Það
er bara stúdíóið á hverju einasta
kvöldi. Þegar við erum að taka svona
„session“ eins og með þessa plötu þá
get ég alveg minnkað við mig í spila-
mennsku í einhvern x tíma. Síðan
tek ég kannski nokkur gigg og er þá
ekki alveg jafn mikið uppi í stúdíói
– ég þarf náttúrulega líka að bæta
„showið“ mitt. Þetta er allt í hraðri
þróun.“
Á plötunni eru einungis lög sem
ekki hafa heyrst áður, en Aron hefur
ekki tekið neitt þeirra á tónleikum
hingað til. Eins og áður eru það þeir
Aron Rafn og Jón Bjarni sem sjá um
að smíða tónlistina með Aroni og
líkt og á mixteipinu hans verða engir
gestir á plötunni.
Ertu að fara í aðrar áttir með tón-
listina á þessari plötu eða er þetta
svipað og teipið? „Jájá, eins og ég segi
þá getur þú borið þetta saman við
eldra dótið mitt – þetta er í raun og
veru það sama nema miklu þróaðra,
miklu vandaðra og ég er með meiri
reynslu og búinn að leggja meiri
vinnu í þetta. Þetta albúm er miklu
meira það sem ég vil gera og miklu
minna pælt út frá því sem fólk vill
heyra.“ Aron segir aðspurður að því
hvort þessi mikla frægð á svona stutt-
um tíma sé eitthvað sem hann hafi
búist við, að hann hafi að vissu leyti
búist við mjög góðum viðbrögðum
en kannski ekki alveg eins miklum
og raun ber vitni.
„Ég er búinn að gefa út eitt teip
og tvo, þrjá singúla fyrir utan það
og þetta er ekkert endilega það sem
vanalega gerist eftir svona stuttan
tíma, þetta er auðvitað það fyrsta
sem ég geri. Ég bjóst við þessu en
bjóst ekki við þessu svona hratt
svona eftir að við gerðum Þekkir
stráginn – sem við gáfum út bara
tveimur dögum eftir að við bjuggum
það til og þá vorum við bara „vó,
búum til teip, þetta er heitt“.“
Þegar blaðamaður spyr Aron að
því hvort hann fari ekki bara beint
í sumarfrí eftir þessa útgáfu svarar
hann án þess að hika: „Það er aldr-
ei frí.“ Næsta verkefni er nú þegar
komið vel á veg og mun að sögn
Arons líta dagsins ljós í sumar.
Í tilefni af útgáfu plötunnar verður
í dag og fram nótt mikil veisla sem
hefst með hófi í Gallerý Porti klukk-
an fjögur en þaðan verður haldið í
skrúðgöngu á Prikið þar sem platan
verður til sölu og fagnað verður langt
fram á nótt. stefanthor@frettabladid.is
Það er aldrei frí
Aron Can gerði allt vitlaust fyrir um ári með mixteipinu Þekkir
stráginn og er lagið Enginn mórall komið með milljón spilanir. Í dag
gefur hann út Ínótt, sína fyrstu plötu í fullri lengd – á geisladisk.
ÞETTA ER EKKERT
ÞAÐ LANGUR TÍMI OG
ALLT SEM ÉG ER BÚINN AÐ
GERA, LÆRA, SJÁ OG FÁ AÐ
FYLGJAST MEÐ – ÞETTA ER
EITTHVAÐ SEM KRAKKAR Á
MÍNUM ALDRI MYNDU ÖRUGG-
LEGA GERA MIKIÐ TIL AÐ FÁ AÐ
UPPLIFA.
Eins og sjá má kemur platan út í föstu formi, sem er ekki alvanalegt í nettengdum heimi nútímans. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
1 9 . A P R Í L 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A G U R30 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð