Fréttablaðið - 19.04.2017, Side 56
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Á morgun fögnum við sumardeginum fyrsta. Það er margt gott við sumarið, m.a.
það að þá ganga margir í heilagt
hjónaband, ýmist trúarlega eða
borgaralega. Það gleður alltaf hjarta
mitt að horfa á brúðhjónin ganga
inn kirkjugólfið til að bera fram
heit sín um ást, trúfesti og virðingu;
hinar þrjár stoðir hjónabandsins.
Ég held að gott hjónaband snúist
um að vanda sig. Tengslin í lífinu
skipta mestu máli og eigi ástúðar-
bönd að styrkjast þarf maður að
vanda sig. Ég sá um daginn rúmlega
40 ára gamla ljósmynd á Fb-síðu
vinar míns af nokkrum hjónum
standandi fyrir utan heimili for-
eldra hans. Yst á myndinni voru for-
eldrar mínir og það sem gladdi mig
mest var að sjá hvernig þau héldust
í hendur. Ég átti alltaf þá góðu til-
finningu á uppvaxtarárunum að
þau lifðu í góðu hjónabandi. Þessi
mynd minnti mig á það og kallaði
fram þakklæti. Ekki vegna þess
að hjónaband foreldra minna hafi
verið átakalaust heldur vegna þess
að það var heilagt. Hugtakið heilagt
hjónaband er ekkert guðsorða-
gjálfur. Það sem er heilagt er frá-
tekið. Hjón velja að vera frátekin
fyrir hvort annað. Ytri þættir skipta
þar minnstu máli heldur er það inn-
takið sem öllu varðar. Í hjónabandi
ber fólk ekki ábyrgð hvort á öðru
heldur bera hjón ábyrgð á sjálfu
sér og framkomu sinni gagnvart
hvort öðru. Hjón eru tveir fullveðja
jafningjar sem velja að vera vitni
að lífi hvor annars og deila kjörum.
Eitt það fallegasta sem ég sé í mínu
starfi, þótt það sé sárt, er það þegar
maki beygir sig yfir kistuna og
kveður ástvin sinn eftir áratuga
samleið og grætur og þakkar. Þá
skilur maður hvað er heilagt við
hjónabandið. Ég óska brúðhjónum
sumarsins heilla og hamingju.
Heilagt
hjónaband
Jónu Hrannar
Bolladóttur
BAKÞANKAR
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
Í ENGIHJALLA,
VESTURBERGI
OG ARNARBAKKA
*Verð miðast við WOW Basic aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró. BRÍETARTÚNI 13 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
Brussel er höfuðborg Belgíu, staðsett í hjarta landsins og
Evrópu allrar. Og þar eru ekki bara sendiráð og skjalatöskur.
Aldeilis ekki. Borgin iðar af mannlífi og menningu, ilmar af
vöfflum og súkkulaði — og býður upp á úrval verslana og
spennandi viðkomustaða. Bókaðu flug strax í dag.
BRUSSEL f rá
T í m a b i l : j ú n í
Bienvenue!
Welkom!
7.999 kr.*
MEIRI HRAÐI,
SKARPARI MYND,
BETRA VIÐMÓT
APPLE TV 4 Á
365.is