Fréttablaðið - 21.11.2015, Síða 18
Við urðum öll agndofa við árásirnar í París í liðinni viku. Framundan er tími óvissu í alþjóða
málum og við vitum ekki hvaða áhrif
þessir atburðir muni hafa til lengri
tíma litið. Það er mikilvægt að muna
að þessi ofbeldisverk hafa ekkert með
trú eða þjóðerni að gera. Þær byggja
á óskiljanlegri og andstyggilegri hug
myndafræði, sem sér ógn í frjálsu sam
félagi. Íslam er ekki vandamál í Evrópu,
heldur öfgahreyfingar sem misnota til
finningu annarrar og þriðju kynslóðar
innflytjenda sem upplifa sig utanveltu.
Auðveld skotmörk
Hryðju verk amenn síðustu ára eru oft
ast ungir piltar af mús límsk um upp
runa sem hafa al ist upp í viðkom andi
ríki, en upp lifa sig ut an veltu og eru fé
lags lega veik b urða. Þeir finna sig ekki
í skóla eða vinnu og eiga ekki von um
að ná sama árangri og aðrir. Útsend
arar nálgast þá meðal annars í gegnum
tölvusamskipti og næra með þeim
öfgafullar hugsanir og heimsmynd.
Það er slá andi að svipaður er bak
grunn ur þeirra sem ger ast sek ir um
hrika leg fjölda morð í Banda ríkj un
um á síðustu miss er um. Skortur á
tengslum við samfélagið, viðeigandi
skólagöngu og atvinnutækifærum
fyrir unga pilta í vestrænum sam
félögum er hætt að vera félagslegt eða
menntarannsóknarlegt úrlausnarefni
og er orðið mikilvægt öryggismál
vestrænna samfélaga. Það er skrýtið
að þessar staðreyndir endurspeglist
ekki í auknum opinberum framlögum
til fjölbreytts framhaldsnáms sem
mætir ólíkum þörfum, aðgangi að sál
fræðiþjónustu og þróun fjölbreyttra
atvinnutækifæra fyrir unga pilta.
Stóra myndin
Stóra myndin er svona: Það er jafn frá
leitt að tengja íslam við hryðjuverk og
ef við ræddum vændi og mansal alltaf
sem sérstakt vandamál kvenna. Mús
limar eru vissulega oftast fórnarlömb
ofbeldis öfgamanna sem kenna sig
við íslam og ungt fólk úr þeirra röðum
verður sérstaklega fyrir barðinu á
útsendurum slíkra afla, rétt eins og
konur eru oftast fórnarlömb vændis
og mansals. En skömmin og ábyrgðin
á ofbeldinu liggur hjá þeim sem það
boða, en ekki öllum múslimum og síst
af öllu hjá fórnarlömbum ofbeldis.
Aukinn viðbúnaður
Um alla Evrópu er nú horft til þess
hvernig hægt er að bregðast við þessum
atburðum með hertri löggæslu og eftir
liti. Það er sjálfsagt að gera það og mikil
vægt að löggæslan hafi fullnægjandi
tæki til að bregðast við hættu. Mat á því
má samt ekki byggja á hind ur vitn um
eða flökku sög um held ur staðreynd
um og yf ir vegaðri túlk un á þeim. Það
hef ur til dæm is ekk ert komið fram sem
styður við staðhæf ing ar um að opin
landa mæri Evr ópu séu or sök þess ara
árása. Við skul um því bregðast við auk
inni lög gæsluþörf ef hún er fyr ir hendi
en ekki búa hana til.
Við gætum vopnast til að reyna að
mæta vandanum. Það mun hins vegar
aldrei uppræta nýliðun í hópi öfga
manna, svo lengi sem áfram verða til
félagslegar aðstæður sem ala á von
leysi og einangrunartilfinningu ungra
pilta. Það er athyglisvert að bera saman
jákvæð viðbrögð stjórnvalda á Vestur
löndum gagnvart óskum um frekari
útgjöld til löggæslu og öryggismála
og neikvæð viðbrögð við því að auka
útgjöld til félagslegra lausna, svo sem
því að auka framboð fjölbreytts fram
haldsnáms og fjölga tækifærum ungs
fólks. Bresk stjórnvöld skera nú til
dæmis gríðarlega niður fjármagn til
framhaldsnáms, á sama tíma og for
dæmalausum fjárhæðum er varið í
löggæsluviðbrögð við hryðjuverkum.
Lausnin felst í samheldni
Við skulum gæta okkar að draga réttar
ályktanir af þessari þróun. Í hruninu
jukum við framlög til fjölbreyttra
lausna fyrir atvinnulaust ungt fólk
með góðum árangri, en sú áhersla
hefur síðan dregist saman. Við þurfum
að auka framlög til þessara verkefna
og leggja áherslu á fjölbreyttan fram
haldsskóla sem er öllum opinn. Stefnu
stjórnvalda þarf að snúa við.
Frá aldamótum hefur fjöldi leik
skólabarna með erlent ríkisfang sjö
faldast á Íslandi, en ungt fólk af erlend
um uppruna er í miklu minni mæli í
framhaldsskólum en fólk af íslenskum
uppruna. Þarna þarf úrbætur og aukna
áherslu á að auðvelda fólki af erlendum
uppruna framgang í skólakerfinu.
Stefna núverandi menntamálaráðherra
um harðari kröfur um námsframvindu,
hraðara nám og lokun framhaldsskól
ans fyrir eldri nemendum er eins vit
laus og hugsast getur í þessu samhengi.
Brjótum niður fé lags lega ein angr un
Viðbrögð Vesturlanda við þessari ógn
munu skipta öllu um þróun samfélaga
okkar á næstu áratugum. Besta svarið
hlýtur að vera það sem Jens Stoltenberg
gaf eftir fjöldamorðin í Ósló og Útey:
Eflum enn frekar opið, frjálst samfé
lag og mannúð, án þess þó að gera
lítið úr hættunni sem við er að eiga.
Við skulum ekki vanmeta hættuna
heldur bregðast við henni af þeirri
alvöru sem nauðsynleg er. En við
skulum ekki bregðast við með því að
hamast bara á afleiðingum félagslegs
óréttlætis, heldur ráðast líka að rótum
þess.
Hryðjuverk og viðbrögð
Boðað afnám tolla af fötum og skóm um áramótin hefur þegar stuðlað að lækkun verðlags í
íslenzkum verzlunum. Undanfarna
daga hafa ýmsar fata og skóbúðir
lækkað verðið um 15%, eða hér það bil
um það sem nemur tollunum.
Afnám tollanna er að sjálfsögðu
mikið hagsmunamál innlendrar verzl
unar, enda stuðlar það að því að neyt
endur kaupi fremur fatnað hér á landi
en erlendis. Rétt eins og í fyrra, þegar
afnám vörugjalda og lækkun efra þreps
virðisaukaskatts var boðuð um áramót,
er verzlunin þó að sumu leyti sett í erf
iða stöðu með því að margir mánuðir
líði frá tilkynningu um afnám tolla
fram að gildistöku þess. Afleiðingin er
tilhneiging neytenda til að halda að sér
höndum og bíða eftir gjaldalækkun
inni, einmitt á þeim tíma sem er mesti
uppgripatími verzlunarinnar.
Fata og skóverzlanir bregðast nú
við með sama hætti og raftækjaverzl
anir gerðu margar hverjar í fyrra og
lækka verðið strax um sem nemur þeim
opinberu gjöldum sem falla niður, til að
koma í veg fyrir minnkandi viðskipti.
Fyrirtækin taka þannig í raun á sig toll
ana um nokkurra vikna eða mánaða
skeið. Neytendur njóta að sjálfsögðu
góðs af þessu, en engu að síður hefur
borið á því að fyrirtækin, sem ganga
þannig á undan og færa neytendum
ávinning afnáms opinberra gjalda áður
en það hefur í raun átt sér stað, hafa
ekki fengið að njóta sannmælis.
Gölluð úttekt á áhrifum afnáms
vörugjalda
Þannig birti verðlagseftirlit Alþýðu
sambandsins í maí síðastliðnum niður
stöður úttektar sinnar á því hvernig
afnám vörugjalda á raftækjum hefði
skilað sér. Þar var því haldið fram að
verðlækkanir hefðu verið mun minni
en búast mátti við. Aðferðirnar við
gerð úttektarinnar voru því miður
ekki boðlegar. Annars vegar voru valdir
viðmiðunarpunktar í október 2014 og
svo í apríl 2015. Fjöldi raftækjaverzlana
lækkaði hins vegar hjá sér verðið í sept
ember 2014, fljótlega eftir að tilkynnt
hafði verið um áformað afnám vöru
gjaldanna. Úttektin mældi því alls ekki
hina raunverulegu verðlækkun. Hins
vegar var ekki tilgreint með skýrum
hætti í úttektinni hvaða vörur var um
að ræða í hverju tilviki og þannig var
ekki ljóst að verið væri að bera saman
verð sambærilegra vara. Hvort tveggja
var til þess fallið að draga úr áreiðan
leika niðurstaðna könnunarinnar, sem
því miður voru teknar upp gagnrýnis
laust af mörgum fjölmiðlum.
Það getur vissulega verið vand
kvæðum bundið að mæla áhrif niður
fellingar opinberra gjalda á verðlag.
Strax í kjölfar niðurfellingar tolla á
fötum og skóm um áramótin hefjast
til dæmis hefðbundnar janúarútsölur
á þessum vörum. Mælingar á því hvort
tollalækkunin skili sér þurfa að taka
tillit til þess. Sömuleiðis verður að taka
tillit til þess að ekki bera öll föt eða skór
tolla í dag. Afnámið á eingöngu við um
þær vörur sem eru framleiddar utan
Evrópska efnahagssvæðisins, en vörur
framleiddar á EES bera ekki tolla í dag.
Fyrirfram er engin ástæða til þess
að ætla að verzlunarfyrirtæki láti ekki
lækkun tolla koma fram að fullu í vöru
verði. Ástæðan er að þau eiga í harðri
samkeppni við erlenda verzlun og þurfa
á öllu sínu að halda í þeirri samkeppni.
Aðhald neytenda með því að lækk
anir á opinberum gjöldum skili sér
í vöruverði er sjálfsagt og eðlilegt og
stuðlar að heilbrigðum viðskipta
háttum og virkri samkeppni. Það
verður hins vegar að gera þá kröfu til
verðkannana að þær séu vel úr garði
gerðar og gefi rétta mynd af verðlagi
og verðbreytingum. Á því hefur verið
misbrestur hvað varðar kannanir ASÍ
og er óskandi að úr því verði bætt.
Fær verzlunin að njóta
sannmælis?
Árni Páll
Árnason
formaður
Samfylkingarinnar
Ólafur
Stephensen
framkvæmdastjóri
Félags atvinnurekenda
Fyrirfram er engin ástæða
til þess að ætla að verzlunar-
fyrirtæki láti ekki lækkun
tolla koma fram að fullu í
vöruverði. Ástæðan er að
þau eiga í harðri samkeppni
við erlenda verzlun.
Við gætum vopnast til að
reyna að mæta vandanum.
Það mun hins vegar aldrei
uppræta nýliðun í hópi öfga-
manna, svo lengi sem áfram
verða til félagslegar aðstæður
sem ala á vonleysi og einangr-
unartilfinningu ungra pilta.
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
Akureyri • Sími 461 1099
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
72
13
2
Kanarí – Sól fyrir jól
Kanarí – Jólaferð
Kanarí – Jólaferð
Tenerife – Sól fyrir jól
Frá kr.
79.900
Kanarí &
Tenerife
Roque Nublo
Frá kr. 79.900
Netverð á mann frá
kr. 79.900 m.v. 3 fullorðna
í íbúð.
Netverð á mann frá
kr. 89.900 m.v. 2 fullorðna
í íbúð.
2. desember í 17 nætur
Gloria Palace
Frá kr. 225.900
m/hálfu fæði
Netverð á mann frá
kr. 225.900 m.v. 2 fullorð-
na og 1 barn í herbergi.
Netverð á mann frá
kr. 257.900 m.v. 2 full-
orðna í herbergi.
21. desember í 14 nætur
Tisalaya
Apartments
Frá kr. 134.900
Netverð á mann frá
kr. 134.900 m.v. 3 í íbúð.
Netverð á mann frá
kr. 149.900 m.v. 2 í íbúð.
21. desember í 14 nætur
Tamaimo Tropical
Frá kr. 118.900
m/allt innifalið
Netverð á mann frá
kr. 118.900 m.v. 2 full-
orðna og 2 börn í íbúð.
Netverð á mann frá
kr.136.900 m.v. 2 full-
orðna í stúdíó.
3. desember í 17 nætur
SÉRTILBOÐ
SÉRTILBOÐ
SÉRTILBOÐ
2 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r18 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð