Fréttablaðið - 21.11.2015, Side 82

Fréttablaðið - 21.11.2015, Side 82
Fólk|helgin Ég hef teiknað frá því ég var smátittur að alast upp vestur á Kirkjubóli í Dýra- firði. Ég varð snemma hrifinn af teikningum Halldórs Péturssonar af dýrum, bæjum og sveit, reyndi að herma eftir honum þó ég hafi aldrei komist nálægt honum í gæðum,“ segir Bjarni. Hann hefur frá unga aldri haft áhuga á menningararfinum enda voru og eru hans uppáhaldsviðfangsefni gamlir bæir, landslag og skepnur, sér í lagi hestar. „Það hafa sumir sagt að ég sé fæddur 250 árum of seint,“ segir hann glettinn. hagnýtt áhugamál Bjarni er að mestu sjálflærður þó honum hafi nýst vel teiknitímar í landbúnaðarháskólanum sem hann sótti í Noregi. „Ég geri sára- lítið af því að mála en hef notað vatnsliti dálítið. Mestan part hef ég notað blýant, túss og kol. Svo eftir að ég komst í kynni við Photo shop fyrir nokkrum árum hef ég nýtt mér ýmsa tækni, sér í lagi til að nota við kennslu,“ segir Bjarni og áréttir að þetta áhuga- mál hans sé fyrst og fremst hag- nýtt. „Ég hef notað teikningarnar í starfi mínu sem kennari í fjöru- tíu ár. Það hefur verið gott að geta brugðið upp á töflu, glæru og síðar tölvur, rissum af því sem ég hef verið að tala um.“ Teikningarnar hefur hann þó ekki síður notað til að skrá niður minningar sínar um vinnu- brögð og aðstæður í uppvexti sínum. „Ég teikna eftir minni áhöld, vinnubrögð og atvik sem mig langar að setja á svið,“ segir hann en oft skrifar hann stutta og hnitmiðaða texta, nokkurs konar prósa, við hverja mynd og þannig verður sýningin í Safna- húsinu einnig sett upp. Bjarni kallar þessa blöndu mynda og texta mynd-yrðingar. Róandi á fundum Bjarni grípur til blýantsins við mörg tækifæri. „Mér finnst það til dæmis róandi ef ég lendi á ekki svo skemmtilegum fundi. Þá er einnig gott að teikna þegar eitt- hvað gott er í útvarpinu,“ segir hann og rifjar upp stundir úr æsku sinni þegar hann hlustaði á útvarpið og teiknaði við lampa- ljós. „Þá teiknaði ég gjarnan á gamlan umbúðapappír utan af Tímanum eða Ísafold því pappír- inn var ekki eins auðfenginn og í dag.“ myndiR sem segja sögu Bjarni hefur haldið vel utan um myndir sínar, sér í lagi í seinni tíð. Hann tók vel í beiðni Safna- hússins um að sýna myndirnar þó honum hafi varla þótt það við hæfi. „Ég ber mikla virðingu fyrir listamönnum og finnst dálítil dirfska að raða saman myndum mínum og kalla sýningu. En það fer aldrei verr en illa,“ segir hann kíminn. Á sýningunni verða 32 mynd -yrðingar. „Helmingur myndanna er tengdur Borgarfirði, fólki og aðstæðum hér innan héraðs. Fjórðungur hefur skírskotun til æsku minnar vestur á fjörðum og fjórðungur fjallar um lífið og til- veruna. Prósarnir sem fylgja eru síðan hugrenningar mínar um þetta allt saman.“ Sýningin Leikið með strik verður opnuð klukkan 13 í dag í Hallsteinssal á efri hæð Safna- húss Borgarfjarðar. Sýningin stendur til 20. janúar. n solveig@365.is Við stýRið Bjarni hefur unnið ötult starf fyrir landbúnaðarsafn Íslands á Hvanneyri. Sýning á teikningum eftir hann verður opnuð í Safnahúsinu í Borgarnesi í dag klukkan 13. Mynd/Pjetur KeRRuhjólin Þau lágu í karganum neðan við túnhliðið. langafi hans keypti þau, segja munnmælin. keypti þau beint frá útlöndum. Setti þau undir hestakerru. Víst fyrsta kerran í sveitinni. Þá var hætt að reiða heyið heim. Svo var hætt að binda. Sá gamli fór eftir Hall- dóri skólastjóra á Hvanneyri sem sagði: „Burt með áburðartrunturnar!“ Og kerran var notuð til margra verka á bænum: Til þess að aka skít, flytja mó, sækja möl í nýju steinhúsin … Hjólið var fundið upp fyrir þúsundum ára. Um íslenskar sveitir breiddist það fyrst út fyrir hundrað árum. Nú gengur allt á hjólum. VillilauKuRinn Hann vex þar sem þeir í Bæ gera við bilaða bíla. Er skammt undan turnhárri kirkjunni. Hefur þraukað þar lengi. Víst í ein þúsund ár, segir sagan. Þrautseig- ur landnemi. Vill bara lifa í Bæ. Saknar enn munkanna hans Hróðólfs. Var meðal lífgrasa þeirra. Gæti sagt sögu munkanna hefði hann mál. Ef til vill eiga þeir spor í sverðinum undir rúllustæðunni hennar Ollu í Nýjabæ. Eða hvílugarði gömlu bílanna frá verkstæð- inu. En villilaukurinn er þögull sem gröfin. Gætir þess eins að bera ávöxt ár hvert og lifa af. kannske koma munkarnir aftur einn daginn? mynd-yRðingaR sýning Leikið með strik og stafi er sýning á myndum og texta eftir Bjarna Guðmundsson sem opnuð verður í Safnahúsinu í Borgarnesi í dag. Bjarni er hvað þekktastur fyrir störf sín fyrir Landbúnaðarsafn Íslands en einnig hefur hann gefið út bækur um dráttarvélar og íslenska sláttuhætti. Árlega Ljósaganga á Esjuna verður í dag kl. 16. Gangan í ár er í tilefni tíu ára afmælis Ljóssins, sem er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og að- standendur þeirra. Gangan hefst við Esjustofu og eru allir hvattir til að mæta með höfuðljós. Gengið er í rólegheitunum upp að Steini og mun hópurinn lýsa upp Esjuna á niðurleið. Mæting er kl. 15 en gangan hefst klukkustund síðar og hitað verður upp með söng og undirspili. Tilboð verða á veitingum á Esjustofu í til- efni dagsins. ljósaganga á esjuna höfuðljós munu lýsa upp esjuna síðar í dag. BÆJARLIND 16 - KÓPAVOGUR - SÍMI 553 7100 - WWW.LINAN.IS OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 LAUGARDAGA 11 - 16 NÝ PÚÐASENDING FRÁBÆRT ÚRVAL FINN STÓLL kr. 17.900 MR. WHITE KR. 28.900 51 CM TURTLE kr. 239.000MARMARABORÐ kr. 36.100 HYPE STÓLL kr. 35.990 BETINA SKENKUR 170 CM kr. 142.900 SMILE 3JA SÆTA SÓFI 217 cm kr. 217.600
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.