Fréttablaðið - 22.07.2017, Síða 24
„Fringe-hátíðin er Mekka uppistandaranna og ég verð þar allan ágúst. Það er nýtt fyrir mér að gera langa sýningu á ensku.“
Það voru heldur betur við-brigði að koma úr 24 stiga hita og sól í rigninguna hér í
bænum,“ segir Ari Eldjárn grínisti,
nýkominn í úr löngu sumarfríi fyrir
norðan með fjölskyldunni. „Ég var í
Svarfaðardalnum, kúplaði mig alveg
út, las Arnald og passaði aldraðan
hund foreldra minna. Það er hollt
að fara í langt frí og sérstaklega gott
fyrir sálina að fara í göngutúr með
hund,“ segir hann endurnærður.
Sem er eins gott því um helgina
stendur mikið til, uppistand í kvöld
og annað kvöld, á ensku og eftir það
flýgur Ari til Edinborgar á heljar-
innar grínhátíð.
Hann er þó staddur á óræðum
stað uppi í sveit þegar blaðamaður
hringir. „Ég er að leika í nýju kvik-
myndinni hans Benedikts Erlings-
sonar og er að bíða eftir að það
komi að mér,“ segir hann en gefur
ekki upp hvaða hlutverk um ræðir,
tekur bara fram að það sé tiltölulega
smátt í sniðum.
En hvað stendur til í kvöld? „Það
er sýningin Iceland vs Finland í
Tjarnarbíói, ein í kvöld og aukasýn-
ing annað kvöld. Ég kem fram fyrir
hlé og vinur minn, Ismo Leikola frá
Finnlandi, treður upp eftir hlé. Ismo
er ógeðslega fyndinn, með súran
brandaraskotinn uppistandsstíl.
Hann vann meðal annars keppnina
World’s Funniest Person á Laugh
Factory klúbbnum í Bandaríkj-
unum. Við tveir erum mjög ólíkir,
eins og svart og hvítt. Hann kemur
fyrir eins og feiminn lokaður Finni,
stynur upp úr sér orðunum og fólk
veit ekkert hvar það hefur hann
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
þegar hann byrjar. En svo liggja
allir af hlátri. Hann hefur verið að
skemmta um öll Bandaríkin, á spila-
vítum í Las Vegas og er að upplifa
ameríska drauminn, þessi skrítni
föli Finni sem býr í sólinni í LA! Við
tveir höfum komið fram saman á
hátíðum í Finnlandi og ég vonast
til að gera eitthvað meira með
honum,“ segir Ari.
Báðir munu þeir flytja grínið á
ensku í Tjarnarbíói. Ari segir það
ágæta upphitun þar sem fram
undan séu stórar grínhátíðir hjá
þeim báðum. Ismo sé á leiðinni til
Montreal á hátíðina Just for Laughs
en sjálfur fari hann til Edinborgar á
Fringe-hátíðina.
„Fringe-hátíðin er Mekka uppi-
standaranna og ég verð þar allan
ágúst. Það er nýtt fyrir mér að gera
langa sýningu á ensku, og gott að
hafa rennt efninu í Tjarnarbíói áður
en ég fer út. Ég hef áður skemmt á
ensku en yfirleitt á Norðurlönd-
unum og þá bara í 15 til 20 mínútur.
Ég held að það séu rúmlega 3.000
uppistandarar á Fringe-hátíðinni á
sama tíma. Þetta er dálítið eins og
að vera með bás á markaði,“ segir
hann.
Megnið af efninu sem hann ætli
að flytja eigi hann tilbúið. Hann hafi
notað örlítið af fríinu til að undir-
búa sig fyrir ferðina. Annars hafi
hann ekki trú á of miklum undir-
búningi.
„Ég undirbý mig yfirleitt sem
minnst. Annars verð ég svo stress-
aður. Það er miklu betra að setja
sig í tímapressu og sjá svo til hvað
kemur út úr því. Ég bíð yfirleitt þar
til það er alveg að koma að þessu.
Renni þá í kasti yfir það sem ég á til
og ákveð að það sé allt miklu betra
en mig minnti.“
Ég undirbý mig
yfirleitt sem
minnst. Annars verð ég
svo stressaður.
Ari Eldjárn
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 2 . J Ú L Í 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R