Fréttablaðið - 22.07.2017, Blaðsíða 29
Isavia annast rekstur íslensku flugleiðsöguþjónustunnar og er eini starfsvettvangur
flugumferðarstjóra á Íslandi. Flugumferðarstjórar stýra flugumferð á flugvöllum
á Íslandi og á íslenska flugstjórnarsvæðinu sem er 5,4 milljónir ferkílómetrar
að stærð og eitt það stærsta í heiminum. Isavia og forverar þess hafa jafnan
annast alla þjálfun flugumferðarstjóra .
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Viðkomandi þarf að vera a.m.k. 18 ára og hafa
lokið stúdentsprófi eða sambærilegu námi
• Góð tök á íslensku og ensku í tali og riti
• Viðkomandi þarf að vera góður í mannlegum
samskiptum og sjálfstæður í vinnubrögðum
• Umsækjendur skulu geta staðist læknisskoðun
skv. reglugerð um skírteini flugumferðarstjóra
Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteinum og einkunnum
úr námi. Hæfir umsækjendur verða boðaðir í inntökupróf.
Sérstök athygli er vakin á því að nemar sem teknir verða inn í grunnnám
í flugumferðarstjórn hjá Isavia í janúar 2018 munu ekki greiða skólagjöld.
Þó fullnægjandi árangur náist í námi er það ekki trygging fyrir starfi
hjá Isavia að námi loknu. Hægt er að lesa meira um námið á heimasíðu Isavia.
Umsóknarfrestur er til og með 13. ágúst.
L A N G A R Þ I G A Ð L Æ R A
A Ð S T J Ó R N A F L U G U M F E R Ð ?
Isavia rekur öflugt net flugvalla á Íslandi og flugleiðsöguþjónustu á einu stærsta flugstjórnarsvæði heims.
Hjá Isavia og dótturfélögum vinnur samhentur hópur sem telur um 1.200 manns. Okkar markmið er að vera
hluti af góðu ferðalagi allra þeirra sem fara um flugvelli okkar og flugstjórnarsvæði.
U M S Ó K N A R F R E S T U R
1 3 . ÁG Ú S T 2 0 1 6
U M S Ó K N I R
I S AV I A . I S/AT V I N N A
I S A V I A H E F U R O P N A Ð F Y R I R U M S Ó K N I R U M N Á M
Í F L U G U M F E R Ð A R S T J Ó R N Í J A N Ú A R 2 0 1 8
Stál og Suða ehf óskar eftir kraftmiklum
einstaklingi sem verkstjóra í stálsmiðju okkar.
Viðkomandi þarf að vera áreiðanlegur, ábyrgðarfullur og
hæfur stjórnandi með leiðtogahæfileika.
Starfið fellst meðal annars í stjórnun á starfsfólki, umsjón með
starfsmannaráðningum og almennri yfirsýn með verkefnum.
Um fullt starf er að ræða og viðkomandi gæti hafið störf strax.
Vinnutími 7.30-17 virka dag og yfirvinna eftir þörfum.
Stál og Suða ehf er framsækið fyrirtæki í Málmiðnaði sem
sinnir fjölbreyttum verkefnum með stóran hóp viðskiptavina.
Áhugasamir sendi umsókn með ferilskrá á netfangið
stalogsuda@stalogsuda.is
Starf yfirmanns tæknideildar
Stykkishólmsbæjar er laust
til umsóknar.
Stykkishólmsbær auglýsir lausa til umsóknar stöðu yfir-
manns tæknideildar Stykkishólmsbæjar sem jafnframt
er byggingar- og skipulagsfulltrúi. Undir tæknideild fellur
rekstur áhaldahúss, rekstur fasteigna Stykkishólmsbæjar
og mannvirkja Stykkishólmshafnar. Um er að ræða mjög
spennandi starf í áhugaverðu samfélagi. Leitað er eftir
öflugum og metnaðarfullum einstaklingi sem er reiðubúinn
að þróa starfið á traustum grunni.. Byggingarfulltrúi ber
m.a. ábyrgð á skráningu mannvirkja, úttektum, staðfestin-
gu eignaskiptayfirlýsinga, gjaldtöku, skráningu, varðveislu
og miðlun upplýsinga um mannvirki til íbúa. Ráðið verður
í starfið frá og með 1.september n.k. eða eftir nánara sam-
komulagi Um er að ræða 100% starf og er umsóknarfrestur
til og með 31. júlí nk.
Samkvæmt auglýsingunni er starfssvið byggingarfulltrúa
eftirfarandi:
• Framkvæmd skipulags- og byggingarmála.
• Áætlanagerð og eftirfylgni, mælingar, úttektir og
útreikningar.
• Undirbúningur- og eftirfylgni funda skipulags- og
byggingarefndar.
• Samstarf við aðila utan og innan stjórnsýslunnar, sem
sinna verkefnum á sviði byggingarmála.
• Umsjón framkvæmda og eignaumsýslu í sveitarfélaginu.
• Önnur verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi menntun og
löggildingu samkvæmt ákvæðum 8. og 25.grein mann
virkjalaga nr.160/2010 og uppfylli kröfur 7. gr. skipulags-
laga nr. 123/2010.
• Reynsla af stjórnun verklegra framkvæmda mikilvæg..
• Þekking og reynsla af úttektum og mælingum.
• Þekking á lögum um mannvirki, skipulagslögum og byggingarreglugerð.
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur.
• Hæfni í mannlegum samskiptum, góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar.
• Hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti á íslensku.
• Góð almenn tölvukunnátta.
Umsókn á að fylgja greinargóð starfsferilsskrá og kynning-
arbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rök-
stuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum stéttarfélaga við
Samband íslenskra sveitarfélaga.
Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn á netfangið
sturla@stykkisholmur.is eigi síðar en 31. júlí nk. Umsókninni
þarf að fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf þar sem
umsækjandi gerir sérstaklega grein fyrir hæfni til starfans
út frá ofangreindum hæfnikröfum. Umsækjendur eru beðnir
um að tilgreina a.m.k. tvo umsagnaraðila í umsókn sinni.
Nánari upplýsingar veitir Sturla Böðvarsson , bæjarstjóri
Stykkishólmi í síma 433-8100/863-8888 eða tölvupósti: eða
tölvupósti sturla@stykkisholmur.is.
Stykkishólmi, 7. júlí 2017
Sturla Böðvarsson
www.hagvangur.is
Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi