Fréttablaðið - 22.07.2017, Side 55
KRAKKAR
Lestrarhestur vikunnar
Maggý Nóa, 8 ára
Að venju efna Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Forlagið til
sumarlesturs meðal barna. Á bókasafninu skrifa þau nafn á áhuga-
verðri bók sem þau hafa lesið á bókarkjöl ásamt nafni, aldri og síma-
númeri. Í hverri viku fær einn heppinn þátttakandi bók að gjöf og í lok
sumarsins er veittur einn veglegur vinningur.
Leikurinn
?
Auður Alma Brink Antonsdóttir er
sjö ára og það besta við sumarið
finnst henni að leika við Melkorku
og Dýrleifu, vinkonur sínar, úti í
góða veðrinu.
Hvernig leikur þú þér helst? Úti á
trampólíni að fara heljarstökk og
búa til hús úr púðum og teppum.
Og að hjóla.
Finnst þér gaman að ferðast? Já,
það er gaman en mér finnst ekki
skemmtilegt að keyra mjög lengi.
Mér finnst mjög gaman að fara í úti-
legu og sofa í tjaldi.
Hefur þú áhuga á íþróttum? Já, ég
æfði fimleika í vetur og prófaði fót-
bolta í sumar.
Áttu þér uppáhaldsdýr? Kisa er
uppáhaldsdýrið mitt, mig langar
mikið að eignast lítinn kettling.
Hver er besta bók sem þú hefur
lesið? Nei, sagði litla skrímslið.
Uppáhaldsmaturinn? Ristað brauð
á Mokka og sætir kirsjuberjatóm-
atar.
Hvað er það skrítnasta sem hefur
komið fyrir þig? Þegar ég gleypti
fyrstu tönnina sem ég missti þegar
ég var að hoppa í sófanum. En ég var
að missa fjórðu tönnina mína, núna
framtönn, það var vont að bíta í epli
þegar hún var mjög laus en núna er
það allt í lagi.
Gleypti fyrstu
tönnina sem ég missti
Auður kann að meta sumarið og fara í útilegur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Köttur og mús
Einn þátttakandi á að vera köttur
og annar mús en aðrir þátttakendur
mynda hring og haldast í hendur.
Markmið kattarins er að veiða
músina, annaðhvort fyrir innan
hringinn eða utan, og upphefjast
því mikil hlaup þar sem kötturinn
eltir músina. Músin reynir að
sjálfsögðu að flýja með því að
skjótast ýmist inn í hringinn eða út
úr honum aftur. Þeir sem mynda
hringinn eiga að
aðstoða músina við
að sleppa en hindra
köttinn í að ná henni.
Þegar kötturinn
hefur náð músinni
velja kötturinn og
músin eftirmenn
sína.
Hvað er skemmtilegast við
bækur? Að lesa þær.
Hvaða bók lastu síðast og um
hvað var hún? Síðasta bókin
sem ég las heitir Binna B. Bjarna
og týnda tönnin, eftir Sally
Rippin. Hún fjallar um það þegar
Binna missti tönn.
Manstu eftir fyrstu bókinni sem
var í uppáhaldi hjá þér? Já, það
var Harry Potter og leyniklefinn.
Hvernig bækur þykir þér
skemmtilegastar? Ég hef mest
gaman af fantasíubókum.
Í hvaða skóla gengur þú? Norð-
lingaskóla.
Ferðu oft á bókasafnið? Já, það
geri ég.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Að lesa bækur.
Maggý Nóa Emelíudóttir með verð-
launin sín, bókina Gestir utan úr
geimnum.
Snyrtistofan Ha lik
OKKAR SÉRSVIÐ ER
Háræðaslitsmeðferðir
HENDUR – ANDLIT – HÁLS – BRINGA
Hraunbæ 102 • Reykjavík • S. 893 0098 • snyrtistofanhafblik@gmail.com
PANTAÐU FRÍAN TÍMA
Í SKOÐUN STRAX Í SÍMA
893-0098
Konráð
á ferð og flugi
og félagar
„Almáttugur,“ hrópaði Róbert upp
yfir sig. „Við erum föst hérna inni og
munum aldrei komast út,“ bætti hann
við skelfingu lostinn. „Enginn mun
nokkurn tímann finna okkur og við
munum svelta í hel.“ „Svona nú, Róbert
minn,“ sagði Kata höstuglega. „Þetta er
nú bara völundarhús og það er alltaf
einhver leið út úr völundarhúsum.“
Getur þú
hjálpað Róberti
og Kötu
að komast út
úr völundar-
húsinu?
?
?