Fréttablaðið - 24.09.2016, Side 8
Samgöngustofa auglýsir laus til umsóknar
12 leyfi til leiguaksturs fólksbifreiða á höfuð-
borgarsvæðinu og Suðurnesjum og 1 á Akureyri.
Þeir einir geta sótt um leyfi sem hyggjast stunda
akstur leigubifreiðar að aðalatvinnu og hafa lokið
námskeiði fyrir leigubifreiðastjóra. Til að öðlast
leyfi þurfa umsækjendur að uppfylla leyfisskilyrði,
skv. 5. gr. laga nr. 134/2001 og rg.nr. 397/2003 um
leigubifreiðar, með síðari breytingum.
Úthlutun leyfa fer fram á grundvelli starfsreynslu
við akstur leigubifreiðar, sbr. 6. gr. rg.nr. 397/2003.
Umsóknareyðublöð má nálgast í afgreiðslu
Samgöngustofu, Ármúla 2 í Reykjavík
eða á www.samgongustofa.is.
Umsóknarfrestur er til og með 30.09.2016.
Sími: 480 6000 . www.samgongustofa.is
AUGLÝSING
VEGNA ÚTHLUTUNAR
ATVINNULEYFA
TIL AKSTURS
LEIGUBIFREIÐA
Samgöngustofa
Við flytjum endalausa möguleika til þeirra sem eru hugmyndaríkir
VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA
16
-2
68
8
–
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/S
ÍA
Stjórnmál „Þetta er ekki upplifun
allra kvenna í Sjálfstæðisflokknum.
Það er enn gríðarlega mikið af öfl-
ugum konum að starfa af heilindum
í flokknum,“ segir Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðis-
flokksins. Á fimmtudag sögðu ellefu
konur innan Sjálfstæðisflokksins
sig úr flokknum, þar á meðal þrír
fyrrverandi formenn Landssam-
bands sjálfstæðiskvenna. Ástæðan
er meint íhaldssemi flokksins í jafn-
réttismálum.
„Ég hef fundið fyrir því að konum
sé treyst innan flokksins en auð-
vitað tökum við þessa gagnrýni
til skoðunar eins og allt annað.
Það má upplifa það af tilkynningu
þeirra að konur ráði mjög litlu í
Sjálfstæðisflokknum en það er bara
alls ekki raunin. Við erum tvær
konur af þremur í forystu flokksins,
þingflokksformaður er kona, for-
maður Ungra sjálfstæðismanna er
kona, formaður sveitarstjórnarráðs
er kona og meirihluti þeirra sem
stýra málefnanefndum flokksins er
konur,“ segir Áslaug jafnframt.
Skiptar skoðanir eru um stöðu
jafnréttismála innan flokksins á
meðal Sjálfstæðiskvenna. Þingkon-
an Sigríður Á. Andersen er sammála
Áslaugu Örnu. „Ég hef ekki séð nein
dæmi um það að konur eigi erfitt
uppdráttar í Sjálfstæðisflokknum.“
Þórey Vilhjálmsdóttir, ein þeirra
kvenna sem hættu í flokknum í
vikunni, var aðstoðarkona Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur þingkonu á
kjörtímabilinu. Hanna segir mikinn
missi að konunum en með úrsögn-
inni sendi þær skýr skilaboð. „Við
í Sjálfstæðisflokknum hljótum að
taka þau skilaboð alvarlega. Ég hef
sjálf sagt það margoft á þeim tutt-
ugu árum sem ég hef starfað í stjórn-
málum að Sjálfstæðisflokkurinn er
of íhaldssamur þegar kemur að
þessum málaflokki. Jafnréttismál
og sömu tækifæri kynjanna eru ekki
ásýndar- eða áferðarmál heldur risa-
stórt pólitískt mál sem ég vildi óska
að flokkurinn minn væri í forystu
fyrir.“
Í sama streng tekur Unnur Brá
Konráðsdóttir þingkona. „Að hluta
til er [gagnrýni kvennanna] rétt. Ég
sé mjög eftir þeim stöllum mínum
úr flokknum. Það mun verða erfitt
fyrir flokkinn ef framboðslistar
endurspegla ekki íslenskt samfélag.“
snaeros@frettabladid.is
Skiptar skoðanir um
íhaldssemi flokksins
Ritari Sjálfstæðisflokksins telur ekki fót fyrir gagnrýni nokkurra stjórnarkvenna
í Landssambandi sjálfstæðiskvenna sem sögðu sig úr flokknum vegna íhalds-
semi hans í jafnréttismálum. Tvær þingkonur segja eitthvað til í gagnrýninni.
Það má upplifa það
af tilkynningu
þeirra að konur ráði mjög
litlu í Sjálfstæðisflokknum
en það er bara alls ekki
raunin.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
2 4 . S e p t e m b e r 2 0 1 6 l A U G A r D A G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð