Fréttablaðið - 24.09.2016, Blaðsíða 85
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurður Jóel Friðfinnsson
Kársnesbraut 133,
lést laugardaginn 10. september. Útför
fer fram frá Fíladelfíukirkju, Hátúni 2,
mánudaginn 26. september klukkan 15.
Sigríður Einarsdóttir
Elín Sigurðardóttir Alfred Cassis
Helga Sigurðardóttir Gunnar Bragason
Anna Margrét Sigurðardóttir Gunnþór Ingvason
Erla Huld Sigurðardóttir Karl Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir mín, dóttir,
systir og mágkona,
Svanlaug Ingvadóttir
lést á heimili sínu 22. september sl.
Karen Líf Brynjarsdóttir,
Arnrún Antonsdóttir, Ingvi Þór Sigfússon
Anton L. Ingvason, Guðrún Lýðsdóttir
Þórður G. Ingvason og Hrönn Brandsdóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa, bróður og mágs,
Magnúsar Árnasonar
húsgagnasmiðs,
Móasíðu 3c, Akureyri.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Sjúkrahússins á
Akureyri fyrir góða og hlýja umönnun.
Anna Guðrún Jóhannsdóttir
Árni Rúnar Magnússon Hulda Þórey Gísladóttir
Guðjón Ingi Magnússon Kristveig Þorbergsdóttir
Sandra Ósk Magnúsdóttir Jón Ragnar Jónsson
Hákon Logi, Ágúst Ívar og Eyrún Erla Árnabörn
Steinn Elmar Árnason Guðlaug Guðmundsdóttir
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, sonur,
bróðir og tengdasonur,
Þorleifur Njáll Ingólfsson
sem lést laugardaginn 17. september
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 26. september kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim
sem vilja minnast hans er bent á líknar- og hjálparsjóð
Landssambands lögreglumanna,
reiknnr. 0303-18-930437, kt. 540574-0149.
Sigrún Ásgeirsdóttir
Sara Kristín Þorleifsdóttir
Guðbjörg Eva Þorleifsdóttir
Guðbjörg Þórisdóttir
Sigfús Þór Ingólfsson Gyða Árný Helgadóttir
Rúnar Þórir Ingólfsson
Ásgeir Jónasson Bergljót Kjartansdóttir
Hugheilar þakkir til ykkar allra sem
hafið auðsýnt okkur samúð og veitt
stuðning og styrk vegna andláts og
útfarar elskaðrar eiginkonu, móður,
systur, og tengdadóttur,
Ingibjargar Baldursdóttur
Starhaga 16, Reykjavík.
Franz Jezorski
Baldur, Kristín, Hanna og Björg Jezorski,
Jóhann og Sigurður Baldurssynir,
Sesselja og Franz Jezorski
Michela Roberta Jespersen
Bjarmalandi 11, Sandgerði,
lést þann 15. september.
Útför hennar fer fram mánudaginn
26. september í Safnaðarheimilinu
í Sandgerði kl. 13.00.
Helgi Marteinn Ármannsson
Elísa Dögg Helgadóttir Ejub Purisevic
Gísli Helgason Ólöf Vigdís Ragnarsdóttir
Ármann Ólafur Helgason
Ludviga Kata Soley Thomsen Vinjard Thomsen
barnabörn og langömmudrengur.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Erlendur Steinar Búason
Vesturhólum 5, Reykjavík,
lést á Landspítalanum 19. september
síðastliðinn. Útför hans fer fram frá
Fella- og Hólakirkju mánudaginn
26. september kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á K.F.U.M. og
Fella- og Hólakirkju.
Hólmfríður Pétursdóttir
Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir Gísli Jónsson
Jóna Erlendsdóttir Bjartmar Kristjánsson
Ólafía Guðný Erlendsdóttir Rune Berge
og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Bergsson
Mávahlíð 34,
andaðist á Landspítalanum í Fossvogi
miðvikudaginn 14. september.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Guðbjörg Lilja Jónsdóttir
Þorbjörg Kristín Jónsdóttir Haukur Ásgeirsson
Bergur Jónsson María Jörgensdóttir
Brigitte Chastanet
barnabörn og barnabarnabörn.
Útför okkar ástkæru móður,
tengdamóður og ömmu,
Huldu Filippusdóttur
sem lést á Grund – dvalar- og
hjúkrunarheimili, verður gerð frá
Fossvogskirkju mánudaginn
26. september klukkan 13.00.
Á Grund, deild A2, var afskaplega vel hugsað um Huldu og
vilja dætur hennar færa kærar þakkir fyrir ást og umhyggju
sem Huldu var veitt í veikindum sínum. Ef ástvinir vilja
minnast Huldu þá mega Alzheimersamtökin njóta þess og
Grund minningarkort.
Jóhanna Vigfúsdóttir Þorbjörn Björnsson
Ásgerður Vigfúsdóttir Fjölnir Ernis Sigvaldason
Aðalbjörg Vigfúsdóttir Janus Þór Valdimarsson
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Gunnar L. Hjartarson
Víðilundi 20, Akureyri,
lést föstudaginn 16. september á
Sjúkrahúsinu á Akureyri. Útför hans fer
fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn
27. september kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er
bent á Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri.
Anna Gunnarsdóttir Girish Hirlekar
Hjördís Gunnarsdóttir Grétar Viðarsson
Ómar Gunnarsson Árný Helga Reynisdóttir
Gunnar G. Gunnarsson Valgerður L. Gísladóttir
afabörn og langafabörn.
„Tónleikarnir hefjast á píanólagi sem ég
samdi þegar ég var fimmtán ára og í lok
þeirra mun Karlakórinn Svanir syngja
lagið í raddsetningu sem ég gerði fyrir
hann. En pabbi minn, hann Jón Trausti
Hervarsson, samdi texta við lagið,“ segir
Akurnesingurinn, söngkonan og kór-
stjórinn Valgerður Jónsdóttir. Hún ætlar
að halda upp á fertugsafmælið sitt í dag
með tónleikum, kaffi og kökum og býður
fjölskyldu, samstarfsfólki og öðrum
vinum. Flest laganna eru hennar eigin,
eða þeirra hjóna, hennar og Þórðar
Sævarssonar.
„Við vorum að dusta rykið af hljóm-
sveitinni okkar, My Sveet Baklava.
Svo kláraði ég klassískt söngnám í FÍH á
sínum tíma og ætla að taka eina aríu og
eitthvað fleira úr þeirri deild. Svo raular
fjölskyldan nokkur lög. Dóttirin, Sylvía,
er að verða tíu ára og farin að radda.“
Valgerður kennir tónmennt í Grunda-
skóla á Akranesi. Auk þess heldur hún
námskeið, stjórnar karlakór og syngur
fyrir túrista. „Við Doddi, maðurinn
minn, höfum verið að taka á móti
hópum á safnasvæðinu á Görðum,
þar syngjum við þjóðlög og erum með
kynningar og myndir. Þetta er svona lítil
fræðslu- og tónlistarstund.“
Valgerður kveðst ánægð með lífið og
spennt að ná þessum aldri. „Ég þekki
margt fólk milli fertugs og sextugs og
það virðist svo gaman hjá því. Svo er ég
líka svo heppin að vera að fást við það
sem mig langar til, að sinna tónlistinni
og hef ákveðið rými til að gera það sem
mér dettur í hug. Það er dýrmætt.“
gun@frettabladid.is
Er spennt að verða fertug
Valgerður Jónsdóttir, söngkona og tónmenntakennari, verður fertug á morgun og hlakkar
til að vakna á afmælisdaginn með minningu frá skemmtilegum tónleikum í dag.
Valgerður kveðst heppin að vera að fást við það sem hana langar til og hafa visst rými til að gera það sem henni dettur í hug. Fréttablaðið/Eyþór
Ég þekki margt fólk
milli fertugs og sextugs
og það virðist svo gaman hjá því.
t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a ð i ð 41L a U G a R D a G U R 2 4 . s e p t e m B e R 2 0 1 6