Fréttablaðið - 28.05.2016, Síða 18

Fréttablaðið - 28.05.2016, Síða 18
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Gyða Lóa Ólafsdóttir gydaloa@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Gunnar Mín skoðun Logi Bergmann Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is Aths. Ég er ekki með forsetakosningar á heilanum og til að gæta hlutleysis verða frambjóðendur ekki nafngreindir. Ég fór í sund um daginn og hitti þar kunningja minn. Við þekkjumst alveg ágætlega en eigum kannski frekar fátt sameiginlegt. En hann er mjög skemmti- legur og ég er eiginlega alveg viss um að honum finnist ég mjög fínn gaur. Þannig að við fórum að ræða um hluti sem skipta engu máli. Eins og forsetakjörið. Og þá fór minn maður í gang. Hann sagði að hann væri eins og rasisti. Hann liti í raun ekki á fólkið sem ætlaði að kjósa D sem hluta af sinni þjóð. Það væri svo fáránleg hugmynd að það tæki ekki tali. Ég leyfði honum að tala (hann er mælskur og með frekar fallega rödd) og hann gat bara ekki hætt. Miðað við mann sem átti ekki orð yfir þennan frambjóðanda, þá notaði hann rosalega mörg orð. Og flest ekkert sérstaklega falleg. Frambjóðandi A var hins vegar (að hans mati) algjörlega sjúklega meiriháttar. Hann væri allra manna líklegastur til að koma öllu hér á réttan kjöl og gera alla glaða og hamingjusama. Svo hitti ég annan, sem ég þekki ágætlega og veit að er alveg í lagi, sem sagði að frambjóðandi D væri eini maðurinn með viti og sá eini sem kynni þetta, svona eins og við værum að ræða um að fá múrara til að skella upp tröppum. Og hann bætti við að frambjóð- andi G væri stórhættulegur. Hann vildi jafnvel ganga í Evrópusambandið. Og það væri svakalegt. Nú á ég ennþá eftir að skila BA-ritgerðinni minni í stjórnmálafræði. En hvernig ætli þetta gangi fyrir sig: G: Já, hæ! Er þetta hjá Evrópusambandinu? E: Já. G: Ég var að hugsa um að ganga í sambandið? E: Einmitt. Og einhverjir fleiri með þér? G: Já. Allir á Íslandi. E: Ok … Geturðu hinkrað smástund? Ég ætla að athuga hvort það er laust ... Eigum við að vera öll á sömu blaðsíðu? Við erum að velja forseta. Jújú. Hann gerir alveg helling en mest er hann í svona einhverju skaðlausu dundi. Hann er á einhverjum frumsýningum og í boðum og ferðalögum og heimsóknum. að sameina þjóðina Við erum ekki að velja mann með ofurkrafta. (Reyndar er ég nokkuð viss um að einn frambjóðandi (Á) getur fært hluti með þessu augnaráði.) Og höfum það alveg í huga að við erum ekki að fara að velja sameiningartákn. Veit einhver hvaðan sá brandari er kominn? Forsetar eru ekki sameiningartákn. Nema kannski vinur minn í Túrkmenistan, Gurbanguly Mälikgul- y ýewiç Berdimuhamedow. Við erum ekki að kjósa forseta til að lesa okkur í svefn eða sjá til þess að allir séu vinir. Þetta eru kosningar. Það mun einn vinna og hann verður forseti. Og við þurfum bara að sætta okkur við það. Þeir sem segjast ætla að flýja land ef einhver verður forseti eru eins og fýlugjarnir unglingar sem hóta að flytja að heiman ef foreldrar slökkva á routernum. Þeir þurfa bara knús. Veljum okkur vin Sjálfur ætla ég að mæta á kjörstað. Það er alltaf ákveð- in stemning sem fylgir því. Og mér er alveg sama hvað aðrir kjósa. Mér kemur það bara ekki við. En ég held að það sé ágætis pæling að kjósa þann sem þú gætir helst hugsað þér að fara í bíó með. Eða á djammið, eða húsdýragarðinn eða IKEA. Eða bara hvað sem þér finnst skemmtilegt að gera. Ef við erum ekki með ákveðnar skoðanir á þessu, þá held ég að við ættum að hugsa þannig um forsetann; sem félaga sem gæti verið gaman að hanga með. Það hvarflar hins vegar ekki að mér að gefa öðru fólki ráð um hvað það eigi að kjósa. Hver myndi svo sem taka mark á ráðum frá manni sem ákvað að fá sér hvítar flísar á eldhúsgólfið hjá sér? Aðeins um sameiningartákn OPIÐ Í DAG LAUGARDAG, KL. 11-15 ÁFRAM SAMA LÁGA VERÐIÐ Í SÓLINA FLUG, GISTING, ÍSL.FARARSTJÓRN OG TASKA Úrval Útsýn |  Hlíðasmára 19 |  585 4000 |  uu.is SUMARFRÍ VERÐ FRÁ 49.900 KR. Fyrstu kappræður forsetaframbjóðendanna fóru fram á Stöð 2 á fimmtudagskvöld. Kannanir hafa sýnt yfirburðastöðu Guðna Th. Jóhannessonar, sem nýtur fylgis allt að 2/3 kjósenda. Markmið hinna frambjóð-endanna í sjónvarpssal hlýtur því að hafa verið að reka Guðna á gat og snúa taflinu sér í hag. Keppinautarnir eru varla ánægðir með niður- stöðuna. Guðni sigldi lygnan sjó, tók litla áhættu og komst vel frá sínu, þótt honum hafi vafist tunga um tönn þegar talið barst að Evrópusambandinu. Davíð Oddsson, skæðasti keppinauturinn hingað til, reyndi að klóra í Guðna. Meðölin voru gamal- kunn úr smiðju Davíðs. Hann bendlaði Guðna við Samfylkinguna, nokkuð sem Davíð telur ekki líklegt til pólitískra vinsælda miðað við stöðu þess ágæta flokks. Guðni hristi ávirðingar Davíðs léttilega af sér. Davíð virtist kominn í annan ham en áður í kosningabaráttunni. Landsföðurlegi og auðmjúki grínistinn var á bak og burt. Í hans stað var kominn gamli pólitíski vígamaðurinn sem stærði sig af eigin afrekum og snupraði fréttamann sem honum þótti andsnúinn sér. Sjáum hvernig hamskiptin ganga í kjósendur. Andri Snær Magnason fjallaði af eldmóði um sínar hugsjónir. Andri var með sviðsskrekk. Hann sveiflaði höndunum ótt og títt til að leggja áherslu á mál sitt, en tókst samt ágætlega upp. Andri Snær er sá fram- bjóðendanna sem er með skýrasta sýn. Hann hefur í mörg ár barist fyrir náttúruvernd. Í þættinum bætti hann launajafnrétti kynjanna og læsi skólabarna á listann. Halla Tómasdóttir var mögulega sá frambjóðenda sem best komst frá sínu. Hún virtist full sjálfstrausts, var ákveðin og talaði af röggsemi. Kannski á hún mest inni. Spennandi verður að sjá hvort hún tekur kipp í könnunum. Áherslur frambjóðendanna eru kannski ekki svo ólíkar. Enginn þeirra virtist fylgjandi inngöngu Íslands í Evrópusambandið, þótt Andri Snær kæmist þar næst. Allir nema Davíð lýstu þó þeirri skoðun að eðlilegast væri að þjóðin kysi um málið. Ekki var mikill áherslumunur þegar talið barst að stjórnarmyndun. Öll virtust á því að forseta bæri við eðlilegar aðstæður að halda sig að mestu til hlés en stuðla að því að í landinu sæti traust stjórn. Um málskotsrétt forseta voru tvö sjónarmið. Guðni og Davíð telja að undirskriftir einar eigi ekki að duga til að knýja fram þjóðaratkvæði. Sannfæring forseta eigi að spila stóra rullu. Halla og Andri aðhyllast frekar hugmyndir um beint lýðræði. Þau myndu vilja setja sér vinnureglur um slíkt þótt ekki kæmi til stjórnarskrárbreytinga. Andri skipar sér með skýrum hætti í sveit þeirra, er vilja staðfesta stjórnarskrár- drögin, sem vefst fyrir Alþingi, en þjóðin hefur þegar samþykkt í kosningum. Hvað sem þessum vangaveltum líður getur niður- staðan varla verið önnur en sú að Guðni hafi komið standandi frá sínu fyrsta stóra prófi. Nú reynir á hina frambjóðendurna að saxa á forskotið sem eins og sakir standa virðist allt að því óyfirstíganlegt. Guðni í höfn? Davíð virtist kominn í annan ham en áður í kosninga­ baráttunni. Landsföður­ legi og auðmjúki grínistinn var á bak og burt. Í hans stað var kominn gamli póli­ tíski víga­ maðurinn. 2 8 . m a í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R18 s k o ð U n ∙ F R É T T a B L a ð i ð SKOÐUN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.