Fréttablaðið - 28.05.2016, Page 20

Fréttablaðið - 28.05.2016, Page 20
Öflug þjónusta við leigjendur Leigjendur okkar vita nákvæmlega hvert þeir eiga að leita ef íbúðin þeirra þarfnast viðhalds og þökk sé góðu samstarfi við Securitas getum við sinnt neyðartilfellum allan sólarhringinn. Almenna leigufélagið hefur gert leigu að raunhæfum valkosti á húsnæðismarkaði með því að tryggja leigjendum örugga búsetu. almennaleigufelagid.is Samstarf Almenna leigufélagsins og Securitas tekur til allra íbúða félagsins. J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA Almenna leigufélagið býður leigjendum sínum sólarhringsþjónustu Langtíma leigusamningur Sveigjanleiki 24/7 þjónusta „Öll umsjón er til fyrirmyndar og vel hugsað um sameign og lóð. Okkur fjölskyldunni líður rosalega vel hérna.“ – Selma, íbúi í Brautarholti „Ég hef alltaf búið í eigin húsnæði en er nú að leigja í fyrsta sinn. Ég hafði heyrt margar hryllingssögur af leigusölum en þjónustan hefur verið góð og ábendingum vegna viðhalds alltaf sinnt fljótt og vel.“ – Gylfi, íbúi við Skyggnisbraut „Við erum mjög ánægð með að hafa komist beint í langtímaleiguíbúð eftir langa dvöl erlendis.“ – Elías og Birna, íbúar í Hátúni Þegar þrír af fjórum kjósendum flokks hætta að styðja hann snýst það ekki um umbúðir heldur innihald, um stefnu og trú- verðugleika. Til að snúa vörn í sókn dugar ekki að tala. Samfylkingin þarf að gera. Við þurfum að skapa traust með því að segja afdráttarlaust að við munum ekki mynda stjórn með Sjálfstæðisflokknum bak kosning- um. Hann er ósamstarfshæfur vegna spillingarmála og hefur heitið því að standa gegn öllum kerfisbreyt- ingum. Það er þess vegna sjálfsagt að eyða efasemdunum sem urðu til 2007 með því að ákveða strax að kjósi fólk okkur fær það ekki Sjálf- stæðisflokkinn. Stjórnarskrármálið er líka stórt trúverðugleikamál. Við eigum strax að semja við aðra stjórnarandstöðu- flokka um hvernig það verði klárað að kosningum loknum. Svo við getum með sanni sagt að við höfum fylgt þessu lykilmáli í baráttunni gegn spillingu og fyrir lýðræði alla leið. Það sé þegar umsamið og lýst því með hvaða hætti því verði lokið. Þá eigum við að ná stjórnarand- stöðunni saman um fá en skýr sam- eiginleg loforð sem verði að veru- leika fáum við til þess meirihluta. Fá en skýr – til að skapa traust á því að þeim megi ná. Við þurfum líka að henda ýmsum áherslum sem urðu til í bólunni. Sækja nýjan kraft í grunngildi jafn- aðarstefnunnar. Almennt opin- bert heilsugæslukerfi og opinber spítali sem ekki sligar fólk með gjöldum. Félagslegar lausnir í hús- næðismálum eins og við byggðum upp á síðustu öld, svo sem verka- mannabústaðir, kaupleiga og hús- næðissamvinnufélög. Evran er besta langtímalausnin en við verðum að horfast í augu við að hún er ekki jafn nærtæk og áður var. Þess vegna þurfum við að kynna miklu ein- dregnari stefnu gegn óhóflegum bankakostnaði og okurvöxtum þangað til evran fæst. Við eigum að sæta lagi og ná árangri þegar á þessu kjörtímabili. Nýta þá samstöðu sem fyrir hendi er í landinu og lögfesta rétt fólks til þjóðaratkvæðagreiðslu. Jafnhliða getum við bannað hið endalausa málþóf, aukið með því traust á stjórnmálum og gert Alþingi starf- hæft á ný. Með reynslu mína af myndun Reykjavíkurlistans hef ég boðið mig fram til formanns Samfylk- ingarinnar til að freista þess að ná svipuðum árangri á landsvísu og við náðum þá í borginni. Nái ég kjöri hyggst ég ekki sækjast eftir efsta sæti í Reykjavík í komandi kosn- ingum. Með því vil ég sýna í verki að þó mikilvægt sé að formaður sé reyndur er líka mikilvægt að hann skapi með fordæmi sínu tækifæri til endurnýjunar í forystusveitinni. Látum verkin tala. Sýnum í verki Helgi Hjörvar alþingismaður Samfylkingar og formaður um- hverfisnefndar Alþingis Í velflestum þróuðum, vestrænum ríkjum er sameiginleg forsjá barna nánast heilög regla sam- kvæmt alþjóðlegum samþykktum er varða réttindi barna. Þessar sam- þykktir sjá til þess að grundvallar- réttindi barns til þess að þekkja og umgangast báða foreldra og fjöl- skyldur þeirra séu virt þó svo að leiðir foreldra hafi skilið. Þannig hafa foreldrar jafnan rétt til þess að hlutast til um vöxt og viðgang barns síns til fullorðinsára þó svo að barnið hafi lögheimili hjá öðru hvoru foreldrinu. Sameiginlegur og jafn íhlutunarréttur foreldra Að sjálfsögðu er því foreldri sem barn býr hjá heimilt að taka ákvarð- anir um daglegar nauðþurftir barnsins, til dæmis fatakaup, tann- læknisþjónustu o.s.frv.; en þegar að meiriháttar ákvörðunum kemur, þá þurfa báðir foreldrar að koma þar að, svo sem eins og þegar að vali á trúarbrögðum kemur, vali á skólum, tómstundaiðju og sumarfríum svo nokkuð sé nefnt; þá skulu foreldrar standa sameiginlega að ákvörð- unum um meiriháttar læknisað- gerðir á barni, brottförum úr landi o.s.frv. Þannig þurfa foreldrar, þótt fráskildir séu, sífellt að standa sam- eiginlega vörð um rétt og velferð barns síns, án allrar íhlutunar um einkalíf hvor annars. Á Íslandi búa börn fráskilinna foreldra í meira en 90% tilfella hjá móður og þegar íslensk barnalög eru skoðuð kemur í ljós hve úrelt þau eru í allri framkvæmd, hvernig þau stuðla að mismunun varðandi jafnan íhlutunarrétt foreldra, stuðla beinlínis að því að skapa skilyrði fyrir „aðalforeldri“ og „aukafor- eldri“, það er forsjár- og umgengnis- foreldri. Á Íslandi viðgengst það sem sé að svokallað forsjárforeldri, það er það foreldri sem barn býr hjá, oftast móðirin, taki einhliða allar ákvarðanir um barnið eða börnin og útiloki þau jafnvel frá öllum samskiptum við föður og föðurfjöl- skyldu, allt í skjóli barnalaga. Það sem fylgir svo í kjölfar sífelldra hindrana og jafnvel algerrar útilokunar umgengnisforeldris, oftar en ekki fylgt eftir með illmælgi og tilhæfulausum rógi, er svokölluð foreldrafirring. Barn sem heyrir ekki annað en neikvæðar athugasemdir um umgengnisforeldri forðast smátt og smátt öll samskipti við það. Umgengnisforeldri, sem borgar fullt meðlag og er oftar en ekki fullfært til íhlutunar um uppeldi barns síns, án nokkurs saknæms í fari sínu né umhverfi, fær hvergi rönd við reist. Íslenskt samfélag þarf að athuga sinn gang Hér er nú komið að því að Íslend- ingar, sem vilja telja sig til siðaðra þjóða, taki á þessu ófremdarástandi og virði grundvallarréttindi barns til að þekkja og umgangast báða for- eldra jafnt. Það að svipta barn þess- um rétti telst nú orðið grafalvarlegt og saknæmt athæfi. Spurning er hve lengi duttlungum forsjárforeldra á að líðast að fótum troða grund- vallarréttindi barna sinna viður- lagalaust. Athuga ber að nú munu vera vel á annað þúsund börn hér á landi er búa við sífelldar hindranir og eða algera höfnun á samskiptum við umgengnisforeldri og þar með allan þann frændgarð sinn. Við megum ekki gleyma bréfinu frá Félaginu um foreldrajafnrétti sem heitir „Óhreinu börnin hennar Evu“, sem sent var í maí 2013 til Sig- mundar og Bjarna: „Á Íslandi eru um 33.000 börn og um 14.000 foreldrar sem kerfisbundið er horft framhjá.“ Er þetta framtíðin á Íslandi, án foreldrajafnréttis, án sameiginlegs og jafns íhlutunarréttar foreldra þúsunda föðurlausra barna eða stundum móðurlausra? Illa staðið að rétti barns til sameiginlegrar forsjár foreldra á Íslandi François Scheefer, fv. formaður félags um vináttu og nemenda- skipti Frakklands og Íslands 2 8 . m a í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R20 s k o ð U n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.